Vísir - 19.09.1963, Blaðsíða 16
VISIR
Fimmtudagur 19. sept. 1963.
Allgóð
síldveiði
Allgóð sfldveiði var i Reyðar-
fjarðardýpi I gærkvifld og fengu 29
skip 15.150 mál um 50 sjómílur úti
af NorðfjarðarhornL
Brætt er nú af fullum krafti í
síldarverksmiðjum austanlands og
á Raufarhöfn á síldarbræðslan nú
8 daga vinnslu. Á sfldarplönum er
unnið af kappi við yfirtöku á síld.
Þessi skip fengu yfir 500 mál
s. 1. sólarhring:
Ársæll Sigurðsson II 500, Odd-
geir 700, Steingrímur trölli 800,
Hoffell 600, Guðmundur Þórðarson
500, Náttfari 900, Gullver 500,
Hannes Hafstein 700, Sæfari 500,
Helga RE 500, Lómur 800, Helgi
Flóventsson 600, Garðar 600, Gull-
faxi 750, Guðrún Þorkelsdóttir 700,
Sigurpáll 1500.
Iskyggileg slysaöld / Reykjavík
Mikil slysa- og árekstraöld
ríkir 1 Reykjavik og nágrenni
hennar um þessar mundir og
mun fátitt að jafn margt fólk
hafi slasazt á jafn skömmum
tíma sem einmitt siðustu dag-
ana.
I þessu sambandi þykir hlýða
að skýra frá upplýsingum sem
Kristmundur Sigurðsson varð-
stjóri í umferðardeild rannsókn
arlögreglunnar hér I borg hefur
látið Vísi í té. Hann hefur m.
a. tjáð blaðinu, að fleiri hafi
slasazt í árekstrinum mikla á
mótum Lönguhlíðar og Miklu-
brautar s. 1. föstudag heldur en
vitað var í fyrstu. Þá var vitað
um 9 manns, sem höfðu meiðzt,
en seinna hefur lögreglan feng-
ið vitneskju um 5 manns til
viðbótar, sem slösuðust í þess-
um harða árekstri, þannig að
heildartala slasaðra er komin
upp í 14 og sumir þeirra eru
rúmliggjandi ennþá. Tveim og
hálfum sólarhring síðar slösuð-
ust 7 menn uppi á Hellisheiði,
þannig að á 2 y2 sólarhring hafa
yfir 20 manns slasazt i aðeins
tveim árekstrum.
1 fyrra hafði rannsóknarlög-
reglan í Reykjavik með slys á
408 manns að gera, eða nokkuð
meir en eitt slys á dag að með-
altali. Kristmundur sagði að sér
virtist sem slysaöldin væri meiri
nú en þá, en hann sagði að sér
hafi ekki unnizt tími til að telja
siysin saman, það sem af væri
árinu. Hann gat þess jafnframt,
að nú væri svo komið að lög-
reglan hrósaði happi yfir hverj-
um þeim degi, sem ekki bæri
slys, eitt eða fleiri, að höndum.
Svo tíð væru þau orðin.
I fyrrad. varð enn eitt umferð-
arslys í Reykjavík, þar sem tvö
telpubörn slösuðust mikið. Þetta
skeði á Kleppsvegi um hádegis-
leytið. Tvær telpur, 3 og 4 ára
gamlar, voru að ganga norður
yfir götuna þegar bíl bar að,
Framh. á bls. 2
jiTn-..... ^
Ingi R. al-
þjóðlegur
skákmeisturi
í morgun barst sú frétt til
landsins að Ingi R. Jóhannsson I
I hefði verið sæmdur nafnbót-1
inni alþjóðlegur skákmeistari.
Var ákvörðun um það tekin á '
' aðalfundi Alþjóðaskáksam-
I bandsins sem þessa dagana I
i iýkur störfum í Sviss.
Árangur Inga á Olympíu-
, skákmótinu í Miinchen árið'
1958, þax sem hann tefldi á 1.1
I borði vakti mikla athygli en |
I það sem tryggði Inga að fullu i
I viðurkeimingu Alþjóðasam-
bandsins var útkoma hans á'
svæðamótinu f Halle 1 Vestur- I
| Þýzkalandi nú f sumar sem leið.
Skólastjóraembættið í Vestmannaeyjum:
HÆFASTIMAÐURINN
HLAUT EKKISTÚBUNA
Ræðir í dag um
brezkan ballett
Mr. Robert Harrold
Brezki listdansarinn Robert
Harrold flytur fyrirlestur f I.
kennslustofu Háskólans kl. 5.30
f dag um balletstjóm f óperum.
Fyrirlesturinn er fluttur á veg-
um félagslns Anglia.
