Vísir - 09.07.1963, Side 6
6
VISIR . Þrföjudagur 9. júlf 1963.
„Erum stolt af að vera
af íslenzkum ættum44
Hinlr stóru hópar Vestur-ís-
lenðinga, sem sótt hafa okkur
hedm f sumar, eru nú senn á
förum. Á undanfömum dögum
hafa þeir ferðazt um landið vítt
og breitt, og er nú komið að því
að kveðja vinl og frændur, sem,
Vestur-fslendingamir hafa hitt
Og kynnzt hér. Og nú þegar
þetta fólk, sem lagt hefur á sig
dýrt og langt ferðalag alla leið
til lslands, f þeim tilgangi ein-
um að sjá Iandið sem foreldrar
þeirra og frændur era fæddir í,
heldur á brott, þá er ekki úr
vegi að forvitnast um hversu
því hefur lfkað — hvað það hef
ur um förina að segja.
Á miðvikudag hittum við að
máli tvo vestur-fslenzka bræður
frá Kanada, og f dag ræðum við
við hjón, komin eins bg fleiri
frá Winnipeg.
Þau heita Kenneth og Helga
Porter, en Helga er af íslenzk-
um ættum. Kenneth er hins veg
ar af brezkum uppruna. Helga
er döttir Einars Jónssonar og
Sólveigar konu hans, sem ættuð
er af Suðurlandi, óg á hún
mikinn fjölda ættingja hér.
LANGÞRÁÐUR
DRAUMUR RÆTIST.
„Foreldrar mínir fluttu til
Kanada áður en ég fæddist, svo
þetta er f fyrsta skipti sem ég
kem hingað. Hins vegar töluðu
þau oftast fslenzku á heimilinu.
Þar lærði ég málið og frá þeim
fékk ég strax áhuga fyrir þessu
fjarlæga landi. Allt frá því ég
man fyrst eftir mér, hefur mig
langað hingað, og það var lang
þráður draumur sem rættist,
jiegar við loks komumst hingað
nú f byrjun júní".
Ken, maður hennar, sem er
borgarráðsritari Winnipegborg-
ar, játaði að hann hefði ekki
haft mikla hugmynd um ísland,
fyrr en hann kynntisl konu
sinni, og þar sem hún væri með
Island á vörunum daginn út og
daginn inn heima f Kanada,
komst hann ekki hjá þvf að
leggja orð f belg og fá áhuga.
HOSAVÍK og húsavík.
„Það fór svo, að mig langaði
að sjá þetta mikið um talaða
land, og ekki sízt Helgu vegna
ákváðum við loks að leggja
land undir fót.
?/ðai
iandið' fívert ög' ehdilangt, séð
að sjálfsögðú Gullfóss og Þing-
velli, farið austur um land, að
Mývatni, til Húsavíkur og Ak-
ureyrar og landleiðis þaðan til
Reykjavfkur. Mér var sérstak-
lega umhugað um að komast til
Húsavikur, get ég sagt þér.
Þannig er mál með vexti, að f
Manitoba fylki eru mýmargir
staðir nefndir eftir íslenzkum
stöðum, en einn þeirra heitir
einmitt Húsavík. Það er lítið og
afskekkt þorp, í hálfgerðri ein-
angrun, og oftast er talað um
Húsavík í grfni meðal okkar f
Kanada, og þegar við höfum
talað um að fara til íslands, við
Helga, þá hefur fólk sagt: „Því
farið þið ekki og heimsækið
Húsavík?" Þykir þetta mikill
brandari í Kanada. Ég hafði
heyrt að Húsavík væri á norð-
urkjálka íslands og bjóst satt
að segja við þvf að það væri
afskekkt þorp, eins og okkar
Húsavík ? Kanada.
Mér var því sérstaklega um-
hugað að komast þangað, þó
ekki væri nema til þess eins að
geta sagt að ég hefði komið til
Húsavfltur. En þegar ég virki-
lega kom þangað, þá blasti við
mér önnur sjón en ég hafði
vænzt. Þar er allt í geysilegum
uppgangi og ég varð stórhrif-
inn af þeim myndarskap, sem
þar rfkir.
Og í rauninni erum við hjón-
Rabbað við Vestur-
íslendingana, Ken
og Helgu Porter
in stórhrifin af þeim myndar-
skap, sem hér er alisstaðar og
á öllum sviðum".
Og Helga grípur inn í:
„Hér er allt dásamlegt, land-
ið og fólkið. Við Vestur-íslend-
ingarnir f Kanada erum yfirleitt
stoltir af því að vera af íslenzk-
um ættum og státum okkur af
þvf. En eftir að hafa komið
hingað og verið hérna, er ég
enn stoltari en fyrr. Að sjálf-
sögðu hafði ég gert mér land
og fólk í hugarlund,-lesið lýs-,
ingar og séð 'myndfr; en-"það :gr,
þó aldrei á við það ‘áð' siá hlöt-
ina með eigin augum. Ég hélt
líka að hér væri kaldara en raun
er á. í einu orði: Ég hef sfzt
orðið fyrir vonbrigðum".
MEST HRIFINN AF
BÓKAÁHUGANUM.
„Og maðurinn minn hefur
orðið sérstaklega hrifinn af
einu hér, og það eru bækurnar.
Bókabúðirnar eru á hverju götu-
homi og við höfum enn ekki
komið á það heimili, þar sem
ekki hafa verið fyrir stórar hill-
ur fullar af bókum“.
„Já, já, það er „amazing“,“
skýtur eiginmaðurinn inn í.
„Okkar álit beggja", segir Ken,
„er, að ísland, náttúrufegurðin
og landslagið allt sé svo sér-
kennilegt, að það eigi engan
sinn líka. í rauninni er fólkið
hérna lfka mjög sérkennilegt,
svo ekki sé talað um lifnaðar-
hætti. íslendingar hafa „graci-
ous way of living", mundi ég
segja. Hér er hraðinn ekki eins
mikill og annarsstaðar, hér ligg-
ur mönnum ekki eins mikið á,
eins og t. d. hjá okkur í Kan-
ada. Hins vegar býst ég við að
það komi fljótlega. Þess sjást
merki hér f Reykjavík.
„Annars skil ég ekki“, heldur
hann áfram, „hvernig stendur
á hinum miklu fólksflutningum
hingað til Reykjavfkur. Mfn
skoðun, eftir að hafa ferðazt
um landið, er sú, að flestir stað-
ir séu fegurri en einmitt hér í
höfuðstaðnum“.
„En þú sem borgarráðsritari
og maður sem starfar f þjónustu
stórrar borgar — hvað myndir
þú segja helzt um Reykjavík?"
„Það, sem vekur mesta at-
hygli mína, er hinn mikli fjöldi
sambýlishúsa í bórginni. Miðað
við fólksfjölda eru sambýlishús-
Framh. á bls. 5
□
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
O
D
a
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
□
D
D
;D9q
D f
D
D
□
D
D
n
o
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
n
D
D
D
D
D
D
Auto - lite kraftkerti
í allar tegundir véla.
Stórlækkað verð.
Kraftkerti á kr. 25.75.
NÝ GERÐ
E». JÓNSSON & CO.
Brautarholt 6
Símar 19215 15362.
n.Tfpfv
Rúmgóður 5 manna fjölskyldubíll fyrir að-
eins 145 bús. kr. Afgreiðsl? í júlí, ef pant-
að er strax. Kynnist kostum FORD-bílanna
UMBOÐIÐ SIMAR 22469 - 22470
SVEIIMIM
h'Em