Vísir - 17.05.1963, Blaðsíða 8

Vísir - 17.05.1963, Blaðsíða 8
8 V1SIR . Föstudagur 17. mai 1963. VÍSIR Ö \ Utgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og '•‘greiðsla Ingóifsstræti 3. Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði. f lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 llnur). Prentsmiðja Visis. — Edda h.f. Leyniskýrslumálið Það er orðið fátt um málefnalegu rökin í vopnabúri islenzkra kommúnista þegar gripið er til annarra eins ódæma og frá er skýrt á forsíðu Vísis í dag. Ritstjórar Þjóðviljans lýsa því daglega yfir að hug- sjón íslenzkra kommúnista sé betra og réttlátara þjóð- félag. Fyrir svo göfugri hugsjón er síðan barizt með því að gerast þjófsnautur. Ritstjórar Þjóðviljans vissu frá upphafi að hér var um einberan uppspuna að ræða. En þeir létu það ekki á sig fá. Sjálfsagt var að nota lygina ef hún yrði flokki þeirra til framdráttar í kosn- ingabaráttunni. Engin ráð voru of gróf, of óheiðarleg þegar um það er að ræða að brjóta sæluríki kommún- ismans braut með þessari þjóð. Það eru aumir menn, sem grípa til slíkra bragða. Það eru aumir men, sem leggja samvizku sína og blaða- mannsheiður við slíkar falsanir. Orðið sorpblað er fyrir löngu orðið til í íslenzku máli, en vafasamt er hvort það hefir nokkru sinni átt betur við en um Þjóð- viljann undanfarna daga. Dag eftir dag er lyginni skip- að í hásæti á forsíðu blaðsins. Dag eftir dag eru les- endur blaðsins brýndir á því að „þessar njósnir hafi beinzt gegn hverri einustu fjölskyldu í landinu, hverj- um einasta manni“.Að hætti Adolfs Hitlers á að hamra það oft á lygini að henni verði að lokum trúað. „Njósnamál“ Þjóðviljans hefir nú sprungið í hönd- um kommúnista. Þeir sitja eftir með sárt ennið. Ef enn eru til þeir menn á þessu landi sem trúa því að málflutningur Þjóðviljans sé byggður á rökum og sannleika, þá er þeim ráðlegra að endurskoða afstöðu sína. Forsíðufregnirnar um njósnir um ættir og einka- mál íslendinga sýna svart á hvítu að ekki er einu orði í því blaði trúandi. Málflutningur þess minnir á ekk- ert fremur en „fréttaflutning“ blaða nazista og fasista á árunum fyrir stríð. Slík skrif hljóta að verða þeim, sem enn fylgja kommúnistum að málum, ærið um- hugsunarefni. Enn eru í flokknum ýmsir grandvarir menn sem hafa lengi trúað því að átt hafi að selja landið, að nú eigi að selja landhelgina — að barátta íslenzkra kommúnista hafi verið barátta fyrir göfugri hugsjón. „Leyniskýrslur“ Magnúsar Kjartanssonar sýna hve rótfúin sú trú hefir verið. En gleggst sýnir þó þetta njósnamál að foringjar kommúnista eru orðnir örvæntingarfullir menn. Flótt- inn úr liði þeirra er hafinn og einskis er svifizt til þess að stöðva hann. Einar Olgeirsson veit að hann vinnur ekki lengur sigur á vettvangi íslenzkra stjórnmála. Því er flúið frá þjóðmálunum en njósnagrýla mögnuð þess í stað. Það er uppgjöf foringja, sem veit að un- anhaldið er hafið. Það er örvæntingaróp brostinna vona um ríki kom- múnismans á íslandi. Bjarni Tómasson. Byrjaði að mála abstrakt á sextugs aídri í gær var opnuð í bogasal Þjóðminjasafnsins sýning, á 34 abstrakt málverkum og 19 teikningum eftir Bjarna Guð- jónsson frá Vestmannaeyjum. Sýningin stendur væntanlega yfir til 24. þ. m. og verður op- i frá kl. 1,39—10. Bjarni er 56 ára gamall, fædd ur á Bæ í Lóni, en fluttist til Eyja 1930. Hann hefur davlizt þar lengst af síðan, og telur sig orðið vera eins mikinn Vest- mannaeying og hver annar. Vísir hitti Bjarna að máli, og spurði um byrjunina á listaferli hans. — O, það er ekki mikið til að tala um, segir Bjarni, ég byrjaði að dunda við tréskurð þegar ég var 12—13 ára gam- all, þótti gaman að því. En ekki var það í miklum mæli, því að allt sem ég hafði til starfans var vasakuti. 