Vísir - 19.09.1963, Blaðsíða 6
V1SIR . Fimmtudagur 19. september 1963.
útlönd í morgun útlönd í mprgun
útlönd í morgun
útlönd í.morgun
I Óeirðir I Kuala Lumpur
Til mikilla átaka kom í gær í Kuala Lumpur og er sagt í frétta-
stofufregirum, að Abduhl Raman forsætisráðherra Malajaríkjasam-
bandsins hafi sjálfur staðið fyrir éeirðunum, sem beindust gegn
Indonesum og Filippseyingum. Var ráðist á sendiráð Indónesa f
Kuala Lumpur og var það nærri lagt í rúst. Er sagt að forsætisráð-
herrann hafi f ákafa sfnum rifið niður skjaldarmerki Indonesíu á
sendiráðinu og traðkað á því. Indonesía og Fiiippseyjar hafa mót-
mælt stofnun Malajaríkjasambandsins. Á myndinni sjást lögreglu-
menn með skiidi til hiífðar gegn grjótkastinu.
Munaði mjóu íALABAMA
Birmingham í morgun (NTB)
nfiim i
í gær Iá við miklum og alvarlegum átökum f Birmingham í Alabama,
er þar fór fram jarðarför þriggja blökkutelpna, sem höfðu látizty i þegar
ein af kirkjum blökkumanna var sprengd upp fyrir skömmu. Aðeins
skjótar aðgerðir Iögreglu og foringja blökkumanna komu í veg fyrir
átökin.
Jarðarförin var glfurlega fjöl-
menn. Um það leyti sem kistum-
i ar vom bornar úr kirkju hófst
\ hreyfing fyrir því að haldið yrði
inn á aðalverzlunargötur borgar-
innar. Sneri múgurinn í áttina til
þeirra, en einn af foringjum
blökkkumanna gat með naumind-
Denning-skýrsiau sýkn-
ur stférn Mncmiiiuns
— sefgir
London f morgun (NTB)
Lundúnablaðið Daily Mail segir að Denning-skýrslan sýkni alla ráð-
herra Macmillans af ásökunum, sem flogið hafa fyrir í Lundúnum að
undanförnu. Segir blaðið að sögusagnir, sem jafnaðarmenn hafi haldið
á lofti, hafi ekki við neitt að styðjast í skýrslu Dennings lávarðar.
andi hermálaráðherra og drósar-
innar Kristínar Keeler, meðan hún
átti einnig vingott við rússneska
hermálafulltrúann I London. En
skýrslan er engu að síður upp-
■ reisn fyrir Macmillan og ráðherra'
Blaðið segir ennfremur að Denn-
ing lávarður hafi aðallega fjallað
um öryggishliðar Profumo-máls
ins. Lávarðurinn hafi að vfsu ekki
sýknað Macmillan forsætisráð-
herra af allri pólitískri ábyrgð
vegna sambands Prófumo fyrrver-
hans, segir Daily Mail.
um snúið fólkinu af leið og loks
stöðvað það. Mimfítinhann ifóikiðiá:
að þessar fyrirætlanin þess myndu
aðeins leiða til þess að fteioii féllu
í valinn.
Samtök blökkumanna víðsvegar
um Bandaríkin hafa boðað til mik-
illa fundahalda um næstu helgi á
100 ára afmæli þess atburðar er
Lincoln Bandaríkjaforseti gaf negr
um frelsi. Leiðtogar blökkumanna
eru á leið til Washington til við-
ræðna við Kennedy Bandaríkjafor
seta.
Jafnaðarmenn í
Noregi tvístíga
Osló í morgun.
í dag eiga að hefjast umræður í norska Stórþinginu um stefnuyfir-
lýsingu stjórnar John Lyng.
Jafnaðarmannaflokkurinn, undir forystu Einar Gerhardsen, hefur
enn ekki endanlega gert upp við sig hvort hann leitast við að fella
stjórnina þegar í stað eða láta aðgerðir í þá átt bíða þar til að sveitar-
stjómarkosningum loknum.
Eru jafnaðarmenn á báðum átt-
um. Stjórnin varð við þeirri ósk
jafnaðarmanna að leggja fram
stefnuskrá sína fyrir sveitarstjórn-
arkosningarnar, svo að það vopn
var slegið úr höndum jafnaðar-
manna. Á hinn bóginn óttast jafn-
aðarmenn að fólkið muni þykjast
sjá að fleiri geti stjórnað í Noregi
en jafnaðarmenn, ef stjórnin fær
að lafa lengi.
Gustavson, formaður sósíalist
iska þjóðarflokksins hefur lýst því
yfir að hann muni leggja fram
vantrauststillögu þegar í stað.
