Vísir - 11.05.1963, Blaðsíða 10

Vísir - 11.05.1963, Blaðsíða 10
10 VÍSIR . Laugardagur 11. maí 1963. LÖGTAK Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangengnum úrskurði ierða lögtökin látin fara fram án frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dög- um frá birtingu þessarar auglýsingar,/ fyrir eftirtöldum gjöldum: Bifreiðaskatti, skoðunargjaldi af bifreið- um og tryggingariðgjaldi ökumanna bifreiða fyrir árið 1962, áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi, gjöldum af innlendum tollvörutegundum, matvælaeftir- litsgjaldi og gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra, skipulagsgjaldi af nýbyggingum, söluskatti 1. ársfjórðungs 1963 og hækkunum á söluskatti eldri tímabila, lesta- og vita- og skoðunar- gjaldi af skipum, svo og tryggingaiðgjöldum af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum. Yfirborgarfógetinn í Reykjavík, 10. maí 1963. Kr. Kristjánsson. BIFREIÐASALAN Laugavegi 146. — Símar 11025 og 12640 BIFREIÐAEIGENDUR: Við viijum vekja athygli bíleigenda á, að við höfum ávallt k.mpendur að nýjum og nýlegum FÓLKSBIF- REIÐUM, og öllum gerðum og árgerðum af JEPPUM. Látið RÖST því skrá fyrir yður bifreiðina, og þér getið treyst því, að hún selzt mjög fljótlega. KAUPENDUR: Nýir og ýtarlegir verðlistar liggja frammi með um 700 skráðum bifreiðum, við flestra hæfi og greiðslu- getu. — Það sannar yður bezt að RÖST er miðstöð bif- reiðaviðskiptanna. — RÖST REYNIST BEZT — RÖST S.F. Laugavegi 146. — Símar 11025 og 12640 MIÐSTÖÐVARKETILL - ÓSKAST Miðstöðvarketill 2—2>4 ferm. með fýringu, spiral kút og olíutanki. Sfmi 22737 frá kl. 7—9 e. h. STÚLKA ÓSKAST Nokkrar stúlkur geta fengið atvinnu strax Gott kaup. Frí á laugardögum. Borgarþvottahúsið, Borgartúni 3. Sfmi 17260. STARFSSTÚLKA Starfsstúlka óskast nú þegar. Smárakaffi Laugavegi 178. Sfmi 32732. LAGHENTSTÚLKA Laghent stúlka eða kona getur fengið vihnu. Uppl. í síma 10659 kl. 5—7 e. h. SKRAUTFISKAR Nýkomið gott úrval af fallegum skrautfiskum ma'rgar gerð ir. Ennfremur gróður. Opið á kvöldin frá kl 7—10 laug- daga 13,30—17.00 Lau^aveg 4 uppi Sími 15781. Egill Skallagrímsson hefur aldrei verið til Hinn kunni danski rithöfund- ur Tom Kristensen ritar grein um ritgerðasafn Halldórs Lax- ness í Politiken á miðvikudag- inn. En ritgerðasafn Laxness, sem heitir „De islandske sagaer og andre Essays“ kom út fyrir nokkru hjá Gyldendalsforlaginu. Greinina kallar Kristensen: „Skallagrimsson har nok ikke IL TROVATORE - Framhald af bls 9: að hún er að dauða komin. Hann ásakar sjálfan sig harð- lega fyrir skilningsleysi sitt og biður Leonoru fyrirgefningar, en hún deyr í örmum hans. Greifinn kemur inn og sér, að hann hefur verið svikinn. Hann skipar mönnum sínum að Ieiða Manrico að höggstokknum og neyðir Azucenu til að horfa á aftöku hans. „Því er Iokið", seg- ir hann. Gamla Sígaunanornin réttir úr sér og lítur sigrihrós- andi á hann: „Þú hefur drepið bróður þinn! Ó, móðir mín, nú er hefndin fullkomnuð!" Og hún steypist niður örend. Greifinn er altekinn skelfingu. „Og ég lifi: enn!