18 eða 19 ára gamall, byrj- aði ég svo að læra tréskurð hjá Ágústi Sigmundssyni mynd- skera, sigldi einnig til Hafnar, og „stúderaði" þar í um það bil eitt ár. Þangað ætlaði ég að fara aftur, en stríðið kom í veg fyrir það. Tréskurður eða mynd skurður hefur nú samt verið mín aðalatvinna. — Var ekki erfitt að vera listamaður á þessum árum? — Jú, mikil ósköp, fólkið hafði að vísu gaman af tré- skurði, en myndlistin þreifst lítt, engin leið að tóra á list- málaralaunum. — Hvernig stóð á þvf, að þú fórst allt í einu að byrja að mála abstrakt? — Ég býst við að það hafi verið sökum þess hve það er frjálst. í uppvextinum hafði ég orðið að takmarka mig mikið, og aldrei fengið neina raunveru- lega útrás. Þá var listin ekki orðin jafn mikill hluti af þjóð- lffinu. Þegar ég svo kynntist abstraktlistinni, fannst mér hún svo frjáls, og gefa svo mörg tækifæri, að ég dembdi mér beint úr í hana. — Hefurðu fengizt mikið við að mála hlutlægar myndir? — Já, töluvert. Ég gerði það fyrst framan af, byrjaði eigin- lega á að teikna andlitsmyndir og þess háttar. — Segðu mér svo að lokum Bjarni, hvert er inntak abstrakt málverka þinna? — Tja, það er nú eiginlega ekki gott að svara þessu. Það er í rauninni ekki svo mikið að skilja, því að það er ekki svo mikið tjáð. Það væri þá helzt að átta sig á línunum og lita- samsetningunni. Eins og áður er sagt, stendur sýningin væntanlega til 24. þ. m., en að henni lokinni, fer Bjarni aftur til Eyja. Utanrikisráðherra Hollands dr. Luns heimsækir fsland einkaritarar. Utanríkisráðherr- ann og frú hans koma hingað f boði utanríkisráðherra Guð- mundar 1. Guðmundssonar. — Dr. Luns er fyrsti hollenzki ráð- herrann, sem kemur f opinbera heimsókn til íslands, og er hann mikill aufúsugestur. Hann hef- ur jafnan verið málstað fslands hlynntur og hefir það iðulega komið fram á alþjóða vettvangi og þar hafa margir fslendingar kynnzt þessum heimskunna og mikilsvirta stjórnmálamanni. Eftirfarandi upplýsingar um æviferil dr. Luns hefur blaðið fengið hjá hr. Aret Claesen, sem er aðalræðismaður Hollands á íslandi: Júlíana Hollandsdrottning og maki hennar, Bernhard prins. Drottningin tók við völdum af móður sinni, Wilhelmínu drottningu 1948, en hún hafði þá stjórnað Hollandi í hálfa öld. Júliana drottning hefur verið farsæll þjóðhöfðingi eins og móðir hennar og nýtur frábærra vinsælda þjóðar sinnar, Dr. Luns er fæddur í Rotter- dam 28. ágúst 1911. Hann er kvæntur Elisabeth C. van Heem straa barónessu. Hann stundaði undirbúnings- nám f Amsterdam og Leyden og las svo lög við háskólana í Leyden og Amsterdam, og sfðar las hann stjórnvísindi og hag- fræði við Lundúnaháskóla og einnig stundaði hann þýzkunám í Berlínarháskóla. Dr. Lups hefir verið starf- andi f utanríkisþjónustu Hol- land frá 1938, 1943—1944 utan- ríkisráðherra hollenzku útlaga- Framh. á bls. 10 Utanríkisráðherra Hollands, dr. Joseph Luns, kom hingað í gær f opinbera heimsókn, á- samt konu sinni. Komu þau hingað í flugvél frá Flugfélagi fslands. í för með þeim er sendiherra Hollands á íslandi, Adolph Bentinck barón og tveir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.