Vísir - 31.05.1963, Page 8
8
V í SIR . Föstudagur 31. maí 196§.
VtSIR
Utgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR.
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ö. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og ^greiðsla Ingóifsstræti 3.
Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði.
í lausasölu 4 kr. eint. — Sfmi 11660 (5 linur).
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Óvinir Reykjavíkur
í grein sem Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra
ritaði hér í blaðinu fyrir skömmu benti hann á það
hve litlu má muna að glundroðaflokkunum takist að
ná stöðvunarvaldi á Alþingi. Nú hafa stjómarflokk-
amir 33 þingmenn á móti 27 þingmönnum stjómar-
andstöðunnar. Ef stjómarflokkarnir missa tvö þing-
sæti yfir allt landið hefir glundroðaliðinu tekizt að
ná stöðvunarvaldi á þingi. Ef til slíks kæmi myndi sú
hætta vofa yfir að viðreisninni yrði spillt og aftur
sækti í sama hafta og vandræðahorf sem ríkti á dög-
um vinstri stjórnarinnar.
Það er þess vegna höfuðatriði að andstöðuflokk-
unum takist ekki að ná slíku stöðvunarvaldi. Fram-
sóknarmenn leggja megináherzluna á að ná nýju þing-
sæti hér í Reykjavík. Gegn því er nauðsynlegt að allir
þeir sem vilja áframhaldandi uppbyggingu lands og
borgar sameinist. Reykvíkingar hafa bitra reynslu af
Framsóknarflokknum. Sá flokkur hefir í fjölda ára
lagzt gegn hverju stórmálinu af öðra sem horft hefir
til heilla borginni. Árum saman var magnaður söng-
urinn um Reykjavíkurvaldið í blöðum flokksins, ekki
sízt úti á landi. Sagt var að það gini yfir öllu og hin
mesta nauðsyn væri að brjóta það á bak aftur.
Óþarft er að rifja upp í smáatriðum baráttu fram-
sóknar gegn borginni. Þeir gerðu sitt til þess að spilla
fyrir Sogsvirkjuninni á sínum tíma. Frá þeim tíma hef-
ir þáttur þeirra í borgarmálum verið á einn veg, að
brjóta niður meirihluta Sjálfstæðisflokksins, rægja
stjóm höfuðborgarinnar og ófrægja á allan hátt. Þess
ættu Reykvíkingar að vera vel minnugir.
Nú er hins vegar annað hljóð komið í strokkinn.
Nú er biðlað til Reykjavíkinga og reynt að telja þeim
trú um að Framsókn sé þeirra flokkur. En Reykvík-
ingar kjósa ekki endumýjun á höftum Eysteins. Þeir
kjósa ekki skattpíningarstefnu hans sem lamaði fram-
tak einstaklinga og atvinnurekstur í borginni um langa
hríð. Að dyram þeirra mun Framsóknarflokkurinn
fara bónleiður til búðar.
Alþingi kemst ve! af án þess að það skipi enn
nýr fulltrúi SÍS.
Bætt kjör
Hefir viðreisnin skert hluta stærstu launastétta
landsins, verkamanna, njómanna og iðnaðarmanna?
Nei, hún hefir þvert á móti bætt hluta þessara
stétta. Hluti þeirra af þjóðarauðnum hefir aukizt að
mun undir viðreisn. Hann jókst hins vegar ekkert und-
ir vinstri stjóm. Kaupmáttur launanna hefir einnig
vaxið um 11% síðan 1958.
Þetta era staðreyndir sem stjórnarandstöðublöð-
in hafa ekki hrakið og geta ekki hrakið.
Forsetahjónin Ásgelr Ásgeirsson og frú Dóra Þór hallsdóttir.
„Allt í vexti hvar
sem við komum“
Eins og kunnugt er af fréttum
fóru forsetahjónin, herra Ásgeir
Ásgeirsson og frú Dóra Þórhalls
dóttir, nýlega f skemmtiferð
kringum landið með strandferða
skipinu Esju. Forsetinn varð góð
fúslega við þeirri beiðni biaðsins
að segja lesendum stuttlega frá
þessu ferðalagi.
M. a. segir hann: „Það Var
alit í vexti hvar sem við kom-
um, alls staðar fjörugt athafna-
líf og framkvæmdir og ferðalag
okkar einstaklega skemmtilegt
og gott“. Hér fer á eftir frásögn
forsetans f heild:
Við lögðum af stað á afmæl-
isdaginn minn, 13 maí, og vor-
um viku í ferðinni. Á þessari
einu viku sáum við alla strand-
lengjuna, sem alltaf er skemmti
legt að líta, þótt við höfum oft
séð hana áður. En við höfum
aldrei áður farið umhverfis land
ið í einum áfanga. Þó maður
þekki þetta allt, sér maður það
alltaf í nýju ljósi. Veðrið var
alltaf brúklegt, og oft gott, og
því betra sem á leið.
