Vísir - 17.07.1963, Síða 8

Vísir - 17.07.1963, Síða 8
8 VÍSIR . Miðvikudagur 17. júlí 1963. VISIR Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR. Ritstjóri: Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði. 1 Iausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur). ^rentsm'ðja ^Uis. — Edda h.f. Kommúnistar og verkföllin Leiðtogum kommúnista líður alltaf einkar vel þeg- ar verkföll standa yfir, enda beita þeir áhrifum sínum eftir mætti til þess, að einhver stétt eða starfshópur sé alltaf í verkfalli. Það er líka kunnugt, að þegar verkföllin eru skollin á, gera kommúnistar allt sem í þeirra valdi stendur, til þess að hindra að samningar takist, en samtímis er Þjóðviljinn látinn undrast og hneykslast yfir því, að ekki skuli vera samið strax. Kommúnistar hafa nú leikið þennan ljóta leik í svo mörg ár, að öllum þorra fólks ætti að vera orðið ljóst, hvað fyrir þeim vakir. Þeir eru ekki að hugsa um hag vinnustéttanna eða þjóðarheildarinnar, held- ur að grafa undan þjóðskipulaginu. Þess vegna beita þeir sér fyrir vinnustöðvunum í stað þess að stuðla að friðsartnlegri lausn ágreiningsmálanna. Verkföll eru löngu orðin úrelt aðferð til þess að bæta lífskjörin. Það tapa allir á þeim. Þegar kommúnistar komu af stað verkföllunum miklu vorið 1955, var það tilræði við efnahagslíf þjóðarinnar, sem vinstri stjórnin sjálf fékk svo smjörþefinn af og þjóðin öll hefur verið að súpa af æ síðan. Allir ábyrgir forustumenn bæði vinnu- veitenda og vinnustéttanna vilja leysa kaupdeilur með samningum, án þess að til verkfalla komi, og það hefði oftast tekizt hér fljótt og farsællega, ef komm- únistar hefðu ekki spillt fyrir því eins og þeir gátu. Það er von allra þjóðhollra manna, að samkomu- lag náist framvegis um kaupgjald án þess að til verk- falla komi, og sú von hefur óneitanlega glæðzt mikið við þá útreið, sem kommúnistar fengu í Alþingiskosn- ingunum. Héðan af á að vera hægt að einangra þá smám saman í flestum greinum og gera þá áhrifa- lausa á öllum sviðum þjóðmálanna. Þau örlög hljóta að bíða þeirra hér, eins og í flestum öðrum lýðræðis- löndum, þar sem fylgið hefur hrunið af þeim síðustu árin. Minnkandi áhrif Þingstyrkur kommúnista er nú ekki orðinn beysn- ari en það, að þeir fá engan mann kjörinn í 5 manna nefndir á Alþingi hjálparlaust. Þetta ætti að draga stórlega úr áhrifum þeirra, ef Framsóknarflokkurinn hleypur ekki undir bagga með þeim í nefndarkosn- ingunum, en til þess yrði hann þá að fórna öðrum fulltrúa sínum í nefndunum. Verður að telja ótrúlegt, að Framsókn geri það, þótt raunar sé aldrei hægt að vita upp á hverju sú maddama tekur. Harmatölur Þjóðviljans um að það sé óréttlæti, að áhrif kommúnista minnki á Alþingi, munu allir þjóðhollir menn láta sér í léttu rúmi liggja. cmm Valerln Zorin hellsar Hailsham lávaröi viö komu hans til Moskvu. Samkomulag í Moskvu án griðasáttmála ? Moskvufundur þríveldanna til þess að reyna að ná samkomu- lagi um bann við tilraunum með kjamorkuvopn hófst í fyrradag. Var Krúsév sjálfur við setningu ráöstefnunnar og töldu stjórn- málafréttaritarar vestrænir, nú staddir í Moskvu, það góðs vita. Deilur um formsatriði myndu ekki verða til .tnfati hqidúr haftlij , izt handa urp að fást vi{Lyanda.