Vísir - 09.07.1963, Síða 2
2
V1SIR . Þriðjudagur 9. júli 1963.
|||s§
HITINN í Reykjavik i gær
setti sinn svip á áhorfendarað-
irnar í Laugardal í gærkvöldi.
Klukkan 21 var hitinn 19 stig,
glaðasólskin og ekki vindgola.
Á áhorfendabekkjum og í stæð-
unum við austanverðan völlinn
fóru menn úr jökkunum og
jafnvel í stúkunni þar sem
skugga bar á voru menn út leik-
inn jakkalausir.
Leikmenn fóru ekki varhluta
af þessu. „Ég hef aldrei leikið
í öðrum eins hita á íslandi,“
sagði Ámi Njálsson, „eini Vals-
maðurinn á Isiandi", eins og
einhver kallaði hann, en félagar
hans ferðast um þessar mundir
um Noreg eins og kunnugt er.
Kannski hefur hitinn lamað
íslenzka liðið svo sem raun
varð á í þessum leik, hver veit?
í þessum góðviðrisleik í Laugardal
voru aðeins Helgi Dan. hinn góð-
kunni og snjalli landsliðsmarkvörð-
ur og verður ekki annað sagt en að
hann sómi sér vel í slnu gamla
sæti í liðinu. Tilraunaliðið ber
nafni sitt af þeim Sigurvin mið-
verði og Axel Axelssyni útherja,
en Hrannar Haraldsson, sem átti
að leika framvörð, var meiddur og
því ekki með. Sigurvin er mjög
sterkur, stöðvar marga sókn en
snýr ekki vörn í sókn, — boltar
frá honum eru allt of mikið út í
loftið og tilviljanakenndir, —
fimm sinnum f röð fór sending frá
honum til finnsks leikmanns. Þetta
þarf hann að lagfæra m. a. Axel
var með annan hálfleikinn, fékk
spark og var ekki með í seinni
hálfleik. Hann var „sveltur" fyrstu
26. mfn. leiksins, en þær 19 mín.
sem hann fékk bolta og bolta á
stangli gerði hann góða hluti, en
samstarf hans og Skúla h. inn-
herja var ekkert, t. d. fékk hann
aldrei bolta frá Skúla. Vörnin kom
annars vel út. Jón og Árni sterkir,
en framverðirnir eru ekki nógu
afgerandi, — það vantar Garðar
(og kannski Svein Teitsson seinna
í sumar). Þó var Björn Helgason
duglegur og vann mest allra liðs-
manna og á lof skilið. Framlínan
var slakasti hluti liðsins, — líflaus
með öllu. Kári sem kom ,inn í
seinni hálfleik breytti hér engu og
féll vel inn í deyfðina. Er greini-
legt að hér verður Landsliðsnefnd-
in í vanda og verður fróðlegt að
sjá hvemig þeir vísu menn ráða
úr þvf þegar þar að kemur.
Dómari var Haukur Óskarsson
og dæmdi hann mjög vel.
— jbp —
Heitt í Laugardal
Veður var einstaklega gott í gær, og fóru margir áhorfendur úr jökkunum vegna hitans.
Heimsmelstarinn
í stangarstökki
Það var ekki oft sem boltinvi komst þetta nálægt markinu
lilrmm imáslihnetndar
tókst að verja þrátt fyrir að hann
er meiddur í hendi eftir leik Vals
og Akraness, en þá fékk Helgi skot
frá Hermanni Gunnarssyni í hönd-
ina og varaði sig ekki á skothörku
nýliðans.
í seinni hálfleik átti Ellert
Schram allgott færi en var seinn
að sjá boltann sem rann framhjá
og til markvarðar. Finnar sóttu
sem fyrr, en hurð skall nærri hæl-
um á 21. mín. Vinstri innherji
Finna skaut hörkuskoti sem stefndi
f markhornið en Helgi varði glæsi-
Iega f horn. Enn varði Helgi er
sami maður komst í skotfæri nærri
| marki en á ská við það, mjög lag-
| lega gert hjá Helga.
