Vísir - 04.07.1963, Side 6

Vísir - 04.07.1963, Side 6
V í S IR . Fimmtudagur 4. júli 1963. 6 Gfér réff — §>®S ei órétf Ritstjórar Ásgeir Thoroddsen og Ragnar Kjartansson Spjalhð við Hilmar Björgvins- son um ferðinn Sverrir H. Gunnlaugsson Már Gunnarsson Hvað segja jbeir, sem séð hafa múrinn? Allir réttsýnir menn gera sér ljóst að það ástand sem nú ríkjr í Þýzkalandi er algjörlega óvið- unandi og sá timi verði að koma að sameining Þýzka- lands eigi sér stað. Már Gunnarsson: Berlínarmúrinn er hryllileg- asta ytra tákn um kúgun og ófrelsi, sem ríkir f löndum kommúnista. Ég hafði að vísu heyrt mikið um hann talað og séð af honum myndir, en sjón er sögu ríkari. Borgin er klofin í tvo hluta af margra kílómetra löngum grjót- og gaddavírsmúr. Það er búið að steypa upp í glugga og dyr á margra hæðahúsum og alvopnað ir hermenn leynast á húsþök- unum til þess að enginn sleppi þá leiðina. Hvílík hejmska og grimmd hefur stjórnað valdhöfunum, sem ákváðu þetta. Með þessu móti ætlaði leppstjórn Rússa í A-Þýzkalandi að koma í veg fyr ir sívaxandi fólksflótta frá ein- ræðisskipulaginu í A-Þýzkalandi og til þess að koma í veg fyrir að þjóðir um allan heim gætu séð að stefna kommúnismans getur ekki byggt upp þjóðfélag, sem fólkið unir við Þessi múr er því verðugur minnisvarði um Framh. á bls. 13 Sverrir H. Gunnlaugsson: Eitt það fyrsta, sem útlendingar verða varir við þegar komið er til V.-Berlínar er hinn alvöru- gefni en samt einbeitti svipur og framkoma borgarbúa þegar rætt er um Berlínarvandamálið. Flest ir þessara manna eiga sárt um að bjnda eftir tilkomu múrsins þar sem um 80% af fbúum Vestur-Berlínar eiga ættingja og vini í austurhlutanum. Þegar ekið er meðfram múrn um verður tilhugsunin sú að á- standið í Austur-Berlín hljóti að hafa verið koipið á algjört vonleysis stig, til að valdhafarn ir hafi gripið til slfks örþrifa- ráðs, sem múrinn er Ekki er hægt að hugsa sér ömurlegra tákn um algjöra uppgjöf í mál- efnaflutningi kommúnista, en vjð að horfa á þennan fangelsis- vegg stærstu þrælabúða sem sagan kann að greina. Við að horfa á múrinn og sjá með eigin augum frelsi annars vegar og kúgun og ófrelsi hins vegar hlýtur sérhver maður að sannfærast um að kommúnism- inn er ekki það sem koma skal. Aðalstöðvar NATO í París heimsóttar af Varðbergsmönnum — Berlínarmúrinn skoðaður Hilmar Björgvinsson. örniur kynnisferð Varðbergs tii aðalstöðva Atlantshafsbandnlags- ins í Parfs var farin nú fyrir skömmu. Milll 30—40 ungir Varð bergsmenn úr Sjálfstæðisfiokkn- um, Alþýðuflokknum og Fram- sóknarflokknum tóku þátt í ferð- inni, en henni var framhaldið frá París til Berlínar ’ f boði Bonn- stjórnarinnar og múrinn illræmdi skoðaður. — Einn af farar- stjórum var Hilmar Björgvins- son stud. jur., en við höfum beðið Hilmar um að skýra hér nokkuð frá ferðinni og tilhögun hennar. Við lögðum upp frá Keflavíkur- flugvelli snemma mánudagsmorg- uninn þann 24. júní í flugvél frá Atlantshafsbandalaginu og flugum f einni lotu til Parísar, en þangað var komið um