- . rriálið sjálft þégar-í;staö. Bjartsýni var mikil fyrir ráð- stefnuna og við setninguna gat ekki að líta nema broshýr and- lit. Aðalmenn á ráðstefnunni eru: Averill Harriman, f. h. Bandarfkjanna, Hailsham lávarð ur fyrir hönd Bretlands, Valerin Zorin, sennilega, fyrir hönd Sov étríkjanna. Eins og komið hefur frám í fréttum, verða fundir haldnir fyrir luktum dyrum og er það Krúsév sjálfur, sem tók ákvörð- un um það.í einu kunnasta blaði Norðurlanda segir um þetta, að fjölda margir skilji þetta svo, að fyrir Krúsév vaki ekki í þetta skipti, að ráöstefnan verði vett- vangur til áróðurslegs hagnaðs fyrir Sovétríkin, og sé honum full alvara með, að samkomulag náist, en blaðið bætir því við, að ekki verði sagt um það með vissu, að tilgangurinn sé svo eðallyndur, en ákvörðunin sé allar götur eðlileg, þar sem Rúss um kæmi illa að verið væri að þásúna út um allan hinn komm- únistiska heim um samkomu- lagsumleitanir hans við auð- valdsríkin — þar sem deilur séu harðar milli Rússa og Kínverja, og fréttaflutningur af samkomu- lagsumleitunum kynni að verða til þess að auka erfiðleikana á sovézk-kínversku ráðstefnunni, sem menn hafa verið að búast við að færi algerlega út um þúf- ur dag hvern seinustu daga. Það er vegna ummæla þeirra Kennedys forseta og Krúsévs í ræðum sem þeir fluttu eigi alls fyrir löngu, að mjög hafa auk- izt vonir manna um að nú kunni að nást samkomulag — sam- komulag um takmarkað bann að minnsta kosti — og það enda þótt ekki verði gerður griðasátt- máli, en eftir er að vita hvort vonirnar um samkomulag ræt- ast. Harriman Furðuleg ráðstöfun Fyrir nokkru síðan ákvað um- ferðarnefnd að Skothúsvegurinn skyldi vera aðalbraut, með stöðv unarskyldu umferðar um Tjarn- argötuna. Með þessari furðulegu ráðstöfun, hefur skapazt eitt mesta hættusvæðið á götum borgarinnar. Og þarf ekki langt mál til að rökstyðja það. Eins og umferðarnefnd hlýtur að vita, er Slökkvistöð Reykjavíkur til húsa I Tjamargötu 12, með slna slökkviblla, og sjúkrabíla. Leið brunavarða með þessi tæki ligg- ur langoftast suður Tjarnargöt- una og yfir Skothúsveginn, og ekki bætir um, að keyra þarf framhjá sjúkrahúsi þarna rétt áður en að gatnamótum Skot- húsvegar og Tjarnargötu kemur. 1 öllum tilfellum þurfa bílar slökkviliðsins að hraða för sinni svo sem frekast má, hið sama er og um sjúkrabllana að segja. En hvernig I ósköpunum má það ske, að sett er stöðvunarskylda á þessa bíla, gagnvart annarri umferð, rétt eftir að þeir hafa lagt upp frá slökkvistöðinni, og ökumenn þeirra hafa náð nokkr- um hraða í akstrinum. Er þetta svo furðuleg ráðstöfun, að undr- un sætir. Nú þegar hafa orðið þarna að minnsta kosti tveir á- rekstrar við slökkvibíla, sem bet ur fer hefur enn ekki orðið neitt slys á mönnum í þvf sambandi, en Borgarsjóður faer að blæða fyrir tjón, á bflum, slökkviliðs- stjóri mun hafa mótmælt þessari ráðstöfun á sínum tíma, en ekki fengið neina jákvæða áheym. — Ennfremur mun hann hafa beðið um, að sett yrði stöðvunarljós- merki við Skothúsveginn, sem hægt væri að kveikja frá slökkvistöðinni. Þegar bílar frá henni ættu þarna leið um, en þeirri málaleitan hans hefur held ur ekki verið sinnt. Það, sem umferðarnefnd ber nú að gera, áður en stórslys verður þama á þessum gatna- mótum, er að viðurkenna villu sfna. Og snúa hlutunum alveg við, með því að gera Tjamar- götuna að aðalbraut, en setja stöðvunarskyldu á Skothúsveg- inn við bæði hom, þar sem Tjamargatan sker sig í gegn. Og það er ekki til nein afsökun fyrir því, að láta þetta ógert. Kjartan Ólafsson, varðstjóri.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.