Vísir


Vísir - 03.09.1963, Qupperneq 11

Vísir - 03.09.1963, Qupperneq 11
V I S I R . ÞriSjudagur 3. sepí. 1963. 11 Sir Frederic Hopper forstjóri einnar stærstu sódavatnsve . smiðju heimsins, „Schwepn- es“ í Englandi, hefur nýle gengið undir uppskurð og er nú að hressa sig á sveitasctri sínu. Læknir hans sagði við hann þegar hann fór af sjúkrah; inu: — Ég ráðiegg yður að drekka eitt kampavínsglas hverjum morgni. — Ekki til að ta!a um, sa Hopper og hentist upp. Ég þ< enga drykki sem gos er í. Laureen Becall, sem eitt si. var mjög dáð kvikmynda- stjarna er nú orðin leið á öðru hjónabandi sínu og fjölskyldu- lífinu yfirleitt. Ekld er þó svo að hún vilji skilja við mannir sinn, heldur vill hún snúa sér aftur að kvikmyndaleik. Laureen Bacall — Allt frá því að ég var kornung hef ég óskað þess að eignast tvö börn ,segir hú: , og nú, þegar þessi ósk mín hefur rætzt finnst mér tilver: i svo skelfiing tómleg. Það verður tæplega erfitt fyrir hana að fá tækifæri til kvikmyndaleiks því að meöal nánustu vina hennar er Frank Sinatra og Dean Martin. William Holden er nýkom- inn heim til Parísar eftir að hafa verið í mikilli hnattfe En þeir sem búa í sama húsi og ha,nn eru ekki sérlega hrifn- ir af heimkomu hans, því aö leikarinn hefur nefnilega hann vana að fara ávallt mjög snemma á fætur á morgnnna og fara í bað, en meðan hann er í baðkarinu syngur hann eins hátt ag hann getur og vekur þar með alia íbúa húss- ins. En nú hafa íbúarnir tekið til sinna ráða. Þeir vita að leik- arinn á einbýlishús í sviss- neska bænum Saint Prex og hafa keypt heil ðsköp af póst- kortum haðan — og á hverj- um morgni fær hinn „sön ;■ elski“ Icikari póstkort sem á er ritað: „Saint Prex er dásamiegasti sumardvalarstaður sem hægt er að hugsa sér. Hvers vegna í ósköpunum farið þér ekki þangað, Mr. Holden?" Ef ég er búin að vera þá ert þú það líka, hrópaði Temple og skýtur King. Litli svikahrappur inn þinn, öskrar einn bófinn, og miðar byssu sinni á Temple. Rip finnst kominn timi til að hann taki einhvern þátt í þessum lát- um, svo að hann gefur náungan- um þrumandi Jiu-jitsu högg á háls inn, svo að hann steypist niður eins og hann hafi verið skotinn með tvíhleyptri haglabyssu. Ungfrú Guðríður Guðmunds- dóttir, Hæðargarði 18, og Björn Möller. Heimili þeirra er í Ing- ólfsstræti 10. Sigurlín Eliý Vilhjálmsdóttir, Stórholti 14 og Áke R. Knutsson frá Lysekyl í Svíþjóð. Heimili þeirra er í Stórholti 14. Nýlega hafa verið gefin saman í hjónaband af sr. Árelíusi Níels- syni eftirtalin brúðhjón: Ungfrú Jóna Gunnhildur Hermannsdóttir og Bjarne Sigurd Eidskrem skrif- stofumaður, Sólheimum 32. Ung- frú Aðalheiður Erla Jónsdóttir og Lárus Jónasson bílstjóri, Hvassa leiti 6. Ungfrú Stefanía E. Gunn laugsdóttir og Ólafur J. Unn- steinsson kennari, Skeiðarvogi 11. Ungfrú Brynja Gestsdóttir og Ein ar Halldórsson, iðnnemi Stykkis- hólmi. Fundarliöld Fundi tónlistarstjóra útvarps- stöðva á Norðurlöndum er nýlok- ið hér í Reykjavík, en hann stóð yfir dagana 26.-28. ágúst að báð um dögum meðtöldum. Fundinn sátu tónlistarstjórar frá öllum Norðurlöndum: Frá Danmörku kom Vagn Kappel, frá Finnlandi Kai Maasalo, frá Noregi Kristinn Lange og frá Svíþjóð Magnus En- hörning. Fulltrúar Ríkisútvarpsins voru Árni Kristjánsson og Sigurð- ur Þórðarson skrifstofustjóri. Aðalefni fundarins var sam- vinna um tónlistarmál milli út- varpsstöðvanna og var einhugur með tónlistarstjórunum um að auka samstarf sín í millum og koma á meiri skiptum á listamönn um og tónleikadagskrám en verið hafa. Ýmis önnur mál voru á dag- skrá: Norrænir tónleikar, tónlist- arstarfsemi, tónlistarkeppni áhuga manna milli landanna, elektrón- ískur tónlistarflutningur, sjón- varpstónlist o. fl. Þetta var fyrsti fundur tónlist- arstjóranna ,sem hér er haldinn. Næsti fundur verður haldinn að tveim árum liðnum í Helsinki. Blöð og tímarit Heimilisblaðið Samtíðin sept- emberblaðið er komið út, fjöl- breytt og skemmtiiegt. Efni: