Vísir - 31.05.1963, Síða 2

Vísir - 31.05.1963, Síða 2
2 V í SIR . Föstudagur 31. maí 1963, »Lr-j 1—J Li—u Z////////Æ 1 i Z/////Æ \ I ItQm HOLSTEIN KIEL kemur Manfred Greif — hefur leikið bæði innherja og miðherja með Holstein Kiei. Hann er einn af snjöllustu sóknarleikmönnum liðsins og hefur oft sinnis leikið í norður-þýzkiun úrvalsliðum og með þýzka B-landsIiðinu. EÓP-mót Irjáls- íþróttamanna '63 hingai Á hvítasunnudag kemur þýzka atvinnumannaliðið Holstein Kiel til landsins f boði Fram. Liðið mun leika hér 4 leiki, alla á Laugardalsvellinum. Fyrsti leik- urinn verður 3. júní við KR. Ann- ar leikurinn hinn 5. júní við gest- gjafana Fram, Ríkharður Jónsson Ieikur þá með Fram. Þriðji leikur- inn við Akureyri þann 7. júní. Fjórði og síðasti leikurinn verður 10. júní og þá keppir úrval af Suðvesturlandi. Eins og áður hefur verið getið í blöðunum, er Holstein Kiel eitt af betri og þekktari félögum Þýzkalands. Það hefur verið Þýzka landsmeistari, 6 sinnum norður- þýzkur meistari og 2 bikarmeist- ari. Auk þess urðu áhugamenn félagsins Þýzkalandsmeistarar árið 1961. Af 17 leikmönnum, sem koma nú hingað, eru 5 af áhuga- mannameisturunum frá 1961, en þeir eru núna atvinnumenn. Holstein Kiel lauk 1961 bygg- ingu nýs félagssvæðis, sem rúmar 30.000 áhorfendur og hefur þessi stórum bætta aðstaða hleypt nýju lífi í allt félagsstarfið. Auk knatt- spymu leggur félagið stund á handknattleik, frjálsar iþróttir, hnefaleik og tennis. Eins og áður er sagt, koma hingað 17 leikmenn og er meðal- Þyrstur markvörður? Þessi mynd var tekin í leik í Kaupmannahöfn fyrir nokkru og verður ekki annað sagt en að hún komi nokkuð undarlega fyrir sjónir, því engu er líkara en markvörðurinn hafi gómað heljarstóra flösku af Coca Cola f staðinn fyrir boltann. Það var ljósmyndari BT, Tage Nielsen, sem tók myndina, en ástæðan fyrir þessu er eins og raunar má sjá, að auglýsingin á stúkuþak- inu ber f markvörðinn, þannig að engu er líkara en hann haldi á flösku af svaladrykknum. aldur þeirra rúm 25 ár. Eftirfar- andi sex eru taldir þeirra beztir: Franz Moeck, markvörður. Hann er talinn mjög snjall og þá sér- staklega milli stanganna, enda er viðbragðsflýtirinn ótrúlegur. Giinter Tams, miðframvörður. — Mjög öruggur leikmaður. Hafði leikið 5 leiki með þýzka áhuga- mannalandsliðinu, áður en hann gerðist atvinnumaður. Gerd Koll, útherji. Skoraði flest mörk í norðurdeildinni þýzku 1961 til 1962. Meðal þeirra, sem þá urðu að láta í minni pokann fyrir hon- um, hvað mörk snertir, var Uwe Seeier, landsliðsmiðherji Þjóðverja sfðan 1957. í tilefni af fréttatilkynningu frjálsíþróttadeildar KR um fyrir- hugaða keppni KR gegn úrvaii úr öllum öðrum íþrðttafélögum lands- ins, sem birtist í blöðum og út- varpi á uppstigningardag, leyfir stjórn frjálsíþróttadeildar ÍR sér að taka fram eftirfarandi: 1. Frjálsíþróttadeild ÍR er mót- fallin keppni í þessu formi. 2. Þegar um keppni tveggja að- ila er að ræða, finnst stjórn frjáls- íþróttadeildar ÍR nauðsynlegt, að keppnisaðilar ræði fyrirkomulag slíkrar keppni. Þó svo að hægt væri að komast að samkomulagi um einhvers konar stigakeppni tveggja félaga, telur stjórn frjáls- íþróttadeildar IR, að dagarnir 12. —13. júní séu mjög óheppilegir. Frjálsíþróttamót úti á landi fara yfirleitt ekki fram fyrir 17. júní og því er útilokað að velja lið nú, ef miða skal við afrek á þessu ári, en telja verður vafasamt að veija menn í keppnislið, ef valið er eftir afrekaskrá ársins á undan. 