Vísir - 17.07.1963, Síða 5
VÍSIR Miðvikudagur 17. júlí 1963.
Odldciý E.
Framhald aí bls 6.
og var þá jafnan hrókur alls fagn-
aðar. Nutu sín þá hvað bezt -per-
sónutöfrar hennar og lífsstreymi.
Hún var fjölræðin og viðræðugóð,
og frásagnir hennar blásnar lífi
og hugmyndaflugi, hvort heldur
hún var að lýsa löðurhvítum sönd
um Kínastrandar, skútum með
blóðrauð segl siglandi á jaði-
grænu hafi, stemningu, bar sem
„fannhvít sumarský svífa fram-
hjá fölum mána“, eða einhverju
öðru úr kínversku umhverfi eða
mannlífi.
Frú Oddný var einlægur tón-
Iistarunnandi og menntaði bæði
böm sín og dótturson á sviði
tónlistar. Var jafnan mikið um
tf ilist á heimili hennar.
Útlits var hún há kona vexti og
g' jsileg, yfirbragðið bjart og
þýtt, en festulegt. Mönnum varð
ósjálfrátt ljóst, þeim er Iitu hana,
að hér var engin meðalkona á
ferð. Hún var stolt kona, og ekki
þeirrar manngerðar, að menn
þekktu hana ger við fyrsta fund.
Hún var skapfestukona og skap-
kona. Samúð hennar var rík, en
er því var að skipta, gat andúð
hennar verið jafnrík, þótt hún
flíkaði henni ekki. Sumt f fari
annarra gat hún með engu móti
fellt sig við, svo sem smásálar-
hátt, lágkúru og væmni, enda var
hún sjálf blessunarlega laus við
þessar lyndiseinkunnir. Eins og af
líkum ræður, mótaðist lífsskoðun
Oddnýjar allverulega af dvöl henn
ar í Kína. Pótt Búddhadómur,
kenningar Konfúsíusar og Lao-
Tse orkuðu sterkt á hana, hélt
hún fast við kristna trú, en hún
bar hana aldrei á torg. Hræsni og
bumbusláttur í trúmálum voru
ekki að hennar skapi.
Endi þótt líf Oddnýjar tæki
sumpart aðra stefnu, en hún sjálf
hefði helzt kosið, var hún ham-
ingjusöm kona. Er hún leit yfir
farinn veg, var margs að minnast
úr viðburðaríkri og óvenjulegri
Ævintýri lífs hennar er nú lok-
ið, sveitastúlkunnar af Álftanesi,
sem fann sinn austurlenzka töfra-
prins á Skotlandi, fylgdi honum
til landsins Ch’in, en verður í dag
lögð til hinztu hvíldar í fslenzkri
mold.
Jón Júlíusson.
Á Ólafsvík hér spölkorn frá eru
tvö myndarleg frystihús, sem
myndu að sjálfsögðu verða nýtt
fyrir Rifsbáta. Reyndar hafa ver
ið gerðir út frá Rifi 5 bátar und
anfarið, og hafa þeir allir lagt
upp í frystihúsið á Hellissandi,
svo þar verður engin breyting,
enda hagstætt fyrir báða aðila.
En þessi samvinna krefst ná-
inna samgangna, og því er Enn-
isvegurinn. sem nú er verið að
.leggja, svo mikilvægur, og þann
ig haldast þessar viðamiklu
framkvæmdir f hendur, sagði
Ársæll að lokum.
Framhald af bls. 16.
legt loforð um leyfi danskra stjórn
1 valda væri þegar fyrir hendi og
væri aðeins beðið eftir skriflegri
staðfestingu. Hann kvað Flugfélag-
j ið og vona að ekki stæði á öðrum
i leyfum, en á þeim veltur þetta flug
eins og vænta má.
i
ViðbúnaSurinn á Vogey.
Mikill viðbúnaður er í sambandi
við þetta flug af Færeyinga hálfu,
j en flugvöllurinn þar er Vogey. Flug
j brautin hefur verið endurbætt,
lendingarljósum komið upp svo og
| radiosiglingatækjum og er nú verið
I að athuga möguleika á að koma
Vogey í Telex-samband við um-
heiminn. Stöðugt er unnið að vega-
gerð í Straumey til -þess að stytta
leiðina frá flugvellinum til Þórs-
hafnar, en aðalatriðið er þó fyrir-
húguð lenging flugvallarins sjál'fs.
