Vísir - 03.09.1963, Síða 5
VÍSIR . ÞriSjudagur 3. sept. 1963.
5
ilýir presfar —
Framhald at bls. 1.
ákveðið um framtíðarprestakalla
skipan í Reykjavíkurprófasts-
dæmi þegar að því kemur að
næst þarf að fjölga prestum.
Þá á Seltjamamessókn að verða
sérstakt prestakall, sem nær yf-
ir Seltjarnarnes, einnig verður
sérstakt prestakall milli Suður-
landsbrautar og Miklubrautar,
austur af Háteigsprestakalli, og
á það að heita Háaleitispresta-
kall, og loks verður F.ossvogur-
inn gerður að sérstöku presta-
kalli. En þessi skipting kemur
sem sé ekki til framkvæmda að
þes.su sinni og ekki fyrr en
fólksfjölgun á fyrrnefndum
svæðum gefur tilefni til. Hins
vegar verður Kópavogssókn nú
þegar að sérstöku prestakalli,
sem núverandi prestur þjónar
áfram, en Bústaðasókn, sem
hann hefir einnig þjónað, verð-
ur sérstakt prestakall sem fyrr
segir.
HVERJIR SÆKJA?
Margir eru þegar farnir að
velta því fyrir sér, bæði þeir,
sem hafa rétt til að sækja og
þeir, sem hafa rétt til að kjósa.
Ekki er vitað um endanlega
tölu umsækjenda af skiljanleg-
um ástæðum, en blaðið hefir
heyrt eftirfarandi: Séra Hjalti
Guðmundsson og Frank Hall-
dórsson guðfræðikandidat munu
hafa hugsað sér að sækja um
Nesprestakall. Séra Arngrímur
Jónsson í Odda, séra Ásgeir
Ingibergsson I Hvammi og séra
Lárus Halldórsson munu hafa
hugsað sér að sækja um Háteigs
prestakall. Séra Sigurbur Hauk-
ur Guðjónsson á Hálsi í Fnjóska
dal og séra Magnús Runólfsson
Reykjavík munu sækja um Lang
holtsprestakall. Séra Jónas Gísla
son í Vík í Mýrdal mun ætla
að sækja um hið nýja Áspresta-
kall. Felix Ólafsson guðfræði-
kandidat og kristniboði og séra
Ragnar Fjalar Lárusson á Siglu-'
firði munu ætla að sækja um
hið nýja Grensásprestakall. Og
Ioks mun séra Ólafur Skúlason
ætla að sækja um Bústaðapresta
kall.
Bþróttir —
Framhald af bls. 2.
Hafnarfjörður fimmtu og Keflavík
neðst. í hinum riðlinum voru Vest-
mannaeyingar efstir með 7 stig í
4 leikjum. Valur varð númer 2, þá
ísafjörður og Selfoss.
SjósBys —
Framhald af bls. 1
ins, sjór kom I STB-ganginn og
við hallann sem varð rann síld-
in til í lestinni og jók það enn
á hann. Leitazt var við að draga
úr hallanum og var háfun stöðv
uð. Við háfun á nýjan leik var
sett í BB-stíur til að rétta skip-
ið. Á meðan jókst vindur stöð-
ugt,, var orðinn á að gizka 5—6
vindstig, sjór krappur og skugg
sýnt. Varla var skipið orðið kjöl
rétt þegar annar sjór reið yfir
skipið STB-megin og fljótlega
önnur bára. Við það fylltist
lestin og þilfarið, lagðist skipið
á STB-hlið og var sokkið eftir
þrjár til fjórar mínútur.
Skipverjum bar saman um öll
atriði eftir því sem þeir höfðu
aðstöðu til að vitna um þau.
Síðast sást til Símonar Símon-
ar Símonarsonar aftast á skip-
inu, og fannst hann ekki þrátt
fyrir mikla leit allmargra báta f
þrjár klukkustundir. Að sögn
skipstjórans var Símon ósyndur.
Eftir að skipstjóri hafði borið
vitni, mættu Ólafur H. Pálsson,
stýrimaður, Ingimundur Jóns-
son vélstjóri og hásetarnir Jó-
hann Þorsteinsson og Guðmund
ur Einarsson.
