Vísir - 31.05.1963, Qupperneq 6
6
V1SIR . Föstudagur 31. maí 1963.
Stjórnmálafundur Heimdallar á laugardag:
Kvikmynd um atburðina 30.
marz 1949 verður sýnd
Árás kommúnista og fylgiliðs þeirra á Alþingis
húsið 30. marz 1949 var sögulegur atburður. At-
burðurinn var sögulegur vegna þess að hann var
tilraun annarlegs minnihluta til að beygja yfir-
gnæfandi meirihluta íslenzka löggjafarþingsins
undir vald sitt og vilja. Atlagan mistókst, lýðræðið
verða að engu af því að ofbeldissinnaður minni-
hluti vill það feigt og reynir að granda því.
Atburðimir 30. marz 1949 vom kvikmyndaðir.
Ein þeirra kvikmynda, sem þar voru teknar verður
sýnd á fundi Heimdallar í Sjálfstæðishúsinu næst-
komandi laugardag. Fundurinn er almennur stjórn
Austurvöllur varð vígvöllur 30.
marz 1949 — vettvangur
kommúnista til valdbeltingar
gegn Alþingi Islendlnga. ÖIl
lögreglan og varalið var kvatt
út. Borgaramir komu lögregl-
unni einnig til aðstoðar. Árás-
inni var hrundið.
í átökum sínum við óaldar-
lýð kommúnlsta beitti lögreglan
táragasi og kylfum. Kommún-
istar beittu grjóti, sem þeir rifu
upp úr Austurvelli, bareflum,
sem þeir náðu sér i, og þeir
hvöttu sitt lið gegnum hátalara.
stóðst raunina. Fyrst og fremst er að þakka sam-
tökum borgaranna, sem brugðu við skjótt og slógu
skjaldborg um þingið og hús þess og vörðu það
gegn ofbeldismönnunum. Lýðræðissinnar fögnuðu
sigri, kommúniskir áróðursmenn voru ýmist hand-
teknir eða hraktir á brott. Ýmsir hlutu þunga dóma
Hæstaréttar íslands eftir löng og söguleg málaferli.
Enginn trúir því að kommúnistar hafi látið ó-
sigurinn sér I léttu rúmi liggja. Síðan þeir biðu
ósigur við Alþingishúsið fyrir fjórtán árum. Þeir
ganga enn þá með kreppta hnefana í vasanum
býðst. Þegar gengið er til kosninga og kommúnist-
ar eru meðal frambjóðenda, er ekki úr vegi að rif ja
þennan atburð upp. Hann minnir á hvers gæta
þarf. Að lýðræðinu stafar hætta af kommúnistum,
og lýðræðið verður að vemda, ef það á ekki að
málafundur, en ræðumenn eru allir úr hópi ungra
Sjálfstæðismanna. Þeir eru Birgir ísleifur Gunnars
son, borgarfulltrúi, Bjarni Beinteinsson, formaður
Heimdaííar, Eyjólfur Konráð Jónsson, ritstjóri,
Geir Hallgrímsson borgarstjóri, Guðmundur H.
Garðarsson viðskiptafræðingur, Gunnar G. Schram
ritstjóri, Pétur Sigurðsson alþingismaður og Ragn-
hildur Helgadóttir, alþingismaður. Fundarstjóri
verður Þór Vilhjálmsson, formaður Sambands
ungra Sjálfstæðismanna.
Lúérasveit Reykjavíkur leikur frá klukkan 14.
Ungt fólk er hvatt til að sækja fundinn. Sjálf-
stæðismenn munu fjölmenna til að hlýða á ræður
forystumanna sinna og til að sjá hina fróðlegu kvik
mynd um atburðina við Alþingishúsið 30. marz
1949.
Ársarmenn belttu grjóti og bar-
eflum. Hvar átti grjótiö að
lenda? i einhvern andstæðinginn
eða Alþingishúsið? í átökunum
urðu margir fyrir alvarlegum
meiðslum, t. d. lögregluþjónar.
Afíi Akureyrarartogaranna
á síðasta árí 5473 tonn
Nýlega var haldinn á Akureyri
aðalfundur Útgerðarfélags Akur-
eyrlnga, en það gerir út fimm tog-
ara, þá Kaldbak, Svalbak, Harð-
bak, Sléttbak og Hrfmbak og m.b.
Ingvar Guðjónsson. Auk þess rek-
ur það hraöfrystihús, aðrar fisk-
verkunarstöðvar og netaverkstæði.
Á fundinum voru lesnar upp
rekstrarskýrslur og reikningar fyr-
ir síðastliðið ár. Framleiðslan var
sem hér segir: Selt erlendis í 23
söluferðum 2,936 tonn. Freðfiskur
til útflutnings 29,099 kassar eða
729 tonn. Heilfrystur fiskur 56
tonn, beita 91 tonn, nýr fiskur
seldur innanlands 54 tonn. Full-
verkuð skreið 82 tonn, skreið ó-
pökkuð 8,5 tonn. Óverkaður salt-
fiskur til útflutnings 12,2 tonn,
verkaður saltfiskur til útflutnings
33,6 tonn, söltuð þorskflök 6.2
tonn. Úrgangur til Krossanesverk-
smiðju 1,594 tonn.
Afli togaranna var þessi: Kald-
bakur 722 tonn á 165 úthaldsdög-
um, Svalbakur 1,514 tonn á 235
dögum, Harðbakur 1,335 tonn á
209 dögum, Sléttbakur 1,479 tonn
á 245 dögum og Hrímbakur 421
tonn á 77 úthaldsdögum. Samtals
gerir þetta 5,473 tonn á 931 út-
haldsdegi.
Skuldir útgerðarfélagsins reikn-
ast vera 95,9 milljónir króna. —
Stærstu skuldirnar eru 21,5 millj.
við Akureyrarbæ, 16,1 millj. við
ríkissjóð, 12 millj. við stofnlána-
deild sjávarútvegsins, 8,7 millj. við
Landsbankann og 6,9 millj. við
Hambros banka í London.
Eignir félagsins að frádregnum
höfuðstólsreikningi eru bókfærðar
49,2 millj. kr. Þar kemur í ljós, að
Harðbakur er bókfærður 8 millj.
kr., Hrímbakur 6,5 millj., Slétt-
bakur 2,9 millj., Svalbakur er bók-
færður 525 þús. kr. og Kaldbakur
300 þús. kr.
Um rekstur skipanna á s.l. ári
er það að segja að á aðalrekstrar-
reikningi er reksturshalli félagsins
reiknaður 2,8 millj. kr. Þá er reikn-
að með ágóða af þremur togurum
af Kaldbaki 2500 krónur, af Sval-
baki 381 þús. og Sléttbaki 513
þús. kr. ágóða. En halli af tveim-
ur togurum, af Haröbaki 2,2 millj.
kr. halli og Hrímbaki 1,1 millj.
En þegar alít er talið saman í
rekstri togaranna, fyrningar, stofn-
lánavextir og greiðslur til afla-
tyggingasjóðs kemur í ljós að
geysilegt tap er á rekstri allra tog-
aranna. Tapið á rekstri Kaldbaks
er þá 2,2 millj. kr., Svalbaks 1,2
millj. Harðbaks 1,6 millj., Slétt-
baks 1 millj. og af rekstri Hrim-
baks 1,1 millj. Eða samtals um iy2
milljón króna.