“ hrópar hann. Tjaldið fell- i ur. —SSB I FRAMREIÐSLUSTÚLKA Framreiðslustúlka óskast. Hótel Vík. HERBERGISÞERNA Herbergisþerna og stúlka í eldhús óskast. Hótel Skjaldbreið. TRÉSMÍÐ AVÉL Sambyggð trésmíðavél ótikast til kaups eða leigu, einnig koma sér- stæðar vélar til greina. Sími 34609. RÚSSAJEPPI - TIL SÖLU Rússajeppi í góðu standi til sölu á tækifærisverði. Gamla Bílasalan, Rauðará. Sími 15812. ÍBÚÐ - ÓSKAST Kærustupar, er bæði vinna úti, óska eftir tveggja herbergja íbúð nú þegar eða 14. maí. Tilboð óskast sent blaðinu merkt — 1010 <§> MELAVÖLLUR REYKJAVÍKURMÓTIÐ Sunnudag kl. 14 leiku FRAM - VALUR Dómari: Magnús V. Pétursson. MÓTANEFND YOGA hárlagningarvökvinn var að koma. REGNBOGINN Bankastræti 6. Sími 22135. eksisteret" eða Skallagrímsson hefur víst ekki verið til“. Ræð- ur höfundurinn einkum viðhorf Kiljans til íslendingasagna, sem mjög koma fram í bókinni, hugleiðingar hans um það hvort sögurnar séu sagnfræði eða skáldskapur og kemst Kristen- sen að því að skáldið Egill Skallagrímsson sá eins mikið fyrir utan raunveruleikann og Don Quixote. Hins vegar dáist hann að því hvað hann er þó raunverulegur. Kristensen víkur nokkuð að þeim ummælum Kiljans, að Danir hafi lítinn áhuga á forn- íslenzkum bókmenntupi af því að þeir „snobbi" mót suðri. Það sé furðulegt, hvað mikil áherzla sé lögð á að kenna latínu og rómverskar bókmenntir, en lítil stund sé lögð á íslenzku, þó íslenzkar bókmenntir séu engu síður fjölskrúðugar en þær rómversku. Loks víkur hann nokkrum orðum að viðhorfum Kiljans til kaþólsku, marxisma, sósíalisma og taóisma og undrast það hve hlð íslenzka skáld á auðvelt með að ferðast milli ólíkra skoð anaheima, milli austurs og vest- urs, og hvernig hann er blanda af marxista og taóista. Mai Zetterling, sænsk-enska leikkonan, sem var á ferð hér á landi í fyrra, leikur í næstu kvikmynd sinni með Pat Mai Zetterling og Pat Boone. Boone. Kvikmyndin heitir „The Main Attraction“ og þar leikur Mai búktalara við fjöl- leikahús. Myndin ku verða mjög róm- antísk og Mai mun hvísla mörgum fögrum orðum í eyra Pat Boones. Tekjuhæsti maður Banda- ríkjanna árið 1962 var Mr. Fredric Donner, formaður stjórnar General Motors. í hans hlut koinu 791.475 dollarar — en reikningurinn frá skaltayfirvöldunum hljóð- aði upp á 682.065 dollara. Þá er betra að vera olíu- kóngur í Austurlöndum og ráða sjálfur skattinum. ' Rita Hayworth á ekki sjö dagana srola. Nú er síðasta von hennar um „coine back“ í HoIIywood orðin að engu. Kvikmyndafélagið, sem > gerði hana að unnustu allra hermanna á stríðsárunum og græddi á því margar milljón- Rita Hayworth ir, hafði ákveðið að láta hana leika aðalhlutverk í kvik- mynd, sem á að bera nafnið „Young blood Hawk“. Reynslu mynd var tekin, en þegar hún var sýnd á tjaldinu andvörp- uðu menn, Rita var búin að vera. í staðinn var ráðin í Iilut- verkið Susanne Pleshette, sem er aðeins rétt og slétt smá- stjarna. En hún hefur eitt fram yfir Ritu, og það er nóg, t.ún er tuttugu árum yngri, aðeins 24 ára. Heimurinn er miskunnar- laus.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.