Vísir - 03.09.1963, Page 6
6
V í S I R . Þriðjudagur 3. sept. 1963.
m
Ný deild —
Málmfyllmg
Höfum opnað nýtt verkstæði að Brautar-
holti 3. Framkvæmum alls konar málmfyll-
ingu og málmhúðun. Endumýjum slitfleti
með málmsprautun svo sem: Sveifarása
(Bensín eða Disel), öxla margs konar o. fl.
Þrautreynd aðferð með öllum tegundum
harð- eða mjúkmálma.
Ennfremur alls konar rennismíði.
Þ.JÓNSSON&CO
BRAUTARHOLTI 6 - SIMI 19215
Mikil síldveiði
v/ð NOREG
Feitsildarveiðarnar við Norður
Noreg hafa gengið mjög vel í sum
ar. Hafa borizt á Iand meira en
tvær milljónir hektólítra og er
þetta metár á síldveiðum við
Norður Noreg.
Síldin fer svo til öll I bræðslu
og hefur það verið harðlega gagn
rýnt að ekki skuli hafa skapazt
möguleikar til fjölbreyttari nýting
ar síldarinnar á þessum slóðum. Er
talað um algert kæruleysi í þessum
efnum. Norski fiskimálaráðherrann
skipaði sl. vetur sérstaka nefnd
manna til að vinna að betri hag-
nýtingu síldarinnar við Noreg en
þessi nefndarskipun hefur lítinn
sem engan árangur borið.
SMURSTÓÐIN
Sæiúni 4 - Simi 16-2-27
Bíllinn er smurður fljótt oj vel.
Seljum allar tegnndir af smuroliu.
Glæsi/eg vörusýning
SÍS í Ármúla
Margvíslegar iðnaðarvörur eru á
sýningu, sem Samband ísl. sam-
vinnuféi. opnaði í fyrrad. Sýningin
er haldin I nýju, glæsilegu stór-
hýsi, sem Sambandið hefur látið
byggja við Ármúla 3 í Reykjavík.
Að sýningu þessari standa verk-
smiðjur Sambandsins, verksmiðjur
Kaupfélags Eyfirðinga, Kaupfélags
Árnesinga og Kaupfélag Reykjavík
ur og nágrennis.
Undanfarinn áratug hafa slíkar
sýningar nokkrum sinnum verið
haldnar á Akureyri, þar sem
stærstu verksmiðjur Sambandsins
eru, en að þessu sinni þótti rétt
að breyta til og hafa sýninguna í
höfuðstaðnum. Meðal verksmiðja
sem Sambandið rekur er fataverk-
!■■■■■!
smiðjan Hekla á Akureyri, sem er
■ starfrækt í tveimur deildum, ann-
ars vegar prjónadeild og hins veg-
' ar saumadeild.. Fataverksroiðjan
Fífa á Húsavík. Hún framleiðir
einkum vinnuskyrtur og sport-
skyrtur. Verksmiðjan Vör í Borg-
arnesi framleiðir einkum regn- og
hlífðarfatnað. Einnig er í eigu Sam
bandsins Rafvélaverksmiðjan Jöt-
unn, sem hóf fyrir nokkrum árum
framleiðslu á rafmótorum. Kaup-
félag Eyfirðinga sýnir framleiðslu-
vörur Smjörlíkisgerðarinnar Flóru
j og Efnagerðarinnar Flóru. Kaupfé-
Iag Reykjavíkur og nágrennis sýnir
framleiðsluvörur frá Efnagerðinni
Record og Kaupfélag Ámesinga
vörur Efnagerðarinnar Selfoss. Auk
.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v
1 gær hitti ég konu, sem elsk-
ar ketti og mann sem hatar þá.
Báðum lá þeim nokkuð á hjarta.
Rottunum ætlað
Kattarvinan sagði mér farir
sínar ekki sléttar. Hún hefur um
hríð átt kettling, hið mesta uppá
haldsdýr og öllum köttum fremri
að flestri gerð í augum eigand-
ans. En svo bar það við einn
morguninn að köttur fannst líf-
vana liggjandi. í ljós kom að
banameinið var rottueitur. Kött-
ur hafði lagt sér eitthvað það
til munns, sem rottueitr; hafði
verið í komið og það varð hon-
um að aldurtila. Sorg eigandans
var mikil og hún bætti því við,
þegar hún sagði mér söguna, að
hún vissi til þess að ungt barn
hefði verið komið ískyggilega
nærri þvi að fara sömu leið,
þegar fuliorðnir skárust í málið.
Og hún spurði: Er nauðsyn-
legt að eitra þannig fyrir hina
miklu meinvætti og óvin mann-
kynsins, rottuna, að önnur dýr
glæpist á agninu með svo hroða-
legum afleiðingum sem hér hafa
verið tjáðar?
Fuglalifið i hættu?
Óvinur kattanna benti mér á
á það að fuglalífi í görðum höf-
uðstaðarins stafaði mikil hætta
af köttum um þessar mundir.
Segir hann flækingsköttum hafa
mjög fjölgað og fari þeir garð
úr garði nótt sem nýtan dag og
leggist á fugla og leiti sér hvar-
vetna ætis. I framhaldi af því
segir hann að ekki þýði að biðja
lögregluna að handsama kettina.
en hún ráðleggi fólki þess í stað
að leita til manns sem aflífi
ketti. En þar sé sá hængur á
að þótt maðurinn geri það verk
snyrtilega, handsami hann ekki
flækingskettina heldur verði að
færa þá til hans. Hér skorti því
einhvern aðila sem hendur hafi
í hári kattanna.
Benzin á nóttunni
Það eru ávallt fleiri eða færri
sem snúa sér til blaðanna og
kvarta undan þeirri ósvinnu að
ekki skuli vera hægt að fá ben-
zín keypt eftir miðnætti hér I
höfuðborginni. Slíkt nái ekki
nokkurri átt í jafnstórri borg og
slíkur molbúaháttur þekkist
hvergi erlendis. Undir þetta má
sannarlega taka. Mér er þó kunn
ugt um það að olíufélögin eru
hér öll af vilja gerð. Hafa þau
boðizt til þess að greiða benzín-
sölumönnum næturvinnugreiðsl-
ur við nætursölu benzíns. En
það munu þeir starfsmenn ekki
hafa sætt sig við og heimtað
kaup fram yfir venjulegan næt-
urtaxta og þar strandaði málið.
Vonandi verður ekki lengi enn
látið við svo búið standa. Þessi
sjálfsagða þjónusta þarf að kom-
ast á sem allra fyrst.
Kári.
'.VAVAWWSmW.V.V.V.V.V.W.V.VV.V.V.V.V.V.VJ
þess mun KÁ sýna ýmsar innrétt-
ingar og húsgögn frá Trésmiðju
KÁ á Selfossi.
Samanlagt nam vörusala þeirra
verksmiðja, er þarna sýna, um 200
milljónum króna á árinu 1962, og
var starfslið þeirra á áttunda hundr
að manns. Eins og áður segir, er
sýningin í Ármúla 3.
Sýningin verður opin í nokkra
daga og er öllum velkomið að
skoða hana.
Frá efnaverksmiðjunni Flóru.
Hér sjást vörur frá efnaverksmiðjunni Sjöfn á Akureyri.