Vísir - 10.04.1963, Síða 15

Vísir - 10.04.1963, Síða 15
VÍSIR . Miövilradagiir 10. aprí! 15 o® tramhaldssaga eífir Jane Slackmore stjörnuskin og sku — Bara þetta, að það er virðist svo óra langt síðan ég hætti að elska Rupert, en ég vissi það bara ekki fyrr en í nótt. Ég held ekki, að ég fallist á að láta hann fá skil- nað. Nú hefi ég tækifæri til þess að launa honum illt með illu. Davíð snéri sér frá henni, kyssti móður sína á kinnina og sagði: — Ég verð að koma mér af stað. — Þú kemur til miðdegisverðar? sr^urði hún. — Já, sagði hann og reyndi að iirosa. Hann leit á Díönu, sem nú sagði með hæðnishreim: — Af hverju fiyturðu ekki alveg hingað Davíð. Það fer að verða bara skemmtilegt hér á nóttunni hvað líður, gæti ég trúað. — Hver veit nema það sé ein- mitt það, sem ég hefði í huga, svaraði hann brosandi. — Ó, Davíð, sagði frú Vane himinlifandi, ætlarðu að gera það? — Láttu búa um gamla rúmið mitt mamma. — Það er alltaf tilbúið handa þér. —• Með lavender-angan af rúm- fatnaðinum, bætti Diana við háðs- lega. Davíð svaraði henni engu og lagði leið slna heim að húsinu. Það var engu líkara en Sorrel hefði beðið eftir honum. Hún snéri sér við, er hún sá hann koma. Hann herti gönguna, er hann sá, að hún brosti til hans. Halló, kallaði hún og veifaði til hans glaðlega, ertu kannski kominn til þess að hjálpa okkur? — Nei, því miður get ég það ekki, sagði hann, er hann var kom- inn til þeirra. Ég verð að fara í síðdegissjúkravitjanirnar. — Já, karlmenn verða að vinna, sagði hún. — Meðan konur sitja heima — stundum grátandi? — Ekki á degi slíkum sem þess- um — ekki þegar sólin skín. Ekki þegar ég get komið flugdreka á loft. Er hann ekki fallegur? — Mjög fallegur, sagði hann og horfði á hana. Þau horfðust í augu og það var sem neisti hefði tendrast. — Mjög fagur, endurtók hann lágt. Hún leit niður. Hún var svo bamslega sakleysisleg og fögur, að hann langaði til að þrýsta henni að sér, sleppa henni aldrei, vera henni ávallt til verndar. — Það er drekinn minn, sagði Jónatan í hugaræsingu. Davíð strauk koll hans. — Já, þú ert heppinn að eiga dreka — og svo er alveg mátuleg gola í dag til þess að láta hann fljúga. — Má ég halda í taugina svo lítið, sagði hann og hoppaði kring- um Sorrel. — Auðvitað, sagði hún og horfði á hann og rétti honum taugina og Davíð hugsaði sem svo: Ein- hvern tíma hórfir hún svona á son okkar. Davíð fannst _sem hann hefði stigið fæti á nýtt land þar sem hamingja beið hans. Það sem á undan var gengið I lífi hans hefði verið eins og forleikur að því, sem nú var að gerast og mundi gerast. Hann mundi aldrei hverfa aftur á sömu slóðir og áður. — Viltu ganga með mér að bíln- um? spurði hann. Hún horfði á hann næstum feimnislega. Og hann hugsaði um, að hún kæmi honum alltaf óvænt, hún væri allt af breytileg, og nú beindi hún orðum sínum að Jóna- tan: — Er það ekki allt í lagi, Jóna- tan? — Allt í lagi, foringi, sagði hann. Þau lögðu af stað. Hún gekk við hlið honum og rétt náði hon- um í öxl. Hugur hans var fullur viðkvæmni og ef hann hefði ekki vitað, að konurnar tvær við tjörn- ina horfðu á þau, mundi hann hafa tekið utan um hana. Þess végna beið hann þar til þau voru kom- in fyrir hornið á húsinu. En þá gat hann ekki stilt sig lengur: — Sorrel . . . Það var slík ákefð, þrá f rödd- iinni, að það kom henni óvænt, og hún nam staðar þegar. — Það dálítið, sem ég verð að segja þér, sagði hún fljótt. Hann horfði á hana og allt í éinu fanst honum sem ský hefði dregið fyrir sólina. Hann tók I hönd hennar og svo dró hann hana til sín. — Ég hagaði mér heimskulega í nótt, sagði hann. -— ■ Þú, sagði hún og horfði á hann rannsakandi augum. — Já, sagði hann og tók þéttara um litlu höndina. sem hvíldi