Við fórum austur um og kom-
um fyrsta morguninn til Vest-
mannaeyja. Þar notuðum við
tfmann til þess að fara um all-
ar eyjarnar og út f Stórhöfða
og rifja upp örnefni og endur-
minningar. Eyjarnar eru stór-
kostlegar f björtu veðri, og það
var bjart er við vorum þar. Við
hittum ýmsa ráðamenn staðar-
ins að máli og nokkra kunn-
ingja, mest þó af handahófi,
eins og annars staðar þar sem
við komum.
Lengsta siglingin milli hafna
á þessu ferðalagi var frá Vest-
mannaeyjum til Djúpavogs. Við
höfðum fallega og stórbrotna
landsýn til fjalla og jökla austur
með landinu og sigldum nálægt
ströndinni framhjá Dyrhólaey
og Reynidröngum f Mýrdal. Þá
rifjaðist upp fyrir mér er ég
kom til Víkur fyrir 60 árum
með skipi frá Brydes verzlun-
unum, og ég fór að hugsa um
,- það, að ég mun á þessum 60
árum hafa. ferðazt með öllum
strandferðaskipum, sem hafa
siglt hér við land á því tíma-
bili. Það rifjaðist einnig upp
fyrir mér er ég var f Vík f
Mýrdal sem unglingur hjá
Gunnari Ólafssyni, innanbúðar
að kalla meðan hann Iagði sig
í hádeginu, og ég held ég muni
alla „prfsa“ frá þeim tíma enn-
þá.
Þannig sigldum við í björtu
veðri til Austurlands. Stöðugt
skipti um stórbrotna útsýn og
viðurgjömingur allur um borð,
af hálfu skipshafnar og þjón-
ustuliðs, var eins og bezt varð
á kosið, skipið gott, ferðafélag-
arnir skemmtilegir, og allt hið
ánægjulegasta ferðina á enda.
Frá þvf við komum á Borg-
arfjörð eystra og til Siglufjarð-
ar var heldur kalt og hvítt að
horfa til lands. Við höfðum
hugsað okkur að ferðast eitt-
hvað með bifreiðum milli hafna
austanlands og norðan, en af
því varð ekki, aðallega sökum
þess hversu vegir höfðu spillzt
Við komum í nýja skíðahótel-
ið ofan við Akureyri, það er
ljómandi staður, fallega og vel
settur, sléttlendi og brekkur,
skíðaland fyrir alla, aðbúð og
frágangur allur með bezta móti.
Sá staður verður áreiðanlega vel
sóttur sumar og vetur.
Á Siglufirði var ökladjúpur
snjór, það kom sér vel að vissu
leyti, því að þeir voru að búa
sig undir að Ijúka þar Skíða-
landsmótinu.
Frá Siglufirði sigldum við
beint til Isafjarðar framhjá
Skagafirði og Húnaþingi, en
þær byggðir hafa svo gott ak-
vegasamband, að flutningar
fara meira fram á landi en með
skipum.
Gaman var að koma á Vest-
firði, við þær byggðir- höfum
við haft gott samband f 40 ár.
Á ísafirði skoðuðum við m. a.
nýja byggðasafnið, sem er kom
ið í ágætt Iag og hefir eignazt
marga merka og góða muni.
Jóhann Gunnar Ólafsson, bæj-
arfógeti, sem er mikill fræði-
maður, hefir verið lífið og sál-
in f þvf öllu saman. Konan mín
heimsótti húsmæðraskólann á
Isafirði, gamla myndarstofnun.
Við fórum alls staðar f land og
ókum um kauptún og skoðuð-
um þar og annars staðar þar
sem við komum, aðallega ný-
virki og nýbyggingar, falleg fé-
lagsheimili, sundlaugar og
margt fleira. Það var allt f vexti
hvar sem við komum, allsstaðar
fjörugt athafnalíf og fram-
kvæmdir.
Við vorum svo heppin að fá
bjart og fallegt veður alla leið
frá Vestfjörðum til Reykjavík-
ur. Þetta var einstaklega
skemmtilegt og gott ferðalag,
að þræða alla strandlengjuna á
einni viku, „að sitja kyrr í sama
stað en samt að vera að ferð-
ast“. Ég hygg að slíkar ferðir
séu með þeim allra beztu, sem
fólk getur valið um, og tiltölu-
lega ódýrar.
Það væri allt of langt mál í
blaðaviðtali, sagði forseti ís-
lands, að fara að telja upp alla
þá staði, sem við heimsóttum,
nefna nöfn þeirra góðu manna,
sem við hittum að máli, eða
allt, sem okkur var sýnt. Þess
vegna hef ég aðeins stiklað á
stóru og forðazt upptalningar.
Ég vil aðeins segja það að Iok-
um, fyrir hönd okkar hjónanna,
að við erum þakklát öllu þvf
fólki, sem við urðum samferða
og hittum á hinum ýmsu stöð-
um á landinu í þessari ánægju-
legu ferð. E. Bj.
— segir forseti Is-
lands að lokinni
ferð kringum landið