Er furðubíllinn væntanlegur innan skamms? eftir Sigurð Skúlason. Kvennaþættir eftir Freyju. Við vorum þrettán við borðið (smá- saga). Burton hennar Kleópötru (grein um kvikmyndaleikarann Richard Burton). Skugginn af rúminu hennar (saga). Gróður- inn og lífið, eftir Ingólf Davíðs son. Skákþáttur eftir Guðm. Arnlaugsson. Bridge eftir Árna M. Jónsson. „Höldum gleði hátt á loft“ (bókarfregn. Heimilis- föng frægra leikara, margar get raunir, fjöldi skopsagna o. fl. Árnað heilla í fyrradag voru gefin saman í Dómkirkjunni af séra Óskari J. Þorlákssyni: Elín Sigríður Sig- urðardóttir, og Sigurgeir Sverris- son, flugvirki, Silfurteigi 1. Nýlega voru gefin saman í Laug arneskirkju af sr. Garðari Svavars syni eftirtalin brúðhjón: Guðrún Viola Andreas og Bragi Rafn Guðmundsson bifreiða stjóri. Heimili þeirra er að Lauga vegi 42. Spáin gildir fyrir miðvikudag inn 4. sept. Hrúturinn, 21. marz til 20. apríl: Þú ættir að gefa nánari gaum að þeim atvinnutilboðum, sem valdið gætu straumhvörfum til hagsbóta í lífi þínu. Þeir hæfi leikar, sem þú hefur þroskað með þér með þrautseigju gætu nú komið sér vel og styrkt þig fjárhagslega. Nautið, 21. apríl til 21. maí: Ef þú ert einn af þeim, sem hefur verið í rómantískum hug leiðingum upp á síðkastið, þá er einmitt heppilegt að .tjá tilfinn ingar sínar nú í þeim efnum. Tvíburarnir, 22. maí til 21. júní Það væri skynsamlegast að koma verkunum í framkvæmd meðan fólk er yfirleitt vel fyrir kallað í þeim efnum. Kynntu þér alla málavexti niður í kjöl . • -■ <.u \, - ■ mn. Krabbinn, 22. júní til 25. júlí: Einbeittu þér vel að úrlausn þeirra vandamála sem þú kemst í nú og í nánustu framtíð. Viss ar heimilis- eða atvinnuskyldur gætu skyndilega skotið upp koll inum. Ljónið, 24. júlf til 23. ágúst: Gríptu þau tækifæri, sem kunna að bjóðast nú, þau munu reyn- ast þér vel í framtíðinni. Aflaðu þér þeirra ráðlegginga, sem nauðsyn krefur hjá kunnáttu- mönnum. Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.: Það er ávallt skynsamlegra að afla sér vina 1 stað óvina, þegar til lengdar lætur. Vera má að þú þurfa að dylja raunverulegar skoðanir þínar á málunum til þess. Vogin, 24. sept. til 23. okt.: Það væri skynsamlegt af þér að eiga einhvern leyndan sparisjóð, sem þú gætir leitað í ef erfið- íeika bæri sérstaklega að hönd- um. Þú mundir verða sjálfstæð- ari. Drekinn, 24. okt, til 22. nóv.: Auðsýndu öðrum góðan ásetn- ing þinn með þvl að gefa gott fordæmi með því að höggva á hnútinn. Athugaðu um óskir fjöl skyldunnar áður en þú hefst handa. Bogamaðurinn, 23. nóv. til 21. des.: Þú munt hitta að máli persónu, sem leyst getur úr flestum þeim spumingum, sem vafist hafa fyrir þér að undan- förnu. Hafðu nánar gætur á gangi málanna. Steingeitin, 22. des. til 20. jan.: Þeir steingeitarmerkingar, sem þarfnast fjárhagslegs stuðn ings gerðu vel I því að leita hans einmitt nú. Leitaðu einnig álits kunnáttumanna á þeim hlutum, sem þú girnist. Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr.: Leitaðu álits náinna félaga þinna eða maka við þeim vanda málum, sem verða upp á ten- ingnum í dag. Fjármálin kunna að verða eitthvað á döfinni. Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz: Þú getur ávallt verið já- bróðir annarra, þegar það verður að teljast hygglilegra fyrir þig. Það er alls ekki víst að þfnar raunverulegu skoðanir séu rétt- ar. Einu sinni á ári, er svokölluð „Iögreglusýning“ í Berlín. Tugir þúsunda Berlinarbúa koma til þess að sjá sýninguna, enda get- ur þar að líta margt skemmti- legt. Berlínarlögreglan er fræg fyrir alls konar uppátæki, og hugmyndir sem lögreglumenn- imir fá, ekki aðeins meðan þeir eru að störfum, heldur og þegar þeir eiga frí. Á myndinni hér að ofan getur að líta hinn fræga „mótorhjóla- pyramida“. 27 lögreglumenn, aka á fjórum mótorhjólum í hring á gamla Olympíu Ieikvang inum, við mikinn fögnuð áhorf- enda.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.