Vísir - 03.09.1963, Síða 2

Vísir - 03.09.1963, Síða 2
I VÍSIR . Þriðjudagur 3. sept. 196$. ////ómww/mn?/////A rr \ 1 u V/////A ZV//////Æ W//////M. BL Akranessliðið,, sem vann Landsmót 3. flokks: Efsta röð: Magnús Magnússon, Sigurjón Sigurðsson, Eng- iibert Guðmundsson, Einar Guðlaugsson, Trausti Hallsteinsson. Miðröð: Lárus Skúlason, Ingi Gunn- laugsson, Finnur Jóhannsson. Neðsta röð: Sigursteinn Halldórsson, Guðmundur Haraldsson, Guðlaugur Þórðarson, Júlíus Ármannsson, Einvarður Albertsson, Eileifur Hafsteinsson. r r UrvsilslRð M í yn§ri fbickiiRfsani AKRANES vann meistaratitilinn í landsmóti 3. flokks í skemmtileg- um Ieik á Melavelli á sunnudaginn. Þetta er í fyrsta sinn sem tvö utanbæjarlið mætast til úrslita í landsmóti, en hingað til hafa Reykjavíkurliðin alltaf átt a. m. k. annan fulltrúann í úrslitunum. Akurnesingar sýndu mun meiri leikni, en annars var harka í leikn- um nokkuð mikil og samleikur í slakasta lagi. Vestmannaeyingar reyndu ekki mikið að hyggja upp, en treystu á löng spörk fram miðj- una, sem sprettharðir sóknarmenn eltu uppi. Sævar Tryggvason skoraði fyrsta markið, komst inn fyrir vörn Akra- ness og færði Vestmannaeyingum forystu. Rétt fyrir lok háifleiksins skoraði hinn bráðefnilegi Eileifur Hafsteinsson 1:1 úr vítaspyrnu. I seinni hálfleik byrjuðu Skagamenn þar sem frá var horfið í fyrri hálf- leik og brunuðu upp með boltann, en endahnútinn rak nýbakaður sveinameisfari í 100 metra hlaupi, Sigurjón Sigurðsson og 3:1 kom seint í 'hálfleiknum eftir laglegt sam spií og Vestmannaeyingar skoruðu 3:2 er mjög stutt var eftir af leikn- um. Það skoraði Ólafur Kristinsson úr þröngri stöðu, mjög fallegt mark. Björgvin Schram, formaður KSÍ afhenti Akurnesingum sigurlaunin að Ioknum leik, forkunnar fagran bikar, em nú er keppt um í þriðja skipti. Valur vann bikarinn í tvö fyrstu skiptin. Leikmenn Eyjamanna tóku tap- inu með sannri íþróttamennsku, en leitt var að sjá og heyra til eldri áhangenda liðsins, sem fóru hinum verstu orðum um piltana og voru reiðir og dónalegir. í undanrásum 3. flokks vann ÍA sinn riðil með 10 stigum í 5 leik- um og skoruðu 23 mörk gegn 6. Þróttur varð annar með 7 stig, tapaði fyrir ÍA en fór að svo búnu utan og kom heim með nýtt og betra lið og stóð sig mjög vel eftir það. Víkingur varð þriðji, en Fram Reykjavikurmeistararnir fjórðu, Framh. á bls. 5 'WWVWVWWVWWWWWWWWWWVVWWV Ósigrandi efíir fallið! Akureyringar „falleruðu“ í 1. deild fyrir rúmri viku, eins og kunnugt er, en síðan hafa þeir svo sannarlega ekki gert það endasleppt. Þeir hafa leikið tvo knattspyrnuleiki og unn- ið með hinni ótrúlegu markatölu, 22:1 samanlagt. Þó voru liðin, sem keppt var við, ekki af lakari endanum, sem sé lið frá brezka heimsveldinu og annað frá V.