Vísir - 12.07.1963, Qupperneq 3
Frmleiða eingöngu skorpulausan ost
Mikið er að gera þessa dag-
ana hjá Mjólkurbúi Flóamanna
á Selfossi við framleiðslu á
skorpulausum osti, sem m. a. er
seldur mikið til útflutnings.
Fréttamaður og ljósmyndari
Vfsis litu sem snöggvast inn í
ostagerðina I gærmorgun og
hittu þar að máli einn af verk-
stjórunum Guðmund Jónsson,
sem gekk með þá um húsa-
kynnin og sýndi þeim það
helzta, sem var þar að sjá.
Þessa dagana er það eingöngu
skorpulaus ostur, sem Mjólkur-
búið framleiðlr, en á vorin og
haustln framleiðir Mjólkurbúið
sjö tegxmdir af osti.
Sjálf ostaframleiðslan hefst í
geysístórum körum sem taka
um það bil 4 þúsund lftra af
mjólk hvert. í þessum körum er
mjólkin blönduð mjólkursýru-
gerlum og hleypt, einnig er hún
hituð upp í 3 klukkustundir. Að
því búnu er mjólkin látin renna
í ílát sem síar ostefnið frá
mysunni. í ílátunum er ostur-
urinn pressaður og látinn i form
sem hann stendur klukkustund
f, eða þangað til hann er kæld-
ur. Eftir að kælingu lýkur er
osturinn fluttur yfir í saltpæk-
ilshúsið, þar sem hann er
geymdur í pækli þrjá sólar-
hringa. Og loksins, eftir að ost-
urinn hefur verið geymdur f
rúma viku við 20 gráða hita og
aðrar fjórar vikur í 10 til 12
gráðu hita, er hann tilbúinn til
sölu.
Tvær stúlkur vinna við að pakka ostinum.
Einn af starfsmönnum ostagerðar Mjólkurbús Flóamanna í ostageymslunni.
!