Vísir - 12.07.1963, Page 9

Vísir - 12.07.1963, Page 9
VlSIR .. i Laugardagur 13. júlí 1963. >f Fyrir rúmlega sextíu árum bauð Sigurður Johnson, fæddur að Amhúsum á Skógarströnd, sig fram sem sjálfboðaliða til að berjast gegn Búum í Suður- Afríku. Þar var hann í njósna- og lögregludeild um þriggja ára skeið, en nú 60 árum síðar kom hann til íslands í fyrstu heim- sókn sína frá því er hann yfirgaf iandið árið 1888. — Það hefur mikil breyting orðið hér á öllu, sagði Sigurður. -— Raunar var ég svo ungur þeg ar ég fór héðan, bætti hann við, að ég man harla óljóst hvemig hér var umhorfs. Þó man ég vel eftir ýmsu að heiman. Ég man eftir kletti fyrir ofan bæinn á Bíldhóli, þar sem ég var um 2ja ára skeið. Kletturinn hét kastal inn, furðuklettur. Ég man líka þegar við lögð- um af stað í ferðina vestur um haf. Man eftir þvi þegar við kom um til Narfeyrar, en þar átti amma mín heima. Ég man þegar þau kvöddust pabbi og hún. Ég man lfka þegar við komum til ísafjarðar og við fórum í land til að kveðja systur pabba. Hún hét Ólöf. Hvað þeim bjó í brjósti gerði ég mér ekki grein fyrir, en fann samt að þetta var mikil örlagastund. Ég kveið ekki fyrir ferðinni, sei sei nei. Var hlutlaus með öllu og fannst sjálfsagt að taka því sem koma skyldi. En mikil und- trr fannst mér til um skipið ég gat. Ekki lærði ég neitt nema það sem pabbi kenndi mér.Skóli var þá enginn til i byggðarlag- inu. Hann var ekki byggður fyrr en ég komst yfir skólaskylduald ur. Þegar ég var 11 ára gamall var ég sendur að heiman, send- ur til snúninga á búgarði. Þar bjuggu enskir. Var hjá þeim til 15 ára aidurs. Mjólkaði kýr og var í ýmiskonar snatti, bæði úti og inni. Ævintýralöngun. — Þú fórst í Búastríðið. Hvað kom þér til þess? — Ævintýralöngun. Ekkert annað. Mig langaði ekkert til að drepa menn, né heldur til að láta drepa mig. Langaði bara til að komast eitthvað úr tilbreyting- arleysinu, eitthvað út í heim- inn. Eitthvað þangað sem eitt- hvað gerðist. Suður-Afrlka var ekki verri en hvað annað. Ég var á 20. aldursári við skógarhögg I Norðaustur-Mani- toba. Það var um miðjan vetur. Þá las ég i blaði áskorun um að menn gerðust sjálfboðaliðar í Bretaher gegn Búum. Ég hætti við skógarhöggið og gaf kost á mér til Búastríðs. Það var samt ekki andskotalaust, því ég þurfti að fara 50 kílómetra vegalengd fótgangandi hvora leið til að láta innrita mig. Spáð að myndi farast — Var fljótlega lagt af stað úr því? — Vorum fyrst við heræfing- ar I Ottawa um 2ja mánaða 5n $ * ' & - ’ . ■ J ‘ í *■ ~ , ^ ' 5 *.' ;* pR ■ * 'T £ mmm Sigurður Johnson. breytingu búnir. Höfðum aðeins eitt teppi hver og svo yfirhafn- irnar sem við breiddum ofan á okkur. En það dugði hvergi nærri til. Seinna var bætt úr þessu. Mataræðið hefði getað verið betra. Stundum var matarskort- ur í herbúðunum, en þó aldrei til langframa né tilfinnanlegur. Aðalfæðan var kex og nauta- kjöt, ástralskt, í dósum. Það má hver sem vill kalla það ljúf- fengt fyrir mér. En ég fæst aldrei til að gera það. Þorstinn var verstur. Hann ætlaði að gera út af við okkur. Það litla vatn sem við fengum daglega til drykkjar var fljótt að ganga til þurrðar. Úr því var ekki um neitt að ræða nema bíta á jaxlinn og þrauka. Að þrauka var fyrir öllu. Flutningar allir voru mikium erfiðleikum bundnir. Einustu