Vísir - 03.09.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 03.09.1963, Blaðsíða 3
VISIR . Þ::! Það var margt manna saman komið í Listamannaskálanum sl. föstudagskvöld að skoða fjöl- breytt úrval af verkum, sem frú Nína Tryggvadóttir hefur málað á árunum 1936-1963. Þarna voru abstraktmyndir og myndir, sem áður fyrr þóttu abstrakt, en virðast nú eins natúralistísk- ar og frekast er hægt að óska sér á vorum abstrakt dögum. Myndir af þekktum Islending- um með augu, nef og munn, eins og málarar höfðu á fyrir- myndum sínum til skamms tíma, málverk af Reykjavík, eins og hún var fyrir 20—30 árum eða eins og hún leit út í augum listakonunnar. Landslagsmyndir eins og hún sér landslagið nú orðið. Mörgum finnst hún kann- ske hafa breytzt í túlkun sinni, en sjálf er hún ekki svo viss um það. Sama línan gengur gegnum allt, sama uppbygging- in, en hún leitar stöðugt nýrra tjáningarforma að hætti góðra listamanna. Áhorfendumir skoð- uðu verkin af athygli, þ. e. a. s. Menntamálaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason, og frú hans, Guðrún Vilmundardóttir, ræða við Nínu og dóttur hennar, Unu Listþróun Nínu frá ‘36 til 463 eftir því sem hægt var fyrir öðrum áhorfendum, sem skyggðu á. Þarna voru ráðherrar og þekktir listamenn, prófessor- ar. og nemendur, húsmæður og svokallað venjulegt fólk, allir flokkaðir saman undir heildar- titilinn listunnendur. Og Nína stóð við dyrnar og brosti. Tónskáldin njóta listaverkanna. Jó'n Nordal og dr. Páll ísólfsson eru þungt hugsi, eins og vera ber Dr. Selma Jónsdóttir og frú Sigríður Björnsdóttir, eiginkona Bjarna Benediktssonar, dómsmálaráðherra, hafa nóg að spjalla. Prófessorinn og listakonan. Dr. Sigurður Nordal óskar Nínu til hamingju. Þorvaldur Skúlason veltir vöngum yfir myndinni af sjálfum sér, en Gunnar Sigurðsson virðist hinn ánægðasti með svipmótið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.