Vísir - 12.07.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 12.07.1963, Blaðsíða 3
Frmleiða eingöngu skorpulausan ost Mikið er að gera þessa dag- ana hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi við framleiðslu á skorpulausum osti, sem m. a. er seldur mikið til útflutnings. Fréttamaður og ljósmyndari Vfsis litu sem snöggvast inn í ostagerðina I gærmorgun og hittu þar að máli einn af verk- stjórunum Guðmund Jónsson, sem gekk með þá um húsa- kynnin og sýndi þeim það helzta, sem var þar að sjá. Þessa dagana er það eingöngu skorpulaus ostur, sem Mjólkur- búið framleiðlr, en á vorin og haustln framleiðir Mjólkurbúið sjö tegxmdir af osti. Sjálf ostaframleiðslan hefst í geysístórum körum sem taka um það bil 4 þúsund lftra af mjólk hvert. í þessum körum er mjólkin blönduð mjólkursýru- gerlum og hleypt, einnig er hún hituð upp í 3 klukkustundir. Að því búnu er mjólkin látin renna í ílát sem síar ostefnið frá mysunni. í ílátunum er ostur- urinn pressaður og látinn i form sem hann stendur klukkustund f, eða þangað til hann er kæld- ur. Eftir að kælingu lýkur er osturinn fluttur yfir í saltpæk- ilshúsið, þar sem hann er geymdur í pækli þrjá sólar- hringa. Og loksins, eftir að ost- urinn hefur verið geymdur f rúma viku við 20 gráða hita og aðrar fjórar vikur í 10 til 12 gráðu hita, er hann tilbúinn til sölu. Tvær stúlkur vinna við að pakka ostinum. Einn af starfsmönnum ostagerðar Mjólkurbús Flóamanna í ostageymslunni. !

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.