Vísir - 17.07.1963, Síða 4
V í S I R . Miðvikudagur 17. júií 1963,
r
4
Lagarfoss, fánum skrýddur í glampandi sól. Myndin er tekin í Reykjavíkurhöfn af Ijósm. Vísis, Braga Guðmundssyni.
A skemmtisiglingu
Á s. 1. sumri átti ég völ á
siglingu með einhverju af skip-
um Eimskipafélags íslands. Ég
vissi, að hér hafði gefizt óvenju
lega gott tækifæri, sem vert
væri að notfæra sér vel. Eftir
að hafa litið á áætlanir skipa-
félagsins, var ég ekki í minnsta
vafa um hvaða Ieið ég myndi
velja: Siglingu til nokkurra
Eystrasaltshafna, en hápunktur
hennar var viðdvöl í Leningrad.
Mér var ekki mögulegt að fara
fyrr en seinni hluta sumars, og
þá vildi einnig svo heppilega til,
að Lagarfoss átti einmitt að
sigla þessa leið. Ákveðið var að
þiggja boð Eimskipafélagsins að
fara þessa ferð með skipinu.
Eftir að þetta varð fastmælum
bundið byrjaði ég að heyra utan
að mér ummæli manna, sem
annað hvort höfðu verið far-
þegar með skipinu eða starfað
um borð í því. Voru ræður
þeirra allar á einn veg, mjög
lofsamlegar í garð skips og
skipsstjórnar. Sumir gengu jafn-
vel svo langt að segja, að það
væri skemmtilegra að sigla með
Lagarfossi en Gullfossi. Gullfoss
h'ktist meira fljótandi skemmti-
stað, sagði fðlk, en samband
fólks á Lagarfossi væri persónu
legra og þar af leiðandi skemmti
legra. Veizlumatur á borðum,
samræður fjörugar, klefar rúm-
betri en á Gullfossi og allt I
þeim dúr. Fannst mér stundum
verða lítið úr glæsilegasta skipi
fslenzka kaupskipaflotans. At-
hugasemdirnar voru þó alls ekki
meintar á þann veg, þegar betur
var að gáð. En augljóst var, að
Lagarfoss hafði skapað sér sér-
staka tryggð þeirra, sem með
honum höfðu siglt.
Ég og kona mín, sem einnig
var með í ferðinni, vorum undir
það búin að verða fyrir tals-
verðum vonbrigðum eftir allt lof
ið sem borið hafði verið á skip
og skipstjórn, en við vildum
gjarnan í tilhlökkun okkar
leggja fullan trúnað á.
Við komum síðla kvölds um
borð í skipið í Keflavík.
Auðvitað var gengið stytztu
leið til klefans. Og viti menn.
Hann • var raunverulega stærri
og vistlegri en við höfðum búizt
við. Á borði var ávaxtaskál og
vingjarnleg sending af hinu sér-
staka tilefni ferðarinnar frá hin-
um nýskipaða framkvæmda-
stjóra, Óttari Möller, rauðar rós
ir og franskt kampavín. Það gat
ekki betra og s'kemmtilegra ver
ið. Þjónustuliðið lýsti sig reiðu-
búið að aðstoða í hvívetna og
sýndi elskulegri lipurð og dugn-
að en maður hafði vanizt í glæst
ari sölum. Daginn eftir kynnt-
umst við morgunverðarborðinu
með eggjum, svínafleski, ávaxta.
safa, grapealdinum, ostum og
ýmsum brauðtegundum, auk
margs annars. Og hádegisverð-
urinn reyndist vera steiktar end-
ur ásamt tveimur öðrum réttum.
Skipstjóranum, Birgi Thorodd-
sen, tókst þegar að halda uppi
fjörugum samræðum milli far-
þeganna, sem annars þekktust
ekki allir enn sem komið var.
Okkur varð æ betur ljóst, að
það sem okkur hafði verið sagt
um siglingu á Lagarfossi, var
ekki nema það sem satt var. Við
komumst einnig að raun um, að
við vorum ekki ein um þessa
ánægjulegu uppgötvun. Farþeg-
ar voru undantekningarlaust á
sama máli.
Enda þótt ég hefði áður kom-
ið á nær allar hafnir landsins
oftar en einu sinni, var ferðin
meðfram ströndinni og inn á
helztu hafnirnar jafnskemmtileg
og fróðleg og væri hún farin í
fyrsta sinn. Alltaf er eitthvað
nýtt að sjá.
Birgir Thoroddsen yfirgaf Lag
arfoss á Eskifirði og við skip-
stjóm tók Ásgeir Sigurðsson,
fyrsti stýrimaður hans. Með Ás-
geiri var Inga kona hans. Far-
þegum hafði nú fækkað, svo að
við urðum aðeins sex talsins,
sem lögðum frá íslandi. Annars
hafði farþegarýmið verið full-
skipað í hinum ferðum sumars-
ins. Nú var tekið að líða að
hausti, en þá fækkar þeim, sem
vilja leggja upp í lengri sjóferð-
ir. Hinir farþegarnir voru Marta
og Magnús Magnússon, sím-
stjóri í Vestmannaeyjum og
Bergþóra og Lárus Ársælsson,
útgerðarmaður, einnig frá Vest-
mannaeyjum. Konur nokkurra
skipsmanna voru einnig með í
ferðinni.
