Vísir - 07.10.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 07.10.1963, Blaðsíða 3
V í S IR . Mánudaginn 7. október 1963, 3 Enn K.R.-sigur / Bikarkeppninni Hátt á 6. þúsund manns horfðu í gærdag á KR sigra Akurnesinga heldur auðveldlega í bikarúrslit- unum með 4:1, sem er e. t. v. heidur stór tala, því til þess voru yfirburðir KR-inga ekki nægilega miklir. KR-ingar hljóta því bikar Tryggingamiðstöðvarinnar á- samt lítilli afsteypu í 4. sinn, en engu öðru félagi hehir enn tekizt að hreppa þennan bikar. Leikurinn olli annars vonbrigðum manna. Það vantaði fjörið bæði í leikmenn og áhorfendur. Leikmenn voru stífir af taugaóstyrk á löngum köflum og áhorfendur gerðu lítið til að örfa þá. 1 fyrri hálfleik var leikurinn fremur jafn og Skagamenn voru í byrjun öllu ágengari. T. d. á Skúli H. hættulegan skalla á 11. mín. en Heimir rétt náði til knatt- arins. En í þessum hálfleik kom- ust KR-ingar líka í góð færi, t. d. Gunnar Felixson á 17. mín. í góðu færi, en Helgi átti auðvelt með að ráða við skotið. Ellert átti góða tilraun með langskoti stuttu síðar. Á 23. mín. áttu Akurnesingar hvað eftir annað hættuleg tæki- færi, fyrst Þórður Þórðar, þá Skúli Hákonar og síðastur Ríkharð- ur, sem átti þrumuskot ekki langt frá marki. Q Á 26. mín. kemur loks mark. Feigðarflan Helga Dan. út í vítateigshornið og Sigurþór rennir boltanum fram hjá hon- um og í markið. Áður hafði Sigurþór „stungið af“ frá bak- verðinum Þórði Árnasyni. Q En ekki eru nema tæpar tvær mínútur liðnar frá marki KR-inga, þegar Skagamenn svara. Það var Þórður Árnason Heimir grípur inn í sókn Akraness. Það er Þórður Þórðarson sem sækir að honum, en Hörður Felixson horfir álengdar á. Danir - Sviar 2:2 — og Donir urðu Norðurlandumeisturur DANIR urðu í gær Norðurlanda- meistarar í knattspyrnu. Þeir gerðu jafntefli við Svía á Idræts- parken í Kaupmannahöfn og hlutu 4 stig eins og Finnar, en vinna á betra markahlutfall 7:3 gegn 3:1 hjá Finnum. Svíar gerðu 3 jafntefli. 0:0 við Norðmenn og Finna, en 2:2 við Dani og urðu £ 3. sæti keppninnar. Sviar voru ekki árennilegir í byrjun, því eftir 6 mínútur var staðan orðin 2:0 þeim £ vil eftir stórfalleg mörk. Áhorfendumir voru þv£ f.arnir að sjá ógurlegar hrakfarir i huganum. En það und- arlega gerðist, leiknum var snúið og á 22. m£n. kom 2:1 frá Ole Madsen og sami maður átti stóran þátt í að jafna, en Kjell Thorst kom þar siðast við sögu. Hinn ungi útherji, Sigurþór Jukobsson lék félugu sínu til sigurs gegn Skugu- mönnum ú Meluvellinum ■ gærdug sem gaf hnitmiðaðan bolta fyrir markið, en Þórður Þórð- arson notfærði sér mjög skemmtilega með skalla i jörð- ina og tókst að skora hjá Heimi, sem samt hafði „lokað“ markinu eins og hægt var. Eftir þetta lagaðist leiðinda- drunginn yfir leiknum, — en því miður aðeins skamma stund, og þær 17 minútur sem eftir voru til leikshlés gerðist ekkert sem mark- vert gat talizt, þannig að í hléi var staðan 1:1. □ Seinni hálfleikur var að mestu KR-hálfleikur. Frá byrjun sóttu KR-ingar mjög og léku oft mjög hastarlega á vörn Akraness, sem var ekki mjög beysin. Strax á 2. mín. skall hurð nærri hælum. KR- ingar sóttu og Ellert Schram átti allgóðan skalla fram hjá og á sama tíma fengu KR-ingar óbeina aukaspyrnu