flutningatækin voru nautgripa- kerrur og 12—16 uxar — eða þá múlasnar — fyrir hverju æki. Þetta var hroðalegur seina gangur, ekki sízt ef koma þurfti særðum mönnum í sjúkraað- gerð. Hernaður var annar þá heldur en hann er nú. Nær hungurmorða. — Er þér nokkurt einstakt atvik sérstaklega minnisstætt? — Það væri helzt það þegar ég var sendur til að njósna um nautgripahjörð sem stolið hafði verið frá okkur. Það var langt um liðið frá þvf er hjörðinni hafði verið stolið og það vænti enginn neins árangurs af eftir- grennslan. Það var hins vegar formsatriði sem sjálfsagt þótti að uppfylla. Ég fékk mér Búa Islendingur í u „h lyvil ihu tí í^t*!** Tií sem flutti okkur. Ég hafði aldrei séð skip áður. Minnir að það héti Copland. Með því fórum við beint strik frá ísafirði til Skotlands. Basl og óvissa. — Hvað tók við í nýju heim- kynnunum? — Eitthvað áþekkt og hjá öðr um innflytjendum, basl og ó- vissa til að byrja með. Ekki um annað að ræða en duga eða drepast. Fyrstu sex vikurnar vorum við í Winnipeg, en flutt- um þá til Saskatchewan. Pabbi fékk lán og byrjaði búskap með tvær kýr. Seinna keypti hann naut. Það gekk erfiðlega að afla fóðurs fyrir kýrnar fyrsta vetur- inn, en þær skrimtu. Pabbi kom sér upp moldarkofa sem við bjuggum í og hann var áfastur við fjósið. Það var veggur á milli. Við svipuð kjör, og þessi, bjuggu yfirleitt innflytjendur á þessum árum, sem komu snauð- ir vestur og áttu engan að. Ég man ekki til að við liðum skort né að okkur væri kalt í þessu hreysi. Við sættum okkur við hlutskipti okkar svo sem vera bar. Seinna gekk þetta betur. Pabbi var góður smiður bæði á járn og tré. Hann var líka lista- skrifari. Þetta hjálpaði honum nokkuð í lífsbaráttunni, en hins vegar var hann mjög farinn að heilsu eftir langvarandi strit. — Hvað gerðir þú sjálfur? — Hjálpaði til eftir því sem skeið en að því búnu lögðum við af stað með gripaskipi suð- ur til Afríku. Því hafði verið spáð áður en við iögðum af stað að farkost- urinn okkar myndi missa mann á hverjum degi fjóra fyrstu dagana, en á fimmta degi myndi það farast með rá og reiða. Það sló ofsalegum óhug á mannskapinn þegar maður dó á hverjum degi fjóra fyrstu dag- ana. Og ég held að fimmta dag- inn hafi engum verið rótt — nema mér — mér kom aldrei til hugar að trúa þessari vit- leysu. — Hvernig fór? — Nú skipið hélt leiðar sinn- ar og það tók 29 daga að kom- ast á leiðarenda. Hitinn var af- skaplegur, einkum i kringum miðjarðarbauginn. Við lágum í einni kös í skipinu og það var lítið hugsað um að gera okkur Iífið þægilegt eða skemmtilegt. Öðruvísi farið með hermenn þá Sker sig á háls Áfangastaður okkar var Cape Town. Há fjöll umlykja borgina. Stórkostleg og tíguleg innsigl- ing. Strax á 2. degi vorum við sendir í opinni kolalest til Transvaal. Aðbúnaður var slæm ur, hitinn illþolandi. Margir veiktust á leiðinni og ég man sérstaklega eftir einum sem fannst hann ekki geta þolað all- ar þessar hörmungar. Hann skar sig á háls. Meðal þeirra sem veiktust var ég. Það greip mig samt ekkert óyndi. Einhversstaðar á leiðinni vor- um við látnir halda kyrru fyrir í 3 vikur til heræfinga. Síðan var haldið áfram að víglínunni og þar hófst sjálf herþjónustan. — Tókstu þátt í orustum? — Nei, ég held að ég hafi sloppið úr þessari styrjöld án þess að