Auk skipstjórans og konu
hans kynntumst , við einkum
Mágnúsi Sigurðssyni, 3. stýri-
manni og Björgu konu hans.
'Mér er óhætt að fullyrða, að far
þegar og skipsmenn hafi haldið
hópinn til ánægju fyrir alla.
Skipsmenn höfðu stundum á
orði, að við værum ekki heppn-
ustu farþegarnir, hafnirnar væru
ekki allar spennandi. Persónu-
lega snerti það mig ekki hið
minnsta, að hætt var við að
sigla til Hamborgar, og að við-
staðan í Kaupmannahöfn var
ekki nema nokkrar klukkustund
ir. Leningrad í Rússlandi og
Aabo í Finnlandi voru stærstu
borgirnar, sem við gátum skoð-
að verulega. Aðrar hafnir voru
smærri bæir, Kalmar í Svíþjóð,
Vaasa, Jacobsstad og Kotka i
Finnlandi og Ventsspils í Lett-
landi. Það er auðveldara að
kynnast smábæjunum en stór-
borgunum. Kynnin af smábæj-
unum verða að mörgu leyti per
sónulegri og hlýlegri en jafn-
löng kynni af stórborginni. Það
skptir miklu máli.
Heimsóknin til Sovétríkjanna
var megintilgangur þessarar ferð
ar okkar og er sérstakur kapí-
tuli, sem ég leitaðist við að gera
grein fyrir hér f Vísi stuttu eft-
ir heimkomuna. Má vera að mér
hafi orðið fullstarsýnt á fólk-
ið og lifnaðarhætti þess, en ég
man nú betur en áður eftir sík-
inu í Leningrad, þar sem Ras-
putin var drekkt, heimkynnum
Pushkins og Dostojevskis, ýms-
um merkilegum sögustöðum
rússnesku byltingarinnar, að-
setri Lenins og fleiru þess hátt-
ar. Það er sem sé ljósara en
áður hve rómantískari Lenin-
grad er vegna sögu sinnar og
sérstæðs stfls en ljóst er, þegar
reynt er að skyggnast eftir ein-
hverjum votti þess fyrirmynd-
arríkis, alhliða forsjónar og
skipulagningar, sem okkur er
sagt að þarna hafi myndazt.
Það er ánægjulegra að fletta
myndabók frá Leningrad og
3 hestöfl
5
5V2 -
10 -
rifja upp heimsóknina nú en
fyrir fáeinum mánuðum. En
fagrar nútímabyggingar Finna
og alhliða snyrtimennskan í
Kalmar hafa alltaf verið jafn-
augljós.
Þá er það einnig jafnaugljóst,
að dvölin á Lagarfossi, siglingin
og viðurgerningur allur er með
eindæmum góður.
Landsýn f Noregi, sigling um
Eyrarsund, framhjá Kaupmanna-
höfn á útleið í glampandi sól-
skini, Eystrasaltið í mánaljósi
og skerjagarðurinn eru eftir-
minnilegir áfangar á nær
tveggja mánaða siglingu.
Farþegi jafnlangan tíma
komst ekki hjá þvf að kynnast
samferðarmönnum sfnum tiltöiu
lega vel.
Ég hef alltaf verið sannfærð-
ur um að sjómenn væru fróðir
menn með fjörmikla frásagnar-
gáfu. Þessi sannfæring beið ekki
hnekki alla ferðina. Þvert á
móti. Áhugamálin voru jafn-
mörg mönnunum og reifuð og
rædd á þann hátt, að skemmtun
var á að hlýða. Um hina far-
þegana þarf ekki að fjölyrða.
Viðkynning við þá var hin
ánægjulegasta. — Þjónustuliðið
með brytann í broddi fylkingar,
sem í daglegu tali var nefndur
Balli, gaf sér ætíð góðan tíma
til að aðstoða farþegana á allan
hátt.
Lagarfoss er ekki eina skip
Eimskipafélagsins, sem hefur far
þegarými sömu stærðar. Skipin
sigla til helztu hafna á megin-
landi Evrópu, til írlands og
Bandaríkjanna. Ferðirnar eru
prýðilegar hvíldarferðir, auk
þess að vera fróðlegar og
skemmtilegar.
15 hestöfl
18 -
28 -
40 -
Viðgerða- og varahlutaþjónusta,
*
Gunnesr Asgeirsson hff.
JOHNSON
Utanborðsmóforar
eftir Ásmund Einarsson
Suðurlandsbraut 16 . Sími 35200.