Meðdómendur í réttinum voru
skipstjórarnir Sigmundur Sig-
mundsson og Jón Sigurðsson.
Sinfóníuhljómsv. —
Framhald vt bls. 1.
Noregi og Betty Allen frá
Bandaríkjunum.
Síðast en ekki sfzt er að geta
þess, að leitað hefur verið eftir
að fá hingað söngkonuna heims-
frægu Elisabeth Schwarzkopf
og píanósniilinginn Rudolf Ser-
kin.
Sinfóníuhljómsveitin byrjar
starfsemi sína á morgun, leikur
fyrin sýningum Konunglega
danska ballettsins síðar f mán-
uðinum og fyrir Ríkisútvarpið.
Fyrstu hljómleikar hennar á
starfsárinu verða 10. október.
Alls verða áskriftarkonsertar 16
talsins, auk skólatónleika og
hugsanlegra aukatónleika. Efn-
isskráin verður fjölbreytt að
vanda, og nefna má að flutt
verður nýtt hljómsveitarverk eft
ir Leif Þórarinsson.
Framkvæmdastjóri hljómsveit-
arinnar verður Gunnar Guð-
mundsson, í veikindaforföllum
Fritz Weishappei.
Þyrilvængja —
Framhald af bls. 16.
— Þetta hlýtur að kosta þig
einhver ósköp.
— Já, það er ekki hægt að
neita því, að þetta er talsvert
dýrt ævintýri, sennilega kostar
sjálf þyrilvængjan mig um 40
þús.
— Hvað um réttindi til að
fljúga svona þyrilvængju?
— Ég held að ég þurfi ekki að
taka sérstakt próf, en eftir því,
sem ég bezt veit, þá verður flug
málastjórnin að samþykkja vél-
ina.
— Hvað getur vélin borið mik
ið.
— Eitthvað um 317 kg. Sjálf-
ur er ég um 70 kg, svo óhætt
væri að taka nokkurn farangur,
ef rými er til. Já, og einhver
var að minnast á, að ég skryppi
út í eyjar og flytti lunda.
— Hvað þarftu stórt lending-
arsvæði.
— Ég hugsa að hún þurfi um
10 metra langt svæði til þess að
lenda á.
— Og hvenær mega Vest-
mannaeyingar búast við þvf að
sjá fyrstu flugvélina í eigu Vest
mannaeyings svífa yfir kaup-
staðnum?
— Ja, nú get ég ekki svarað.
Fyrst er að vita, hvort eitthvað
verði úr þessu hjá mér. En ef
allt gengur vel, þá verður vél-
in sett saman í vetur, og þá
verður sennilega ekkert reynt að
fljúga fyrr en næsta vor.
— Og þig langar auðvitað til
þess að læra flugvirkjun?
— Nei, ég er að læra raf-
virkjun. Þetta er aðeins tóm-
stundavinna hjá mér, sagði
þessi 18 ára piltur, sem vinnur
við að smíða væntanlega fyrstu
flugvélina, sem verður í eigu
Vestmannaeyings.
___
Laugarvafa —
Framhald af bls. 16.
Borgarfjarðarhérað komu þeir
nokkra stund. f ferð sinni um
m. a. að Kleppjárnsreykjum,
Varmalandi og Borgarnesi. Fór
námstjóri Vesturlands með þá
um Borgarfjarðarhérað.
Sagði Helgi Elíasson að sér
hefði virzt Norðmennirnir á-
nægðir með heimsóknina hingað
og fyndist þeim margt hér vel
gert miðað við aðstæður.
Er Norðmennirnir komu heim
til Noregs, hafði norska frétta-
stofan NTB viðtal við þá. Viku
þeir þar sérstaklega að skóla-
miðstöðinni að Laugarvatni og
kváðu þar hafa verið gerða
Féll fvrir borð
Sjópróf vegna hvarfs Þorleifs Sig
urbjörnssonar af togaranum Þor-
keli mána aðfaranótt s.l. föstudags
skammt frá Hull fóru fram í rn.org-
un.