Undir þeirri framkvæmd er það að
Þvættingui
Rifsliöfn
Frh at bJs 9:
Verður þá byggt frystihús
hér?
— Nei, enda þess engin þörf.
'leiða siíd í rjómasósu
Fréttamönnum var í gærdag boð-
ið að skoða nýtt fyrirtæki er nefn-
ist Síldarréttir s.f. Markmiðið með
stofnun fyrirtækisins er að vinna
að niðurlagningu síldar fyrir- er-
Iendan og innlendan markað. Sfld-
arréttir hafa þegar sent frá sér
fimm tegundir af niðurlagðrj síld
og er fyrsta sendingin komin í
nokkrar verzlanir.
Sfldarréttir s.f. hafa sent sýnis-
hom að framleiðslu sinni til margra
landa og hefur framleiðslan hvar-
vetna vakið athygli, enda mikið
lostæti og engin efast um að hinar
glæsilegu umbúðir hjálpi ekki til.
Framleiðslustjórinn Axel Mogen-
sen skýrði fréttamönnum frá því
að undirbúningur að stofnun fyrir-
tækisins hafi staðið yfir í nokkur
ár. Gerðar hafa verið ýmsar til-
raunir ,sem sendar hafa verið til
rannsóknastofnana, m.a. hefur dr.
Sigurður Pálsson gerlafræðingur
rannsakað alla þá framleiðslu sem
fyrirtækið hefur sent frá sér.
Síldin er eins og fyrr segir í
fimm sósum og Iegi, þar á meðal
er síld í rjómasósu, sem ekki hefur
verið framleidd hérlendis fyrr. Sí!d-
mestu komið, hvort áframhald
verður á Færeyjaflugi því, sem
Flugfélag íslands er fyrir sitt leyti
staðráðið í að reyna í sumar, ef
ekki stendur á nauðsynlegum leyf-
um viðkomandi yfirvalda.
f
Þjóðviljinn £ morgun ontir
rosafrétt á forsíðunni undir
fyrirsögninni: Teiknaði Norð-
maður Skálholtskirkju? Gerir
blaðið þar að því skóna á gleið-
gosalegan hátt að Norðmaður,
Magnus Poulsson hafi teiluiað
kirkjuna. Vitnar blaðið í heim-
ild fyrir þessu, íslandsblað
Noregs Handels og Söfarts-
tidende sem út kom um miðjan
júní s.l.
En Þjóðviljinn gleymir að
geta um það, að ekki var blað-
ið fyrr komið út og hingað til
íslands en ritstjóri þessa ís-
Iandsblaðs, Mats Wibe Lund,
sendi öllum fslenzku blöðunum
— og Þjóðviljanum þá líka,
leiðréttingu á þessari meinlegu
villu um arkitekt Skálholts-
kirkju. Var þar tekið skýrt
fram að Hörður Bjamason
húsameistari hefði teiknað
kirkjuna.
Var mál þetta þar með úr
sögunni, enda er þetta ekki í
fyrsta skipti, sem villur má sjá
á prenti í blöðum. En einhverra
orsaka vegna þykir Þjóðviljan-
um tilhlýðilegt að gera sér mat
úr þessu mánaðargamla máli,
nú örfáum dögum fyrir vígslu
kirkjunnar, — og það þótt
blaðið viti betur. Er þar mjög
sérstæð smelckvísi á ferðinni.
in í rjómasósu mun kosta 26 kr.
£ verzlunum, en hinar tegundimar
23.50.
Eftir rannsóknum að dæma virð-
ist geymsluþol þessara síldarrétta
vera ótakmarkað, ef þess er gætt
að hitastigið sé rétt, 2—6 stig.
Auk þeirra fimm tegunda niður-
lagðrar sfldar £ sósum og kryddlög-
um, þá framleiða Síldarréttir s.f.
einnig sfldarkæfu, sem gerð er úr
síldarafskurði. Kæfur þessar eru
með margs konar bragði og án efa
eiga þær eftir að verða mjög vin-
sælar á brauð.
