Vísir - 02.07.1963, Side 4
VÍSIR . Þriðjudagur 2. júlí 1963,
aðall
........
Það þykir eigi litium
tíðindum sæta, að einn
kunnasti maður í flokki
brezkra aðalsmanna
skuli hafa verið nefndur
fyrir rétti, í málinu gegn
Ward lækni, sem sakað-
ur er um, að hafa haft
tekjur af vændi.
Og menn spyrja hversu fari
um virðingu almennings fyrir
brezka aðlinum í heild, ef menn,
sem almenningur er alinn upp
við að bera virðingu fyrir, lenda
í slíku máli sem þessu.
*
Sá maður, sem afhjúpaður
var í opinberum rétti, sem
rekkjunautur gleðimeyjar var
Astor lávarður, 55 ára gamall
maður, og var það vinkona
Christine Keeler, sýningarstúlk
unnar, sem var vinkona
Christine Keeler
Profumo fyrrverandj hermála-
ráðherra og fleiri, sem sagði
ósköp blátt áfram frá því fyrir
réttinum, að lávarðurinn væri
einn þeirra, sem hún hefði sæng
að með.
Stúlkan sem bar þetta heitir
Marilyn Rice-Davies, kölluð
Mandy, — og þetta gerðist í
íbúð Wards læknis.
Og annan mann nefndi Mandy
líka: Douglas Fairbaks. Og hún
bar það, að Astor lávarður hefði
greitt leiguna fyrir íbúð, sem
hún bjó í ásamt Christine Keel-
er,
Það hefir komið fram hjá
þeim stúlkum, sem leiddar hafa
verið sem vitni, að þær líta ekki
á sig sem vændiskonur. Þó játa
þær að hafa þegið fé að gjöf frá
hinum og þessum vinum, — og
talið ekki nema sanngjarnt að
láta Ward lækni fá fé að láni
samlega í einkalífi sem opihber-
lega.
Réttarhöldunum var frestað á
laugardag til miðvikudags í þess
ari viku.
Það er vitanlega ekki í fyrsta
sinn, sem blettur hefir fallið á
brezkan aðalmann vegna fram
komu hans, því að í þeirri stétt
sem öðrum eru svartir sauðir,
og hafa ævintýri þeirra oft orð
ið blaðamatur og vill þá fyrn-
ast yfir furðu fljótt, — en hér
er öðru máli að genga, vegna
þess að þetta hneykslismál er
tengt öðru stærri máli, máli sem
fjallar um njósnir og öryggi
landsins — eða er kannske að
eins ein hlið þess.
Mandy
almenningur
eða gjöf, en hann greiddi leigu
íbúðar fyrir Christine Keller.
En á þessu hefir almenningur
vafalaust aðrar skoðanir en
stúlkurnar láta uppi.
Þriðja stúlkan, sem átti að
bdra vitni, var Ronna Ricardo,
fyrrverandi dansmær í París, en
nú búsett í London.
rK
Hvað sem segja má um þetta
allt, — yfirheyrslur fyrir opn-
um tjöldum, furðulega hrein-
skilni hinna ungu kvenna um mál
sín — að ekki sé talað um mór-
alinn — og á þessu sé smjattað,
má vera, eins og allt er í pottinn
búinn, að það verði til góðs, að
ofan af öllum ósóma verði ræki
lega flett, með þeim árangri að
minnsta kosti, að menn í opin
berum stöðum og aðrir, sern ætl
ast til að þeir geti notið viiiðing
ar almennings, hegði sér sóma-
'
Ronna
Astor lávarður og kona hans, Bronwen Pugh, fyrrv. sýningarstúlka.
Miklar frmkvæmdir í Hveragerði
Hveragerði er ört vax-
andi þorp og standa þar
nú yfir miklar fram-
kvæmdir, svo sem hol-
ræsagerð, lagning hita-
veitu, bygging ullar-
þvottastöðvar auk íbúða-
bygginga og gróðurhúsa-
bygginga.
Blaðið átti í morgun tal við
oddvitann í Hveragerði, Teit Eyj-
ólfsson, og fékk hjá honum upp-
lýsingar um helztu verklegar
framkvæmdir, sem nú standa yf-
ir í þorpinu.
Unnið er að miklum hitaveitu-
framkvæmdum og ér þar um að
ræða framhaldsuppbyggingu á
hitaveitukerfinu, vegna svo auk-
innar byggðar. Nýlega fékkst
vatn úr mjög vel heppnaðri bor-
holu og verður tekið vatn úr
henni í þetta viðbótarkerfi. — I
Hveragerði verður ekki séð fyrir
endann á hitaveituframkvæmdum
frekar en í Reykjavík, en Hver-
gerðingar eru vel settir með nóg-
an og ótæmandi hita inni f þorp-
inu.
Þá er unnið að mikilli holræsa-
gerð og er verið að leggja síór
holræsi um þorpið, a. m. k.
tveggja kílómetra löng, auk allra
smáræsa. Er þetta í fyrsta skipti,
sem holræsagerð er tekin skipu-
lega fyrir og var það orðið mjög
aðkallandi. Framkvæmdir hófust
á miðju sumri í fyrra og mun
væntanlega verða lokið í lok júlí
í ár.
Framh. á 10. síðu.