Jafnaðarmenn eru að því leyti i
vanda gagnvart þessari tillögu að
ef þeir fella hana þá getur Gustav
son sagt að þeir hafi ekki viljað
koma á verkamannastjórn strax og
tækifæri gafst. Á hinn bóginn ótt-
ast jafnaðarmenn að líta út eins
og taglhnýtingar Gustavsons, ef
þeir samþykkja tillöguna.
i ráðst ef m i London <
— London i morgun.
Sennilegt er talið að ráð-
stefna sú er Bretar hafa boðað
, til í London um fiskveiðirétt-
indi og markaðsréttindi hef jist,
í byrjun desember n.k. Talað
er um 3. desembér.' ..r '
Til ráðstefnunnar er boðið full i
trúum frá öllum ríkjum', V-
Evrópu, þar með ísianidi.
Guðlaugur Einarsson
Málflutningsskrifstofa
Freyjugötu 37
Sími 19740
is
Deilumar sö
— Moskvu í morgun — (NTB).
Sovétblaðið Pravda hefur gagn-
rýnt kommúnistastjórnina í Kína
harðlega fyrir að hafa elckj leitazt
við að sættast við Indverja vegna
landamæradeilu þeirra, að undan-
förnu.
Segir blaðið að þessi átök, sem
Kínverjar hafi staðið fyrir, hafi
skaðað samvinnu Afríku- og Asiu
ríkja og baráttu þeirra gegn heims
veldissinnum og nýlendusinnum.
Blaðlð bretir því við að Sovétríkin
hafi fyrir löngu tekið mjög frið-
samlega afstöðu til þessa máls,
sem leitt hefði getað til samkomu-
lags ef Kína hefði ekki þverskall-
azt.
w*.
Vantar dýragarð
Einn bændanna í Laugardal,
sem nú verður að hætta bú-
skap, sagði frá því í Vísi í gær,
að sér sýndist Reykjavíkurbörn
ekki kunna að umgangast dýr
óg þeim hætti til að vilja
hrekkja þau. Vissulega er þetta
leitt að heyra, en að sumu leyti
skiljanlegt. Tiltölulega fá börn
í Reykjavík hafa gott tækifæri
\til að kynnast dýrum, um-
gangast þau I lengri tíma.
Veruleg umgengni við dýr er
forsenda þess að menn læri að
meta þau.
Nú er kvikfénaður að hverfa
úr bæjarlandinu og verður þá
lítið eftir af dýrum annað en
fuglar og kettir. Og jafnvel
fuglalíf virðist minna f sumum
hverfum en öðrum, vegna þess
að villikettir hafa fengið að
vaða uppi. Og þótt ekki muni
áberandi mikið um húsdýrin í
Laugardal leiðir það hugann að
fábreyttu dýralífi, sem mætti
að nokkru leyti bæta úr, ef ein-
hver væri svo framtakssamur
að koma hér upp dýragarði.
Hann þarf ekki að byrja með
mikið, en möguleikarnir til
stækkunar virðast verulegir, því
börn' og fullorðnir hafa mjög
gaman af að skoða dýr. Svo er
fróðlegt að mörgu leyti, ekki
i sízt fyrir skólafólk, að geta
heimsótt dýragarð og kynnzt
þeim dýrum nánar, sem verið
er að lesa um I skólanum. Dýra-
garðar eru víðast erlendis með-
al vinsælustu stofnana í borgum
og bæjum.
Mettaður
h'ilamarkaður
Að sögn þeirra, sem þekkja
til, er bílamarkaðurinn nú því
sem næst mettaður, miðað við
að selja nýja bíla á fullu verði.
Sögusagnir eru um að einhverj-
ir bílainnflytjendur sé farnir að
selja bíla með afslætti og að
aðrir hafi gripið til þess, að
veita meiri gjaldfrest en tíðkazt
hefur. Hins vegar ber mönnum
ekki saman um hvort notaðir
bílar hafi lækkað í verði.
Þó er sennilegt að svo eigi
eftir að verða, ef lækkun hefur
ekki þegar átt sér stað. Fram-
boðið á notuðum bílum hefur
verið að smáaukast. Skýring-
arnar eru auðvitað fyrst og
fremst hinn mikli innflútningur,
sem verið hefur á nýjum bíl-
um. Svo skiptir það eflaust
einnig talsverðu máli að þeir,
sem keypt hafa bíl og aflað
sér gjaldfrestar eða fengið lán
upp á væntanlegar ofsatekjur
„í síldinni“ verða að selja,
vegna þess að tekjurnar urðu
minni en gert var ráð fyrir.
Þetta var áhætta, sem margir
tóku og verða nú að súpa seyð-
ið af. — ögmundur.
I,.V.,.VV.V.V.V.V.V.,,V.V.V.V.V.,.V.V.V.,V.V.V.VV.V.,.V.,.V.,.W.*.
.ix' Btasjsaen;
aBBBHB BBUI