Vísir - 11.05.1963, Síða 3
VÍSIR . Laugardagur 11. maí li»63.
3
•................................................................................................................................................
KAUPMíNN LANDSINS ÞINGA
Á fimmtudagskvöldið hófst að
aifundur Kaupniannasamtak-
anna. Rétt til setu á fundinum
hafa 66 fulitrúar 17 félaga og
einstakiinga innan Kaupmanna-
samtakanna og voru fulltrúar
frá öllum féögunum mættir I
fyrrakvöid. Fundurinn hófst kl.
8.30 um kvöldið og stóð til kl.
1 eftir miðnætti. Var honum
síðan frestað en verður fram
haldið 15. maf.
Formaður samtakanna, Sig-
urður Magnússon, settl fundinn
en síðan var kosinn fundarstjóri
Sigurður Óli Ólafsson alþingis-
maður frá Selfossi og fundarrit
ari Reynir Eyjölfsson kaupmað-
ur, Reykjavík.
Flutti Sigurður yfirlitsræðu
um hag smásöluverzlunarinnar
og bróun í málefnum hennar á
undanförnum árum. Fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasam-
takanna, Sveinn Snorrason hrl.,
fluttl skýrslu um störfin á liðnu
starfsári, en siðan lagði Jón
Mathiesen í Hafnarfirði, gjald-
keri, fram relkninga samtak-
anna.
Að því loknu fóru fram al-
mennar umræður og ályktunar-
tillögur lagðar fram. Kosið var
í nefndir og fundi frestað eins
og fyrr segir til miðvikudags
n. k. Skila þá nefndir álitum og
kosningar fara fram.
Myndimar á síðunni voru
teknar á aðalfundinum, í húsa-
kynnum Slysavamafélagsins á
Grandagarði.
Frá vinstri: Ólafur Þorgríms-
son, Sveinn Guðlaugsson, Jónas
Sigurðsson, Jónas Gunnarsson,
Guðni Þorgeirsson og Björn
Jónsson.
Frá vinstri: Ásta Guðmunds-
dóttir, Aðalhciður Jónsdóttir,
Þorbjörn Jóhannesson, Jóhann
Pétursson, Sölvi Ólafsson, Hulda
Yngvarsdóttir, Þorgrímur Tóm-
asson og Karólína Karlsdóttir.