Mr, Harrold var áður for-
stöðumaður Rambert-balletsins
víðkunna og hefir oft komið
fram í sjónvarpi og kvikmynd-
um. Fyrir nokkrum árum setti
hann á svið fyrsta óstytta ball-
ettinn sem sýndur var í Tyrk-
landi. Nú starfar hann að
samningu balletdansa fyrir
Glyndebourne óperuna f
Bretlandi. Hann hefir að und-
anförnu verið á fyrirlestraferð
í Bandaríkjunum og er nú á
heimleið til Bretlands. Hér
dvelst hann f.þrjá daga. Gefst
í dag og gott tækifæri til þess
að kynnast brezkum ballett af
frásögn Mr. Ilarroids.
Fyrir nokkrum dögum skip-
aði menntamálaráðherra Eyjólf
Pálsson skólastjóra Gagnfræða-
skólans f Vestmannaeyjum. Frá
farandi skólastjóri, Þorsteinn Þ.
Vfglundsson, hafði beðizt lausn
ar frá starfi sökum aldurs.
Um stöðuna sóttu þrfr kenn-
arar skólans, yfirkennarinn Sig
fús Johnsen, Eyjólfur Pálsson
og Gfsli Gunnarsson.
Elnn umsækjendanna, Sigfús
Johnsen, hlaut meðmæli þeirra
aðiia, sem um málið fjölluðu,
en var hins vegar ekki veitt
staðan.
Meiri hluti fræðsluráðs Vest-
mannaeyja mælti með þvf að
Sigfúsi Johnsen yrði veitt stað-
an. Námstjóri gagnfræðastigs-
ins, Aðalsteinn Eirfksson, mælti
einnig með þvf að Sigfús hlyti
starfið og fræðslumálastjóri,
Helgi Elíasson, taldi Sigfús vel
hæfan til að gegna stöðunni. Þá
Frh. á bls. 5.
Skólabíll-
inn kemur
Við vorum stödd vlð Austur-
bæjarskólann einn morguninn
nú fyrir skömmu, er áætlunar-
bfll renndi upp að skólanum. Er
dymar voru opnaðar, þustu út
litlir drengir og litlar stúlkur
með skólatöskur um öxl og
tóku þau á rás upp f skólaport-
ið. Þarna var kominn skólabfll-
inn, sem fer um Álftamýrar-
hverfið og flytur bömin þaðan
til Austurbæjarskólans.
Barnaskóli er enn ekki risinn
í Álftamýrarhverfinu og því var
ákveðið að böm þaðan sæktu
nám í Austurbæjarskólanum.
Þar sem vegalengdin er mikil,
hefur verið tekið það ráð að
láta bfl flytja bömin f og úr
skóla. (Ljósm. Vfsis: B. G.).
Kíkt 0 landhelgisbrjóta
úr GarSskagavita
Nýr kapltuli í sögu landhelgis-
gæzlunnar var skráður í Garðskaga
vita í fyrradag. Skrásetjarar voru
Ámi Valdimarsson og Gunnar
Ólafsson starfsmenn landhelgis-
gæzlumiar, en skrásetningatækið
var gamalt landmælingatæki, sem
flutt hafði verið upp í vitann til
að staðsetja 7 óheppna dragnóta-
báta, sem höfðu bmgðið sér inn
á bannsvæði í Garðsjónum, tvær
sjómílur undan landi. Með land-
mælingatækinu, eða sjónaukanum,
var nákvæmlega fylgzt með ferð-
um þeirra og athöfnum, og staðar-
ákvarðanir gerðar, og er það í
fyrsta sinn í sögu landhelgisgæzl-
unnar að meintir landhelgisbrjótar
eru teknir eftir mælingum, sem
gerðar em í landi. Fram að þessu
hafa slíkar mælingar annað hvort
verið gerðar á sjó eða lofti. Gunn-
ar Bergsteinsson, sem er yfirmaður
landhelgisgæzlunnar f fjarveru
Péturs Sigurðssonar, sagði Vísi í
morgun að þessar mælingar hefði
aðeins verið uirnt að framkvæma í
landi vegna þess hversu nærri landi
bátarnir vom.
Bátarnir, sem staðnir vom að
ólöglegum veiðum þama, em Gull-
toppur, Ver, Hólmsteinn, Stakkur,
Blátindur, Gylfi og Tjaldur. Munu
þeir sízt allra neita því hér eftir
að Iandhelgisgæzlan hafi auga með
þeim. Þessar meintu ólöglegu veið-
ar hafa verið tilkynntar bæjar-
fógetaembættinu f Keflavfk, sem
rannsakar mál skipstjóranna jafn-
óðum og þeir koma inn.
Landhelgisflugvélin stóð einnig
tvo togbáta að ólöglegum veiðum
út af Vfk f Mýrdal í fyrradag, öðl-
ing VE og Harald SF 70.
I