3. Frjálsíþróttadeild iR hefur nú sem hingað til áhuga á stigakeppni Fritz Boyens, miðherji. Hann er rétt tvítugur. Hefur leikið 6 sinn- um með þýzka unglingalandsliðinu. Manfred Greif, innherji og mið- herji. Hefur leikið í þýzka B-lands- liðinu og 7 sinnum í norðurþýzk- um úrvalsliðum. Horst Martinsen, innherji. Lék áður í áhugamannalandsliðinu. Tal- inn mjög snjall og skemmtilegur leikmaður. Heimsókn Holstein Kiel stendur í sambandi við 55 ára afmæli Fram sem er á þessu ári. Móttökunefnd Fram skipa þessir menn: Jón P. Ragnarsson, Sigurður Jónsson, Jón Jónsson, Jón Sigurðsson og Jón Þórðarson. milli KR og IR í frjálsum Iþróttum, enda hafa forystumenn félaganna rætt um slíka keppni í vor. Með þökk fyrir birtinguna. Frjálsíþróttadeild ÍR. Sundmót í Sundlaug Vesturbæjar Sunddeild KR heldur sundmót í Sundlaug Vesturbæjar laugardag- inn 8. júní n. k. kl. 3 e. h. f til- efni af 40 ára afmæli sínu. Keppt verður f þessum greinum: 200 m skriðsund karla, 50 m bringusundi karia, 100 m baksundi karla, 100 m skriðsundi kvenna, 200 m bringusundi kvenna, 100 m bringusundi telpna, 50 m skrið- sundi telpna, 100 m skriðsundi drengja, 50 m baksundi drengja, 3x50 m þrísundi karla. Þátttaka skal tilkynnt Jóni Otta Jónssyni, Vesturgötu 36A, eigi síð- ar en þriðjudaginn 4. júní. Enda þótt frjálsíþróttadeiid iR sé á móti „landskeppni" KR eða réttara sagt EÓP-mótinu í þeirri mynd, sem frjálsíþróttadeild KR hugðist bezt 'geta framkvæmt það til minningar um Erlend heitinn Pétursson á 70 ára fæðingardegi hans, þá mun mótið engu að síður fara fram 12. og 13. júní með sömu keppnisgreinum og áður hefur verið auglýst. Að sjálfsögðu harmar KR það, að ÍR skuli eitt allra félaga í land- inu viija skerast úr ieik og þannig koma f veg fyrir að allir beztu frjálsíþróttamenn landsbyggðarinn ar fái tækifæri til að taka þátt í stigakeppni, sem hefði getað orðið hvorttveggja í senn: góður undir- búningur fyrir væntanlega lands- keppni við Dani og skemmtileg og spennandi nýbreytni fyrir áhorfend ur. Samkvæmt yfirlýsingu frjálsí- þróttadeildar ÍR hefur IR sem sagt ekki áhuga á slíkri keppni — held ur áhuga fyrir einhliða stigakeppni milli KR og IR. Þar með hefur ÍR sett KR stólinn fyrir dyrnar og neytt félagið til þess að útiloka öll önnur félög en ÍR og KR frá tvísýnni stigakeppni. Og jafnvel þótt KR þyki það leitt, að ÍR skuli alls ekki vilja félagsskap annarra félaga, þá vill frjálsíþróttadeild KR þó reyna að bjarga því, sem bjarg að verður — og mun því ekki skor- ast undan því að heyja stigakeppni við ÍR. Á hinn bóginn væntir KR þess að ÍR sé ekki einnig á móti því að hugsanlegir keppendur annarra félaga fái að taka þátt í mótinu utan stigakeppninnar — og biður þvl alla þá, sem áhuga hafa á þátt- töku, að senda þátttökutilkynning- ar til Gunnars Sigurðssonar á skrif stofu Sameinaða, Tryggvagötu 23, Reykjavík, fyrir 6. júní n. k. Mun KR að sjálfsögðu leitast við að Iáta þátttöku þeirra ekki hafa nein á- hrif á stigakeppni KR og ÍR, t. d. á þann hátt, að þeir keppi í sér- riðlum í a. m. k. 100, 200 og 400 m hlaupi, 110 m og 400 m grinda- hlaupi og boðhlaupunum þar sem brautir eru afmarkaðar fyrir fjóra, o. s. frv. Framhald á bls. 5. 9 NTB: Norsku línuverðirnir Sverre Eugen Olsson frá AB og Hans Granlund frá Heggedal munu verða íslenzka dómaran- um Hauki Óskarssyni til aðstoð ar 4. júní, er Skotland leikur landsleik við Noreg í Bergen. — Margar umsóknir hafa borizt til FIFA um þátttöku í Evrópubilt- arkeppninni næstu. Öll beztu deildalið Norðurlanda verða með, nema hvað ekki er vitað um Island. Yfirlýsing frjáls- íjtróttadeildar ÍR saraiaqi

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.