Vísir - 07.10.1963, Síða 1
VISIR
53. áre. — Mánudacnir 7 nktrthor 10R3 — 771
Fyrsti rafheilinn
tíl ÍSLANDS
Stórmerkilegt tæki kom
flugleiðis til íslands fyr-
ir helgina og var sett
upp í húsakynnum Otto
A. Michelsen að Klapp-
arstíg 25-27. Það er
fyrsti rafheilinn, sem
hingað er fluttur. Raf-
heilinn, sem heitir IBM
Framh. á bls. 5.
Hjá Ottó A. Michelsen í morgun. Guðmundur Pálmason situr
við stjómborð IBM 1620 rafheiians, en hjá honum standa Otto
A. Michelsen og Daninn Mogens Hansen, sérfærðingur frá
danska IBM. (Ljósm. I.M.)
NCBANJARBAR VA TNSRENNSÍI
Mun hnfu miklu þýðingu fyrir
jurðhiturunnsóknir á ÍSLANDI
Þrir íslenzkir vlsindamenn
þeir Gunnar Böðvarsson, verk-
fræðingur, Þorbjöm Sigurgeirs-
son, prófessor í eðlisfræði, og
Guðmundur Sigvaldason, jarð-
fræðingur, sóttu nýlega isótópa
ráðstefnu á ítalfu þar sem
skipzt var á hátæknilegum
upplýsingum í þekklngarleit
sem er mjög þýðingarmikil fyrir
jarðhitaþjóð eins og Islendinga.
Það er sem sé hugsanlegt og
mjög sennilegt að hægt sé að
fylgjast með neðanjarðar vatns-
rennsii með fsótópamælingum
og gefur auga leið að það getur
orðið mjög nytsamlegt fyrir
jarðhitaleit, sem mikið er
stunduð hér á Iandi sem al-
kunna er. I þessu sambandi er
það mjög mikilvægt, að í sumar
eignaðist Eðlisfræðistofnun Há-
skóla íslands tæki tii að mæla
þungavatnsinnihald f vatni, en
þunga vatið er myndað úr
þungu vatnsefni, sem er vatns-
efnisísótóp. Alþjóðakjarnorku-
málastofnunin í Vfn veitti 25
þúsund dollara eða einnar
Blaðið í dag
Bls. 2 Frásögn af úrslita-
lelk bikarkeppnirtnar
—8 Lýsing Þorsteins Jós-
epssonar á göngum
á Eyvindarstaða-
heiði.
Aðfaranótt laugardags
var framið innbrot í af-
greiðslu Herjólfs í Vest-
mannaeyjum og stolið
þaðan 1 kassa af Vodka
og tveimur kartonum af
vindlingum. Lögreglan í
Vestmannaeyjum hefur
handtekið tvo unga
menn og hafa þeir játað
á sig verknaðinn.
Hér var um að ræða inn-
brot í orðsins fyllstu merk-
ingu. Piltarnir fóru upp á þak
hússins og losuðu af því þak-
plötur. Síðan söguðu þeir
klæðninguna í sundur og sigu
niður. I afgreiðslunni voru
geymdar vínbirgðir sem Odd-
fellovar áttu. Tóku piltamir
1 kassa af Vodka með sér og
einnig tvö karton af vindling
um. Einnig var nokkuð af
brennivíni í afgreiðslunni en
þjófamir rifu aðeins pakkann
upp og lokuðu honum síðan
aftur er þeir sáu innihaldið,
enda voru þeir þá búnir að
tryggja sér 1 kassa af Vodka.
Framh. á bls. 5. .
milljónar kr. styrk til kaupa á
þessum mælitækjum.
Vísir átti í morgun stutt við-
tal við dr. Gunnar Böðvarsson,
sem er nýkominn heim úr
Ítalíuför sinni. Hann sagði að
ísótóparáðstefnan hefði verið
haldin í borginni Spoleto, 8.
til 13. fyrra mánaðar, og hefði
hún verið því þýðingarmeiri er
færri hefðu sótt hana, eða að
eins 30 sérfræðingar, en það
væri orðið fátítt með alþjóð-
legar ráðstefnur. Sérfræðing-
arnir komu aðeins frá fimm
löndum, íslandi, Ítalíu, Nýja
Sjálandi, Frakklandi og Banda-
ríkjunum. Þarna var nær ein-
göngu rætt um notkun mælinga
á innihaldi laugavatns og hvera-
vatns á þungu vatni og Tritium,
sem einnig er þungur vatns-
efnisfsótóp. Dr. Gunnar Böðv-
arsson taldi vafalaust að með
notkun vatnsefnisfsótópa mætti
fylgjast með vatnsrennsli neð-
anjarðar og myndi það hafa
mikið hagnýtt gildi fyrir jarð-
hitaleit og jarðhitarannsóknir
hér á landi sem annars staðar.
í því sambandi benti hann á
hversu mikilvægt væri að Eðl-
isfræðistofunin hefði eignazt
fyrmefnd tæki til að mæla
þungavatnsmagn f vatni. Taldi
hann þátttöku íslands f fyrr-
nefndri ráðstefnu hafa verið
mjög gagnlega.
Gunnar Böðvarsson benti að
lokum á að sams konar ísótópa
mælingum og lýst hefir verið
mætti einnig beita við grunn-
vatnsathuganir, í sambandi við
vatnsvirkjunarrannsókir, og
hefði það ekki síður hagnýta
þýðingu fyrir þjóðina.
Helander bugast
á leið í réttarsal
Þegar réttur hafði verið settur f
Helander-málinu í Svea Hovrátt.
bugaðist Helander biskup og komst
ekki f réttarsalinn, og varð að
hátta hann ofan í rúm þegar. Hefir
staðið uppbúið rúm f herbergi þar
í byggingunni, ef til þyrfti að taka.
Helander, sem er 67 ára, var í
rauninni illa undir búinn þá and-
legu, og .lfkamlegu áreynslu, sem
hlaut að vera samfara réttarhöld-
uum. Átökin hafa verið mjög hörð
milli sækjanda og verjanda, —
spenningur mikill, fundir langir, ög
allt þetta hefir fengið mjög- á
Helander. S.l. fimmtudag varð
samkomulag um það miili verjanda
Nils Malmström og réttarins, að
hlífa Helander heilsu hans vegna
Framh. á bls. 5.
i