úthella blóði nokkurs manns og án þess að mínu blóði væri úthellt. Ég var settur i deild með hjarðmönnum og lögregluþjón- um frá Suður-Albertafylki og Saskatchewan. Það voru allt hraustir drengir hreinasta mannval. Þetta var riddaraliðs- sveit og við fengum njósnahlut- verk í hendur. Vorum sendir á undan herliðinu til að kanna hvar varnir Búanna væru veik- astar fyrir og auðveldast að sækja þá heim. Þó ég segi sjálf- ur frá held ég að þessi sveit okkar hafi verið afburða góð. Betri hestamönnum hefi ég ekki kynnzt. í hjáverkum grófum við skotgrafir. Misþyrmdu Svertingjum. — Kynntistu Búum? — í þau þrjú ár sem ég var í herþjónustu I Transvaal, kynnt ist ég Búum nokkuð. Samt of lítið. Mest eftir að friður hafði verið saminn við þá á miðju sumri 1902. Eftir það vann ég við löggæzlu og hafði meiri eða minni afskipti af þeim. Þeir voru eins og fólk er flest, prúð- ir f framkomu, en mér virtist Þeir næsta Iítið upplýstir. Mest gallinn á þeim — í mínum aug- um — var sá hvað þeir fóru illa með svertingana. Þeir mis- þyrmdu þeim meir en skepnun um. Hroðaleg meðferð. Samt töldu þeir sig vera kristna. Annars voru Búar miklum hæfiieikum búnir, afburða reið- menn og skyttur að sama skapi. Mjög góðir skæruliðahermenn. í upphafi stríðsins höfðu þeir í fullu tré við Bretana. Höfðu allt aðrar bardagaaðferðir. Lögðu aldrei til stórorustu, en unnu Bretum þeim mun meira ógagn í skæruhemaði og smá- áhlaupum. Það var ekki fyrr en Bretar tóku sjálfir upp sömu baráttuaðferð að þeim tók að vegna betur. Það voru Ástralfu- menn og Kanadabúar sem kenndu Bretum skæruhernaðar- aðferðir. Þorstinn var tilfinnanlegastur. — Voru fleiri Islendingar en þú sem tóku þátt í styrjöld- inni gegn Búum? — Við vorum fjórir, sem ég vissi um. Einn þeirra særðist í orustu og dó af völdum sára sinna. — Hvernig var daglegt líf ykkar á þessum slóðum? — Ofsalegur hiti á daginn. Hins vegar hefur mér aidrei orðið eins kalt á nóttunni eins og þar. Fyrst í stað vorum við illa undir þessa miklu hita- til fylgdar sem var túlkur minn og negri fyrir leiðsögumann. Það var öll hersveitin. Ég og Búinn voru ríðandi en negrinn brokkaði berfættur á undan. Þindarlaus að því er virtist. Vistir höfðum við meðferðis til 3—4 daga. Við vorum 9 daga f ferðinni og nær hungurmorða þegar við komum til baka. Varð almáttugur. Við þurftum að fara yfir hin- ar verstu torfærur, ýmist í gegnum illfært kjarr eða yfir fjöll. Einhvern veginn hafðist þetta um siðir. Mér er það í fersku minni að á einum stað í kjarrlendi snar- stanzaði negrinn, augun rang- hvolfdust í höfðinu á honum. Hann fómaði höndum og rak upp angistarvein. Það var engu Iíkara en hann stirðnaði upp og hann fékk sig ekki hreyft af skelfingu. Fyrir framan hann reigði eiturslanga sig til höggs og hver sekúnda sem leið gat riðið á lífi hans. Ég held að á þessu augnabliki hafi ég verið viðbragðsfljótastur á ævi minni. Ég hafði riffilinn ævinlega til taks og i þetta sinn var ég fljótari en venjulega að gripa til hans, miða og skjóta. Ég hæfði höggorminn i hausinn á sömu andrá og hann ætlaði að höggva negrann. Hafi ég nokkm sinni öðlast tiltrú og aðdáun nokkurs manns um æv- ina var það negrans. Eftir þetta var ég ekki framar maður I aug- Framh. á bls. 10.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.