Vísir - 24.05.1963, Page 16
VISIR
Föstudagur 24. maí 1963.
-----y ...
Guðmundur
fru Miðdul
lútinn
Guðmundur Einarsson frá Mið-
dál myndhöggvari og listamaður
iézt í nótt á 68. aldursári.
Guðmundur frá Miðdal var
löngu landskunnur maður. Hann
var óvenju fjölhæfur listamaður,
jafnt sem myndhöggvari og drátt-
listarmaður, leirbrennslumaður, rit-
höfundur og ljósmyndari. Hann
var íþróttamaður fram eftir ævi,
Mynd þessa tók Ijósmyndari Vísis B. G. um hádcgisbilið á miðvikudag en þá höfðu nokkur hjálpartæki verið fiutt á staðinn.
Framhald á bls. 5.
Guðmundur Einarsson
45 tonna jarðýta festist
í flæðarmáfí og fór í kaf
Eftir mikið starf og strit all-
an s. 1. miðvikudag og fram til
klukkan tvö um nóttina, náðist
ein stærsta og dýrasta jarðýtan,
sem til er hér á Iandi, upp úr
flæðarmálinu fyrir neðan Sorp-
eyðingarstöðina við Grafarvog.
Hér er um að ræða tiltölu
lega nýja jarðýtu eign íslenzkra
Aðalverktaka h.f. og mun hún
hafa kostað um þrjár milljónir
og sex hundruð þúsund. En svo
slysalega vildi til, þegar verið
var að skipa henni í land um
kl. 9,30 s. 1. miðvikudagsmorgun
að jarðýtan lenti í sjónum fest-
ist f sandbleytu og um þrjú leyt
ið, um daginn þegar háflæði
var sást ekki lengur í ýtuna.
Hún fór £ kaf og er því stór-
skemmd.
Undanfarið hefur þessi jarð-
ýta unnið við Loranstöðina á
Hellisandi og tók þá 1750 kr.
fyrir klukkutímann.
Það var sementsferjan frá
Akranesi sem fengin var til þess '
að flytja ýtuna og gengu flutn-
ingarnir vel þar til átti að setja
hana í land inni í Grafarvogi.
Það sem einkum olli þessu
óhappi voru ónógar upplýsingar |||||
um fjöruna, því þegar til kom ||!l||
var hún of gljúp fyrir jarðýt-
una.
Var leitað til Björgunar h.f.
um aðstoð, sem fékk síðan vél-
ar frá nokkrum öðrum fyrir-
tækjum til aðstoðar við björg-
unina, sem hófst um kl. tólf á
miðnætti. Allan daginn hafði
verið unnið að ýta sandi niður
í flæðarmálið, grafa braut fyrir
ýtuna og koma ýmsum tækjum
fyrir.
Og þó klukkan væri orðin
tólf á miðnætti hafði mikill/
fjöldi fólks safnazt saman
fjörunni og sjá mátti samfellda
röð bíla á veginum neðan úr
fjöru og upp að Sorpeyðingar- -.........
stöð. Fjöldi hjálpartækja hafði
verið fluttur uppeftir, skurð-
gröfu hafði verið komið fyrir
á járnflekum í flæðarmálinu,
sex dráttarbílar voru komnir á
Framhald á bls. 5.
Á háflæði flæddi alveg yfir ýt-
una og um tíma voru 3 m niður
á þak hennar. Á. myndinni sézt
þegar ýtan er að fara í kaf.
44 taka þátt í sjó-
stangaveiSimótinu
Fyrsti aeindist björgunin að því að ná ýtunni upp f ferjuna aftur.
SJÓREKIN ÚLPA FINNST
Lfkur benda til að það sönnun-
argagn hafi nú fundizt, sem bendi
ótvírætt til afdrifa ungu mannanna
tveggja sem hurfu úr Reykjavík
um miðja s.l. viku, þeirra Bjöms
Braga Magnússonar og Jóns
Bjömssonar.
Þetta sönnunargagn er sjórekin
úlpa sem talin er vera af Birni
Braga og fannst í fyrrakvöld rekin
í fjörunni milli Pálsbæjar og
Minni-Bakka á norðanverðu Sel-
tjarnamesinu. Á svipuðum slóðum
fannst og plitti rekið úr bátnum,
sem talið er að þeir muni hafa
farið út á.
Henry Hálfdánarson forstjóri
Slysavarnafélagsins tjáði Vísi að
þetta benti til þess sem hann hafi
í upphafi talið langlíklegast að báts
og manna væri ekki langt að leita.
Er hugmyndin að fá flugvél eftir
hádegið f dag til að fljúga yfir
svæðið vestur af Eiðisgranda og
kanna hvort nokkur ummerki sjáist
úr lofti. Þá er stórstraumsfjara og
þess vegna óvenju góð aðstaða til
leitar vegna grynninga.
Gengið hefur verið á fjöru dag
hvern síðan leitin að mönnunum
tveim hófst og auk leitarflokka
frá Slysavarnafélaginu hafa það
einkum verið vinnufélagar þeirra
Björns Braga og Jóns sem tekið
hafa' þátt í leitinni sem sjálfboða-
liðar.
Sjóstangaveiðimótið hófst I
gær i Vestmannaeyjum. Þá um
morguninn létu 7 bátar úr höfn
með glöðum og reifum kepp-
endum. Það eru 44 menn sem
taka þátt í keppninni. Sex þeirra
mynda sveit frá Vestmannaeyj-
um og 7 mynda sveit Banda-
ríkjamanna af Keflavíkurflug-
velli. Aðrir keppendur eru frá
Reykjavík, en það fórst fyrir
að keppendur kæmu frá öðrum
löndum.
Erfitt var að fá báta, þar sem
humarveiðar eru nú byrjaðar af
fullum krafti, en þó fengust 7
bátar 30-50 tonna og eru það
þessir bátar: Haraldur, Erlingur,
Sævar, Skúli fógeti, Víkingur,
Guðbjörg og Auðbjörg.
Fyrsta daginn gekk veiðin
heldur treglega. Það var bræla
á um morguninn en batnaði upp
úr hádegi. Bátarnir dreifðu sér
kringum eyjamar.
Um kvöldið þegar komið var
inn og aflinn vigtaður, kom i
ljós, að Lúðvík Eggertsson var
með mest aflamagn 103,6 kg,
næstur var Marinó Þórarinsson
með 99,7 kg og þriðji Loftur
Framhald á bls. 5.
Lilliendaltl lyfsali
n Dalvík
Lyfsöluleyfi á Dalvík hefur nú
I verið veitt. Er skýrt frá þvf í
Lögbirtingablaðinu, að Ingólfi
Lilliendahl cand. pharm. hafi vcrið
veitt lyfsöluleyfió frá 1. sept. n. k.