kl. 4 um eftirmið- daginn. Þann sama dag komu menn sér fyrir á hótelum og höfðu annan tfma til eigin ráð- stöfunar. Strax daginn eftir heimsóttum við aðalstöðvar Atlantshafsbanda lagsins þar sem starfsemi og verk efni bandalagsins voru kynnt. Ekki eingöngu hernaðarhliðin og þýðing hennar, heldur einnig sú hlið er viðkemur tækni- og efna- hagsaðstoð, svo og ýmis menn- ingarleg verkefni og mál þar að Iútandi. Voru það forstöðumenn hinna ýmsu deilda, er gáfu okk- ur þessar upplýsingar. í aðalstöðv unum hittum við fyrir menn af hinum ýmsu þjóðernum, þar á meðal menn frá Norðurlöndum, sem þar: ' gegná ýmsum ábyrgð- arstöðum. Síðari.. hluta annars dagsins héím’séttúfú:íýtð;kðaIskrif‘S,tofur A-. T. Á., þ. e. samtök um samvinnu og kynnti frarhkvæmda stjóri samtakanna starfsemina með nokkrum orðum. Daginn eftir, þ. e. á miðviku- dag, var okkur boðið til aðal- stöðva O. E. C. D. (Efnahagssam- vinnustofnunar Evrópu). Þar flutti einn mikils metinn starfsmaður stofnunarinnar, Norðmaðurinn Anderson, yfirgripsmikið og grein argott erindi og svaraði síðan fyr irspurnum manna. Komust menn þar að raun um hina gífurlegu og gagnmerku rannsóknir O. E. C. D. á efnahags- og atvinnumálum að- ildarrfkjanna, en sem kunnugt er, er Island eitt þeirra. Á fimmtudag var enn haldið til NATO byggjngarinnar, en þar flutti Mr. Lieeven, aðalblaðafull- trúi NATO, erindi um stjórnmála lega hlið bandalagsins. Dró hann upp skýra mynd af hve geysimik- ill árangur hefur náðst með stofn- un og varnarstarfi NATO. Undir- strikaði hann þá staðreynd, að eftir að Atlantshafsbandalagið var stofnað, hafa Sovétríkin ekki söls að undir sig þumlung lands og enginn vafi væri á því, að öðru vfsi væri viðhorfs í heiminum, hefði NATO ekki komið til sög- unnar. Að erindi Mr. Lieevens loknu, var haldið 20 km. út úr París til SHAPE, aðalherstjórnarbæki- stöðva Atlantshafsbandalagsins, en þar útskýrðu sérfræðingar hernaðarhlið NATO með mynd- um og erindum og svöruðu fyrir- spurnum manna. Þátttakendur áttu þess kost að ræða við yfir- mann allra herafla NATO, Lemnit zer hershöfðingja í um það bil 45 mínútur. Menn notfærðu sér Frh. á bls. 10. Gönguferð á Esju n.k. sunnudag 'f ' N. k. stmátídag efnir - - >< Heimdallur til göngu- ferðar á Esju. Lagt verð ur af stað úr Valhöll við Suðurgötu kl. 1,30 og ek ið upp að Mógilsá. Það an verður gengið auð- veldustu leiðina upp á Kerhólakamb. Áætlað er að ferðin upp taki um 2 kl. st. Vanur leiðsögu- maður verður með í ferð inni. Nánari upplýsingar fást í síma 17100. □ □ □ n n □ □ □ □ □ D □ □ □ □ □ □ □ □ □ D □ □ □ □ □ □ n □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ E3 n □ n □ □ n □ □ D □ □ □ □ n □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ n □ □ B Q Q Q Q Q □ n Q Q □ D D D D D D D D D Tilkynning til lesendn: Yfir sumartímann mun æskulýðssíðan koma út að jafnaði annan hvern fimmtudag, en ekki viku lega eins og hingað til. í september mun síðan á ný koma út vikulega. Ritstjórar.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.