innan vítateigs, en tókst ekki að skora. Q Á 7. mín. síðari hálfleiks rann boltihn fram hjá marki Akraness, Ellert reyndi að skalla en tókst ekki og boltinn fór til Sigurþórs, sem var nærri endamörkunum, hann var ekki lengi að afgreiða boltann, var frir og frjáls sem fuglinn og skoraði með ágætu skoti, föstu og öruggu, og hafði Helgi Daníelsson ekki nokkur tök á að verja boltann. Dr=i 1=01 li—i |—ú ^—| |—* t=T y//////////m '//////////m /////// Fyrirliðar liðanna ganga til leiks eftir leikhlé, báðir vongóðir um sigur. Til hægri á myndinni er Ingvar Elísson, greinilega ekki eins vongóður og Helgi fyrirliði. Aðeins 5. mín. síðar átti Þórður Jónsson, hinn ungi miðinnherji KR gott tækifæri á að skora 3:1 en misnotaði gott tækifæri með þvl að skjóta fram hjá. Af Akurnesing- um er það að segja að fyrsta veru- lega sóknin frá þeim kom á 15. míni, þegar Skúli og Þórður „bor- uðu sig“ gegnum vörn KR en marki "var bjargað á síðustu stundu. Á 20. min. lá við sjálfs- marki Akraness. Bogi sendi stór- skorna sendingu til Helga, boltinn hoppaði hátt yfir Helga og í horn. Þar munaði sannarlega ekki miklu að illa færi. Q 3:1 kom svo á 24. min. s. h. Það mark kom fyrir gott auga Garðars. Hann var sann- arlega ekki í sakleysislegri að- stöðu, þegar hann greip inn í leik Akurnesinga við miðlínuna stúkumegin. En þaðan sendi hann boltann inn í geysistóra eyðu sem hafði myndazt á miðju Akurnesinga og Gunnar Guðmannsson var ekki lengi að hagnýta sér þetta, og brunaði inn og skoraði. Skagamenn sóttu sig talsvert við þetta og oft munaði ekki miklu að þeim tækist að skora, en samt var greinilegt að sigurinn var ör- ugglega eign KR. KR-ingar voru nokkuð í vörn á tímabili, en Framhald á bls. 2 Danmörk og íslandí 5. sæti í landskeppni / tugþraut Vulbjörn vurð 7. með 6634 stig Vestur-Þjóðverjar báru höfuð og herðar yfir keppi- nauta sína í landskeppn- inni í tugþraut, sem fram fór í Lubeck í gær og fyrra dag. Fyrirkomulag keppn- innar var þannig að 7 þjóð ir tóku þátt, ísland og Dan- mörk með sameiginlegt lið. Fjórir þátttakendur tóku þátt í keppninni fyrir hvert land en 3 þeir beztu teknir með í uppgjörinu. Svo miklir voru yfirburðir Þjóðverja að allir 4 þátttakendur þeirra voru undan næsta manni annarrar þjóðar. Samanlagðir 3 fyrstu menn þeirra höfðu um 3000 stigum betur en næsta þjóð á eftir. Danmörk/ísland varð fimmta í þessari keppni með 17.956 stig, en Valbjöm Þorláks son varð fyrstur af þátttakend- um Dana og íslendinga með 6634. Ekki er vitað hvaða ár- angri Kjartan Guðjónsson náði en hann var annar íslendingur- inn í þessari keppni, né heldur Danimir tveir sem voru í íslenzk danska liðinu. Úrslit: 1) V-Þýzkaland 22993 2) Finnland 20102 3) Noregur 18626 4) Svíþjóð 18161 5) Danmörk/ísland 17956 6) Pólland 16831. Fyrstu einstaklingar: 1) Van Moltke, V-Þýzkaland, 7807 stig. 2.) Holdorf, V-Þ. 7669 stig. 3) Heise, V.-Þ. 7517 stig. 4) Walde, V.-Þ. 7333 stig. 5) Suutari, Finn land, 6817 stig. 6) Kahma, Finn- Van Moltke land, 6723 stig. 7) Valbjörn Þor- láksson, Island, 6634 stig. Eftir Valbirni komu 2 Finnar, 2 Norð menn og Svíi, en aðeins 12 fyrstu menn voru taldir upp í NTB-fréttinni, sem blaðið fékk í gær.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.