Samkvæmt framburði skipverja
hafði Þorleifur verið með nokkr-
um þeirra á kvikmyndasýningu, og
komu þeir um borð klukkustund
áður en skipið lagði úr höfn. Um
tvöleytið um nóttina sást síðast til
Þorleifs þar sem hann gekk aftur
með skipinu. Hvert hann var að
fara vissi enginn. En síðar varð
ljóst, að Þorleifur myndi hafa fall-
ið fyrir borð og drukknað. Vita
skipverjar ekki frekar um afdrif
hans. Þorleifur var 2. matsveinn
um borð í togaranum.
mjög merkilega tilraun, þar sem
menntaskóla, héraðsskóla, í-
þróttaskóla hefði verið komið
upp á sama stað og heimavist-
um við skólana.
Ræddu þeir nokkuð um heima
vistarskólana hér, sem skapazt
hefðu vegna hins mikla strjál-
býlis, en kváðu þá ekki henta
Noregi, þar sem Norðmenn
stefndu að þv£ að láta börnin
búa eins lengi heima og mögu-
legt væri.
Nefndarmenn sögðust mjög
hrifnir af hinum nýja Kennara-
skóla í Reykjavík, kváðu hann
sérstaklega nýtízkulegan og hag
kvæman. Þá minntust þeir einn
ig á stofnun lýðháskóla í Skál-
holti og höfðu þær áætlanir vak
ið athygli þeirra.
Er þeir að lokum voru spurð-
ir hvort í skólamálum á íslandi
væri1 eitthvað1 sem i tæki i f ram
skólamálum Noregs og sem
Norðmenn gætu ’ haft að fýrlr-
mynd, svöruðu þeir: Að svo
komnu máli gætu Norðmenn
ekki byggt á heimavistarskóla-
skipulaginu, sem hið mikla
strjálbýli á íslandi krefðist, því
að þótt það vandamál hefði mik
ið verið rætt I Noregi, væri
þörfin ekki eins mikil og á Is-
Iandi.
Willy
Brandt til
Islands
Willy Brandt, borgarstjóri Vest-
ur-Berlínar, mun væntanlega koma
í opinbera heimsókn til Islands í
apríl ’64, en um það leyti verður
hann á ferð um Norðurlönd. Frá
þessu skýrði dr. Gerhard Walther
þingmaður sósíaldemókrata í Vest-
ur-Berlín á fundi með fréttamönn-
um í gær.
Sagði hann, að lengi hefði staðið
til, að Brandt heimsækti Island, en
ekki orðið af þvl sökum anna. —
Walther er hér I boði Alþýðu-
flokksins ásamt þremur öðrum full-
trúum, þeim Wuttre, sem er einn
af borgarstjórum V.-Berlínar, MUU-
er, sem er fulltrúi Brandts I kosn-
ingabaráttunni, og Schlawe, sem á
sæti í yfirborgarstjórn.
Fjórmenningarnir eru hér tU þess
að kynna Islendingum málstað V.-
Berlínar, og kynna sér jafnframt
íslenzk stjórnmál.
Tvö slys
Á sunnudaginn varð slys á
Grandavegi. Það varð með þeim
hætti að menn voru að draga
til vlra úr m.b. Aðalbjörgu. Á með-
an þeir voru að þessu ók bifreið
á vírana svo þeir slógust á fót eins
verkamannsins, Ólafs Ólafssonar,
Skipasundi 18. Hann var fluttur
til læknisaðgerðar, en blaðinu er
ekki kunnugt um meiðsli hans.
Sama dag varð árekstur milli
bifreiðar og hjólreiðarmanns á
hjálparmótorhjóli á gatnamótum
Skothúsvegar. Hjólreiðarmaðurinn
féll I götuna og var fluttur I slysa-
varðstöðina, en meiðsli hans ekki
alvarleg talin.
Stúlka óskast
Stúlka óskast strax til afgreiðslustarfa í
kjörbúð. Sími 12112 kl. 6—7 í kvöld og næstu
kvöld.
VOLKSWAGEN - 1500
VERÐ:
VOLKSWAGEN 1500
KR. 163.780.
VOLKSWAGEN 1500
STATION
KR. 175.220.
Alltaf fjölgar
VOLKSWAG EIN
H E K L A , Laugavegi
170-172. Sími 11275.