Leikurinn var allur heldur slakur
I og það litla sem af viti var kom
j frá Finnum, sem voru sem fyrr of
einstaklingssinnaðir og nýttu illa
tækifærin, sem voru þeim stórlega
í hag. Beztu menn þeirra voru
Pitko, Malm, Valtonen og Niminen.
Ljósir punktar í fslenzka liðinu
Finnsko Biðið HAKA ótti stéran sigur
skilið, en varð að láta sér nægja 0:®
Ungu Finnarnir frá „Þús
und vatna landinu“ áttu
sannarlega þúsund færi á
að skora gegn hinu sund-
urlausa og illa leikandi til-
raunalandsliði, sem hrein-
Iega sprakk í tilraunaglasi
landsliðsnefndar, en ágæt
markvarzla Helga Daníels-
sonar ásamt lítilli grimmd
Finna við markið orsakaði
það, að aldrei var skorað í
leiknum, honum lauk 0:0,
sem tilraunalandsliðið má
þakka fyrir.
Landsliðsnefnd er sannarlega
ekki öfundsverð af hlutskipti sínu.
Hún hefur til athugunar álitlegan
hóp íslenzkra ungmenna, sem
leika í tveim deildum knattspyrn-
unnar, en mjög erfitt, ef ekki al-
gjörlega útilokað virðist að ná
saman 11 mönnum, sem geta bar-
izt og unnið leik saman. Sennileg-
ast verður eitt félagslið sterkasta
lausnin, e. t. v. styrkt með 2—3
mönnum, en þá er auðvitað spurn-
ingin hvaða lið það ætti að vera,
því heldur eru þau bágborin liðin
sem berjast í knattspyrnunni okk-
ar.
Finnar sóttu allmjög í fyrri hálf-
leik en tækifærin voru ekki mjög
hættuleg. Af ísienzka liðinu er það
að segja að Gunnar Felixson átti
gott færi á 31. mín. en misnotaði.
Þetta færi kom ekki eftir gott sam-
spil, heldur mistök sem áttu sér
stað hjá Valtonen miðverði.
Eftir þetta var nóg að gera hjá
Helga Dan. og langskot voru al-
gengustu aðferðirnar hjá Finnum,
flest mjög þung skot, en Helga
lamaðist alvarlega
Líklegt er nú talið að heims-
methafinn í stangarstökki, -
Bandaríkjamaðurinn Brian Stern
berg — geti aldrei framar stig-
ið f fæturna. Það voru læknarn-
ir á sjúkrahúsinu Seattle, þar
sem hinn frægi íþróttamaður
liggur, sem kunngjörðu þetta í
gær. Sternberg slasaðist á æf-
ingu í fyrri viku. Er hann við
fulla meðvitund en Iamaður frá
hnakka og niður úr og er lítil
von um að takast megi að koma
í veg fyrir lömunina. Sjálfur
var Sternberg í góðu skapi og
tók þessum alvarlegu fréttum
með hetjumóði. Hann ræddi lft-
illega við foreldra sína á laugar-
daginn og sagðist fullviss um
að hann næði sér fullkomlega.
Á malarskóm
d grasvelli
Það vakti furðu margra á-
horfenda hve illa leikmenn ís-
lendinga stóðu á vellinum, voru
sí og æ dettandi og virtist ekki
þurfa hið minnsta tilefni til. Þó
var völlurinn þurr og góður,
enda ekki rigningardropi fallið
á hann um daginn.
Við skruppum niður í bún-
ingsklefa í hléinu og hittum
Axel Axelsson útherja og til-
raunamann þar fyrir. „Jú, ég
er á malarskóm,“ sagði hann.
„Við leikum alla okkar leiki á
möl f 2. deild, og það er hæg-
ara sagt en gert að eiga gras-
skó að auki, sem kosta um 1100
krónur“.
Það voru fleiri en Axel á
malarskóm, og enn aðrir á lé-
Iegum grasskóm. Þetta er nokk-
uð sem athuga þarf fyrir Ieiki
sem þessa. Illa skæddir leik-
menn geta vart náð árangri og
þannig er með allan undirbún-
ig undir leik. Honum er ábóta-
vant.