-Þýzkalandi, bæði af skipum, sem komu til Akureyrar. Akureyringar eiga annars eftir að láta heyra frá sér meira, þ. e. í bikarkeppninni og Norðurlandsmótinu, sem hefst inn- an skamms. „Smaiuð" fil keppnð: •j Lfm síðustu helgi fór fram ieikur I landsmóti II. flokks í Vestmannaeyjum. Leiknum lauk með því að vailarmet var sett, 11:0. Það voru sjálfir Reykja- víkurmeistararnir í II. flokk sem mættu liði Í.B.V. og lauk þeim ieik með sigri Í.B.V. Ekki virtist mikill áhugi vera ríkjandi hjá Valsmönnum fyrir ferðinni, því reynt var að ,,smala“ mönnum til að keppa í landsmóti I. flokks. En ekki gekk betur en svo, að aðeins mættu 7 Valsmenn út á flug- völl kl. 8 á laugardagsmorgun- inn. Þrátt fyrir það héldu þeir til Vestmannaeyja í von um það að þeim tækist að finna ein- hvern Valsmann í Eyjum. En sem kunnugt er getur lið ekki hafið keppni, nema minnst 8 leikmenn mæti til ieiks. Svo heppilega vildi til að B. G. ljósmyndari Vísis var stadd- ur í Eyjum og drifu Valsmenn hann í keppnisbúning, svo úr leik þeirra gæti orðið. Fyrrnefnd ur hafði aldrei keppt í knatt- spyrnu áður og aldrei á knatt- spyrnuvöll stigið, enda var ár- angur hans eftir þvf. Er dóm- arinn flautaði af höfðu Eyja- skeggjar skorað 11 mörk, en Reykjavíkurmeistararnir ekkert. En í þakklætisskyni við B. G. fyrir það að hann hefði gert þeim mögulegt að keppa, báru Valsmenn hann á gullstól út af. Vallarmetið og markatalan 11:0 ætti að vera Valsmönnum og öðrum félögum góð áminn- ing um að senda ekki lið út á land til keppni nema þau séu skipuð 11 mönnum, svo ekki sé minnzt á varamenn. Já, og allra sízt i landsmóti. Hagaskóls skóli Innan Norrænu sundkeppninnar hefur framkvæmdanefndin í Reykja vík komið á keppni milii skólanna eins og var í síðustu keppni. Þátt- taka skóianema er eins og vera ber talsvert hærri en meðalþátt- taka borgarbúa, enda eiga allir skólanemendur að vera syndir og skyldugir að synda 200 metrana ef mögulegt er. Þátttaka í efstu skólunum er nú orðin þessi: Fram- haldsskólar: Hagaskólinn 230 þáttt. eða 42%. Gagnfræðask. Austurb. ©g Hlíða- efstir 244 eða 40%. Gagnfræðask. Lind- arg. 109 þáttt. eða 35%. Barnaskólar: Hlíðarskólinn ; 330, 36%, Laugalækjarskóiinn ;221, 35%, Austurbæjarbarnaskólinn 313 34%, Laugarnesskólinn 367 34%, Miðöœjarskólinn 304 29%. I síðustu keppni unnu Réttarholts skólinn (66,1%) í keppni framhalds skólanna og Laugarnesskólinn (72, 7%) í keppni barnaskólanna. Hlaut hvor skóli bikar að verðlaunum. 63 Þær keppa við vina- bæinn í handknattleik S. 1. laugardag héldu fyrstu utánfarar kvennaflokka FH í handknatt- leiksferð til Noregs. Ferðinni var heitið til vinabæjar Hafnarfjarðar, sem heitir Bærum, og er í svipaðri aðstöðu gagnvart Osló og Hafnar- fjörður gagnvart Reykjavík. I Bærum munu stúlkurnar leika nokkra leiki við meistaraflokkslið norskra, en íþróttafélagið MODE er gest- gjafi stúlknanna. Mjög skemmtileg dagskrá hefur verið sett upp fyrir ferð stúlknanna og meðal annars, sem þær munu gera í Noregi, eru skógarferðir, sjó- skíðaferðir, verzlunarferðir og dansleikir, og iokahóf verður í ráðhúsi Bærum. FH-stúlkurnar hafa aurað saman af mesta dugnaði í vetur og sumar og fá þarna ódýra og góða ferð. Þær flugu utan með Flugfélags Vél, en koma með m.s. Heklu heim aftur. Fararstjórar eru þeir Valgarð Thor- oddsen og Hallsteinn Hinriksson. Stúlkurnar, sem taka þátt í Noregsferðinni: Sigurlína, Herdís, Sylvía, Elín, Sigríður, Sigrún (úr Breiðabliki), Þórhildur, Erna, Guðlaug, Jónína.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.