á hans: — Sorrel, viltu veroa konan mín? Hún starði á hann stórum augum og svo varð hún eldrauð, og á næsta andartaki náföl. — Ve — verða konan þín? — Það var það, sem ég spurði um, Sorrel? En, Davíð . . . — Nei, segðu það ekki. Ég veit j allt, sem ég vil vita. Ég elska þig. Og ég vil fá þig fyrir konu. Hún kæfði grát og það fór eins j og krampakippir um h'kama henn- ar. — Er það einhver annar?, spurði hann. — Nei, nei, enginn annar. Hann sleppti hönd hennar. — Þú elskar mig þá ekki? — Ó, Davíð , . . Það var sem allar tilfinningar hennar fengju útrás f að nefna þetta eina orð, nafn hans, en hann gerði enga tilraun til að snerta hana aftur, horfði rannsakandi augum á hana. — Viltu verða konan mín, Sorrel? — Ég verð að segja þér . . . — Nei, svaraðu bara, með jái eða nei. Hún titraði frá hvirfli til iljá. — Þú veizt ekki hvað þú færð. — Hlustaðu nú á mig, Sorrel. Ég veit, að eitthvað er ekki eins og það á að vera. Þú ert ekki neitt barn lengur. Hefði ég viljað fá unglingstelpu fyrir konu hefði ég beðið Lauru. Hún reyndi að svara brosi með brosi, þótt augu hennar væru rök af tárum. Og ég geri ekki ráð fyrir, að þú munir hafa náð þeim virðulega aldri að verða 24. ára. — Tuttugu og fimm, greip hún fram í fyrir honum. — Tuttugu og fimm, án þess að verða ástfangin. En því er lokið? — Þvf er, lokið. — Og það er enginn annar? — Ég hefi þegar svarað því. — Og hverju ætlarðu þá að svara? Viltu mig •— eins og ég vil þig án þess að spyrja neins — án skýringa um fortíðina? Hún dró andann ótt og títt. — Ég — ég hefði ekki þrek til þess að spyrna á móti lengur, hvísl- aði hún. — Hættu því þá. Dálítið tár rann niður kinn hennar. — Ég elska þig Davíð, sagði hún. Hann lagði fingurgóm sinn á kinn hennar og þerraði burt tárið. — Sólin skín, sagði hann, og konur gráta ekki f sólskini. — Jú, ef þær verða óvænt fyrir mikilli, óendanlega mikilli ham- ingju. — Á morgun, sagði hann og fór að ganga í áttina til bílsins, er laugardagur, og þá tek ég mér frí. Og þú skalt fá frí allan daginn, það skal ég sjá um. Við skulum vera saman allan daginn, og aka út á ströndina. Hann hló, svo glaður var hann af tilhugsuninni. Lokatónninn. Herra og frú Khan, frú Khan, frú Khan, frú Khan, frú Khan, frú Khan, frú ... — Ert þú hrifin af sjónum, smitaðist af gleði hans. Sbrrel? — Engar spurningar, sagði hún Hún leit upp og horfði á hann, glettnislega. Sfræíisvagnar um pásicana Strætisvagnar Reykjavíkur aka ura páskahá- tíðina sem hér segir: Á skírdag verður ekið á öllum leiðum frá kl. 9.00—24.00 Á föstudaginn langa — —- 14.00 24.00 Laugard. fyrir páska — — - - 7.00 01.00 Páskadag — -— - 14.00—01.00 Annan í páskur,) 9,0f) . 24.00 Á tímabilinu kl. 7.00—9.00 á skírdag og ann- an páskadag, og kl. 24.00—01.00 sömu daga, á föstudaginn langa kl. 11.00—14.00 og kl. 24.00—01.00, á páskadag kl. 11.00—14.00 verð- ur ekið á þeim leiðum, sem ekið er nú á sunnudagsmorgnum ld. 7.00—9.00 og eftir miðnætti á virkum dögum. Á leið 12 — Lækjarbotnar — verður ekið á laugardag fyrir páska eins og aðra daga. Nánari upplýsingar í síma 12700. ÍWntun ¥ prentsmíöja S< gúmmlstimplagerö Efnholti 2 - Slmi 20960 'I SUKE HOÉE SO\" KETOETE7 TA.EZAN. 'WHAT K.IUP OP GAME AKE VOU APTEE'?// S M fl G U 1 I ýmsum stærSum. — Endur- nýjum gömlu sængurnar. Eigum dún og fiöurheld ver. Dún- og fiðurhreinsun Kirkjuteig 29. Simt 33301 Werð kr* „Ég skal segja þér allt um „Það ætla ég nú að vona“, gryfjuna", sagði Ed Pace. „Hún sagði Tarzan, „en hvaða dýr er var ætluð öðrum en þér“. það, sem þið viljið ná?“ Price: „Ég er að skrifa sögu um notkun veiðihunda til að ná í pardusdýr, eins og gert er í Suður-Ameríku með jagúar." StEfa«BSE

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.