Vísir - 25.09.1963, Page 16
MiSvikudagur 25. sept. 1963.
Vantar vitni
Rannsóknarlögreglan I Reykja-
vík hefur beðið Vísi að koma á
framfæri tilmælum til ökumanns er
valdið hefur árekstrj á Miklubraut
í gærkvöldi, einhvemtíma á tíma-
bilinu kl. 20.45-21.30.
Á þessum tíma var Ólafur
Tryggvason læknir 1 sjúkravitjun
þar í húsi, en hafðj skilið bifreið
sína ,R-4528, sem er grænn Merce
des Benz, fyrir utan hús nr. 74 á
syðstu akbrautinni. Þegar læknir-
inn kom út aftur hafði bifreið ver-
ið ekið á R-4528, sennilega ekið
afturábak á hann og dældað vatns-
kassahlíf, bílnúmer o.fl. á bifreið
Ólafs. Rannsóknarlögreglan biður
bæði ökumann bifreiðar þeirrar er
valdur er að árekstrinum og eins
vitni sem séð hafa atburðinn, að
gefa sig fram við hana hið fyrsta.
■
Safnið rekið til byggða í haustsnjónum.
MENNMUNA EKKIVERRA
LEITARVEDUR EN NÚNA
— segir Þorsteinn í Vatnsleysu
Tíðarfarið hér á Iandj síðustu
daga hefur valdið margvíslegum
erfiðleikum, ekki sizt fyrir bænd-
ur og Ieitarmenn hér sunnanlands.
Þorsteinn á Vatnsleysu tjáði Visi
í morgun, að „verra leitarveður
hefði ekki komið í manna minn-
um, snjór hefði verið mikill á
fjöllum uppi og kafaldshríð alveg
niður f byggð“. Leitimar gengu
samt slysalaust og í dag, miðviku-
daginn f 22. viku sumars, rétta þeir
Tungnamenn heima f héraði.
Bæð; vegna veðurfarsins og eins
þar sem réttir eru í Biskupstung-
um f dag, hringdi Vísir Þorstein
bónda á Vatnsleysu uppi og innti
hann eftir hvernig göngur og leitir
hefðu gengið að undanförnu.
„Ég sjálfur tók ekki þátt í leit-
unum“, sagði Þorsteinn, „en ég
veit þó að leitir voru hinar erfið-
ustu vegna snjókomunnar. Voru
leitarmenn 6-7 tíma að komast leið
Bílar fastír á Holta-
vörðuheiði í gær
Guðbjöm Þorsteinsson skip-
stjóri í brúnni I Gróttu, hinu
aflasæla skipi sínu. Myndin
var tekin £ morgun. (Ljósm.
I.M.) i
Um hádegisbilið f gærdag tók
að blása upp og snjóa á Holta-
vörðuheiði. Margir bflar töfðust
og sumir stóðu fastir nokkrar
klukkustundir. Um tólf leytið f
nótt var hefill kominn frá
Hvammstanga til þess að skafa
heiðina og noþkru áður hafði
bíll frá Vegagerðinni unnið við
að aðstoða smábíla sem höfðu
stöðvazt á heiðinni.
„Það er hreinasta vitleysa að
leggja upp á Holtavörðuheiði án
þess að hafa keðjur“, sagði Ósk
ar Jónsson, vöruflutningabíl-
stjóri frá Dalvfk, sem fór yfir
Holtavörðuheiði í gærdag.
Ég fór yfir heiðina um fjögur
leytið í gærdag. Á leiðinni
mætti ég Vegagerðarbil sem
hafði tafist töluvert vegna þess
að þrír smábílar höfðu stöðvast
sunnan í Heiðarsteinsbrekk-
unni, en þar var nokkur snjór
Framh. á bls. 5
ar sinnar frá Hveravöllum inn að
Fossrófum, sem er þó stutt dag-
leið“.
Leitir taka 7 daga hjá Tungna
mönnum. Tóku nú 28 menn þátt í
leitunum. Fara þeir á bílum inn
á Hveraveili og flytja allan farang
ur þangað. Þar taka hestarnir við
og leitað er um allstórt svæði.
„Féð lítur út fyrir að vera betra,
feitara tiltölulega en venja er. Staf-
ar það af tíðarfarinu. í góðu veðri
og hitum, vill féð gjaman liggja f
forsælu og bltur þá minna. Þeg-
ar veðrið er verra er féð meira á
hreyfingu og verður vænna fyrir
vikið“.
„Og hvað er margt fjár f eigu
ykkar Tungnamanna?"
„Um 14000 fjár, en réttimar eru
þó mun minni, því þessu fé öllu
er ekki smalað á okkar afrétt.
Gangnamenn úr innsveitum
Mýrasýslu, sem Ieituðu afréttar
lönd til Þverárréttar, fengu
blindhrfð f göngum f gær og
Frh. á bls. 5.
<s>-
Erfíðri vertíð iokið
— segir Guðbjörn Þorsteinsson,
skipstjóri á aflaskipinu Gróttu
Sfldarvertíðinni er lokið.
Jafnvel aflaskipin Sigur-
páll, Guðmundur Þórðar
son, Grótta o. fl. hafa
haldið heim og fyrir aust
an eru nú aðeins 7—10
aðkomuskip. Og þau
bíða sennilega eftir veðri
til að stíma heim á leið.
f fyrradag fenj?u 19 skip
13 þús. mál, en síðan
hefur verið bræla, rok
og rigning, á miðunum.
Segja má að skipin hafi
haldið vertíðina vel út,
þvl i fyrra var hætt hálf-
um mánuði fyrr. Þó eru
allir sammála um ,að ver
tíðin í sumar hafi verið
hin erfiðasta.
Bæði hefur veður yfirleitt
verið óhagstætt og sfldin stað-
ið sig illa, staðið djúpt og verið
stygg. Vfsir náði tali af skip-
stjóranum á Gróttu frá Reykja-
vík, Guðbirni Þorsteinssyni, í
morgun og það var og hans á-
lit að vertíðin hefði verið erfið.
Sagði Guðbjörn, sem verið
hefur með fengsælustu skip-
stjórum f sumar, svo frá, „að
bæði veður og síld hefðu valdið
erfiðleikunum. Áður fyrr, þeg-
ar hvorki tæki né skip voru
sem nú, hefði lítil sem engin
síld veiðzt. — Ég hef
verið á nýju skipi í sumar,
því Grótta var smíðuð sl. vetur
og hún og annar útbúnaður
hefur reynzt ágætlega. Það
• Frh. á bls. 5.
VS-^S’H^SaSSOTiSSSBJBBi
Óskar Jónsson, vöruflutningabílstjóri.