Niðurl agningaverksmiðja Síldar-
rétta s.f. er til húsa að Súðavogi 7.
Framkvæmdarstjóri Síldarrétta er
Ágúst Sæmundsson.
Stórfelld áæflun um
virkjun sjávarfalla
Bandarikjastjórn hefir lagt fram
við sambandsstjórnina i Kanada
stórfelldar tillögur um virkjun
sjávarfalla við Norður-Ameriku,
— og verði hafnar viðræður um á-
ætlun i þessu efni án tafar. Áætl-
aður kostnaður er einn milljarður
dollara.
Áform í þessu efni hafa verið
rædd áður en féllu niður vegna
andspyrnu í Bandaríkjunum. Nú
örlar þegar á andspyrnu meðal
republikana, sem munu hyggjast
nota málið sér til framdráttar í
næstu kosningum, með þvi að
saka stjómina um að hafa tekið
málið fyrir og gylla sem framfara-
mál, en vitandi, að aldrei komi til
framkvæmda. En sérfræðingar
þeir, sem hafa unnið að málinu,
telja sjálfsagt að ráðast í þetta.
Það er virkjun sjávarfalla í
Passama-Quaddy-flóa, sem rætt er
um að virkja, en hann er á mörk-
um Maine og New Brunswick eða
á mörkum Bandaríkjanna og Kan-
ada á austurströndinni.
Kennedy forseti ræddi £ gær
(þriðjudag) við stjórnmálaleiðtoga
og sagði þeim, að hann hefði falið
Dean Rusk að snúa sér til kana-
disku sambandsstjórnarinnar og
fara fram á sameiginlegar viðræð-
ur um málið.
Fyrir liggur skýrsla frá Udall
innanríkisráðherra, og leiðir hún í
ljós, að þarna yrði hægt að fram-
leiða raforku fyrir bandarískan og
kanadiskan markað svo næmi
einni milljón kílóvatta á t..na há-
marksnotkunar og 250.000 kíló-
vött að auki. Þá er talið, að unnt
yrði að selja þessa raforku 25% ó-
dýrara en verð á rafmagni nú á
því svæði, sem mundi njóta góðs
af virkjuninni.
Forsetinn sagði, að það væri
heillandi og freistandi tæknilegt
verkefni, að virkja sjávarföllin, og
í Frakklandi og Sovétríkjunum,
væri unnið að þessum málum, en
enn væru framkværhdir til rann-
sóknar á byrjunarstigi.
Rannsóknir á skilyrðum í fló-
anum hófust fyrst 1922.
Voraforseíi
Framhald -J bls. I.
Bandaríkjanna hér, og staðfesti
hann, að heimsókn varaforsetans
hingað væri ákveðin.
— Hins vegar er ekki búið að
ganga frá áætluninni í einstökum
atriðum. Lyndon B. Johnson vara-
forseti mun fljúga beint til Norður-
landa í þotu Kennedys forseta, og
koma hingað á leiðinni vestur.
Lendir forsetaflugvélin þá á Kefla-
víkurflugvelli, að morgni, og mun
varaforsetinn dveljast hér þar til
að miðdegisverði loknum síðdegis.
Það mun verða um miðjan sept-
ember, sem hann kemur hingað,
og er ekki nánara um þetta á-
kveðið enn sem komið er.
Suður-Afrika hefir sagt sig úr
efnahagsmálanefnd Sameinuðu þjóð
anna vegna fjandsamlegrar afstöðu
Afrikurikja.
Flogið var með 12 ára ara-
biskan dreng frá Vemen til London,
en þar verður hann Iagður i sjúkra
hús til rannsóknar, en hann er alvar
lega veikur, sennilega af völdum
eiturgass, en ratrnsókn fer nú fram
út af ásökunum á hendur Egyptum
um að hafa varpað eiturgassprenej
um á þorp i Nnrður-Yemen.
ALLTAF FJöLGAR VOIKSWAGEN
FERÐIZT í VOLKSWA3E