Vísir - 07.10.1963, Blaðsíða 16

Vísir - 07.10.1963, Blaðsíða 16
I i j i i VÍSIR Stefán Þórhallsson ræðir við föður sinn norður á Akureyri í gegnum amatör-útvarpið. Tveir menn slasasf Annað slysið varð í vöruskála Eimskips og vildi til með þeim hætti að maður féll niður af tunnu- stafla og skall á höfuðið á bílpall. Maður þessi Finnbogi Finnboga- son, var fluttur í sjúkrabíl I slysa- varðstofuna, en ekki er blaðinu kunnugt frekar um hve mikið hann meiddist. Hitt slysið varð á miðjum Lauga vegi I sambandi við umferð. Maður gekk út á götuna og beint fram fyrir bíl sem ekið var eftir göt- unni. Ökumaður snarhemlaði, enda á hægri ferð, og tókst á þann hátt að forða frá alvarlegu slysi. Maðurinn sem varð fyrir bifreið- inni marðist á læri, en meiðslin ekki -talin mikiL. Sjálfstæðisflokkurinn efn- ir tíl skymHhuppdrættis Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að efna til skyndihapp- drættis eins og oft áður. Fram- uttdan er fjölþætt flokksstarf- semi í framhaldi af sigri og traustsyfirlýsingu meiri hiuta landsmanna til míverandi stjórn arflokka í siðustu alþingiskosn- ingum. Miklu máli skiptir að stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins hafa ætíð verið reiðu- búnir ♦?! að leggja honum Iið þeg.'* orsdur á að flokk- urinn leitar til þeirra undir svipuðum kringumstæðum. Nú verður það gert á líkan hátt og áður, miðar verða seldir og vinningurinn í happdrættinu er Framh. á bls. 5. Vísir átti í morgun tal við Guttorm Erlendsson, borgarend urskoðanda vegna fregna í blöð um um fjárdrátt í sambandi við greiðslur kaupenda borgarhús- anna við Gnoðarvog. Guttormur skýrði Vísi svo frá að hér hefði ekki verið um fjár drátt að ræða. Vart hefði hins vegar orðið við misfellur í sam- bandi við innheimtu hjá kaup- endum Gnoðarvogshúsanna. At- hugun sem fram hefði farið í endurskoðunardeild borgarinnar hefði leitt í Ijós að viðkomandi starfsmaður hefði farið út fyrir embættistakmörk sín við ráð- stöfun á fé er hann innheimti. Hins vegar hefði þegar i ljós komið við rannsókn að hann hefði ekkj dregið sjálfum sér það fé sem hann veitti mót- töku. Rannsókn málsins er enn ekki að öllu lokið. Mun borgar- endurskoðandi gefa borgarráði skýrsiu um málið nú einhvem næstu daga. Mánudagur Í. október 1963. Leynivínsolur teknir Reykjavíkurlögregian hafði I ýmsu að snúast um helgina, ekki sizt vegna umferðarlagabrota. Meðal annars voru fimm ölvaðir ökumenn teknir og færðir til blóð- prufu. Einn þeirra var 16 ára unglingur og var því réttindalaus, auk þess að vera drukkinn við stýrið. Hjá honum er þar af leið- andi um tvöfalt brot að ræða. Aðra fimm ökumenn tók lög- reglan og kærði fyrir of hraðan akstur um götur Reykjavíkur. Hefur hún undanfarið tekið all- marga, einkum unglinga, fyrir þessar sakir. Tveir leigubflstjórar voru teknir fyrir leynivínsölu. Að minnsta kosti annar þeirra hefur oftar en einu sinni komið við sögu fyrir sömu sakir áður. Mál þeirra verða kærð til sakadómara. í gær var félag amatör-út- varpsmanna endurvakið á fundi á Café Höll. Áður en fundurinn hófst var komið upp á fundar- staðnum sendistöð, sem gerði félagsmönnum kleift að fá sam band út um allan heim. Ætlunin er að hafa slflra stöð í framtíð- inni á klúbbfundum, svo að þeir unglingar, sem ekki hafa bol- magn til að koma sér enn upp stöð geti notað hana til að ná útvarpssambandi út um heim- inn. Á þessum fundj komu 10 ný- ir meðlimir í félagið, en allir er áhuga hafa á amatör-útvarpi geta gengið i félagið. Samtöl I gegnum stöðina fóru fyrst þannig fram, að Stefán Framh. á bls. 5. DRÁTT ÁÐ RÆÐA Eldvarnarvikan 1963 hófst í gærdag með sýningu, sem slökkvilið Reykjavíkur efndi til við norðurenda tjamarinnar. — Allmargt manna var viðstatt sýninguna, sem fór mjög vel fram. Hvert atriði fyrir sig var kynnt jafnóðum fyrir áhorfend um, svo þeir gætu fylgzt vel með. UM 50 slökkviliðsmenn tóku þátt I sýningunni. Sýning slökkviliðsins hófst kl. 2 með því að 4 slökkviliðsmenn stukku út um glugga á gamla Iðnskólahúsinu niður í björgun- armottu. Eftir það fór fram sýn- ing á fullkomnu og handhægu björgunartæki, sem nefnt er björgunarklukka, en slík tæki hafa mjög rutt sér rúm á sviði eldvarnarmála á sl. árum, og eru þessi tæki komin í notkun hér á landi. Næst var sýnt hvernig slökkva ætti eld með hinum ýmsu efnum. Kveikt var í benz- íni og sýnt að ekki væri hægt að slökkva slíkan eld með vatni, en síðan var slökkt með froðu, Framh. á bls. 5. EKKE UM FJÁR-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.