Vísir - 17.10.1963, Síða 15

Vísir - 17.10.1963, Síða 15
8u.u í Euuiott Joiw CSIABP5 I1- + 6J2I THAT'S THE 'Og/A'HKSK OF QKIE WHO CALLS HIWSELF RETCHO, THE TKIDCy 'OS/A' >Ak\1 OF THE SCARASS — FLEWTY OF TKOUBLE HE HAS CAUSEF PEACEFU'. PoCPLE! laínt iyrir híbýli sem vinnustaði: ULBRIKA húðun á GÖLF og SÍIGA. án samskeyta. mikið slitþpl. einlitt og og litmynztrað. ULBRIKA á LOFT og VEGGI. Vamar sprungum. spará má íínpússningu, fjolbreytt, áferð og LAUGAVE6I 90-02 Stærsta úrvp! bifreiða á einum stað. - Salan er örugg hjá okkur. V f SIR . Fimmtudaginn 17. október 10% Hættuleg brúðkaups- Um leið og hún náði aftur valdi yfir sjálfri sér — hún kæfði grátinn, kyngdi honum — hélt hún áfram niður eftir göt- unni. Bílstjórinn horfði á eftir henni og skildi hvorki upp né niður. Þá sneri hann sér skyndi- lega vongóður að Peter: — Mist- er, hafið þér pantað leigubíl? Eða viljið þér kannski fá hann? En Peter heyrði heldur ekki, hvað hann sagði: — Barbara, þú verður að hlusta á mig. Bílstjórinn horfði á eftir hon- um: — Er hann einnig vitskert- ur? Hann steig upp í bílinn, setti hann af stað og ók hægt í átt til þeirra. ★ Þetta var undarleg fylking. Fyrst Barbara, síðan Peter og loksins leigubíllinn með bílstjór- ann, alveg undrandi, innanborðs. — Barbara. — Farðu. — Þú verður að hlusta á það, sem ég hef að segja. — Ef þú ferð ekki,- kalla ég , á lögregluna. — Heilaga jómfrú María, taut- aði bílstjórinn óttasleginn. — En geturðu ekki skilið? sagði Peter með bænarómi. Ég gat ekki látið hann sleppa. Hann hefði bara byrjað upp á nýtt, hefði náð í einhverja, sem enga hjálp hefði getað fengið. Ég var örvita af hræðslu þín vegna, þeg ar ég fór frá þér, en hvað ann- að gat ég gert? Lögreglan var með á skipinu og gætti þín allan tímann. Mér fannst ég ekki hafa rétt til að taka tillit til minna eigin tilfinninga ... — Þú hefðir getað sagt mér þetta áður. — Þú ert allt of heiðarleg og blátt áfram. Þú hefðir ekki getað leynt því. Hann hefði skilið .. . — ÞÍNAR tilfinningar, sagði Barbara í hæðnistón, en í raun- inni var hún alveg utan við sig. En það var ég, sem lögð var undir í klækjaspili þínu. Og það var ég, sem varð að greiða. — Það var ekki bara mitt spil, Barbara. Lögreglan var . .. — En það var þín hugmynd. Hún stanzaði og sneri sér að honum. Leigubíllinn hægði á sér. — Þú talar um þínar tilfinning- ar og hve erfitt þetta hafi verið fyrir þig. En hvernig heldurðu, að það hafi verið fyrir mig? ■ Að liggja og bíða dauðans. Og halda sig svikinn af þeim, sem maður treysti. Og ef áætlanir þínar hefðu farið út um þúfur, ef hann hefði drepið mig------ — hvað hefðirðu þá sagt? , Bílstjórinn .hlustaði, gapandi af undrun. Barbara greip fyrir andlitið: — Þér finnst kannski mikilvægara að koma honum í fangelsi en að hugsa um mig. Svo gat hún ekki meira og fór aftur að gráta. En gráturinn var | öðruvísi nú, og hún gerði enga | tilraun til að slíta sig lausa, þeg- ar Peter lagði handleggina yfir axlir hennar. — Ó, Peter, ég var viss um, að ég ætti að deyja. Að þú hefð- ir svikið mig. — Barbara, ástin mín. G^t- urðu fyrirgéfið mér?" — Ég veit, að ég hef á röngu að standa. Það var alveg rétt, að önnur hefði getað lent í þessu sama ef hann hefði sloppið ... Og hvað sem tautar, þá er þetta allt búið núna. Við verðum að gleyma þessu öllu. — Ef þú heldur, að þú getir það? sagði Peter. Þau brostu dá- lítið feimnislega hvort til ann- ars. Barbara þerraði tárin. Og bílstjórinn beygði sig út og sagði vongóður: — Leigubíl? ★ Barbara dvaldist 14 daga í við- bót í Aþenu. Nú var Aþena svo jgerólík þeirri Aþenu, sem hún j minntist frá dvölinni þar með Philip. Hún bjó ekki lengur á (Hotel King George, heldur á litlu j þægilegu hóteli í útjaðri borgar- í innar. Aþena í glampandi sól. Hún j ætlaði að gleyma öllu og láta sem þetta væri í fyrsta skipti, I sem- hún kæmi þangað — og .■m 5a9VB«HHraanaBE3 hún hafði fróðan og skemmti- legan leiðsögumann, þar sem Peter var, þvf að hann þekkti borgina út og inn og var ást- fanginn af henni — og Barböru. Storminn í hjarta Barböru lægði smátt og smátt. Það gerð- ist kraftaverk á þessum fjórtán dögum. Þótt hún enn lifði í skugga þess, sem gerzt hafði, mundi hún ekki eftir að hún hefði nokkurn tíma verið svona hamingjusöm. Hún var með Pet- er á hverjum degi. Þau fóru í stutt ferðalög — alltaf í sama leigubílnum, þeim, sem komið hafði að sjúkrahúsinu. Þau snæddu saman kvöldverð, fóru á sýningar og skoðuðu söfn, og aftur og aftur fóru þau á Akro- polis. Þau nálguðust hvort ann- að æ meira og furðuðu sig á, hve margt þau áttu sameigin- legt — þau gengu um hönd í hönd og augu þeirra ljómuðu. Akropolis við sólsetur. En svo kom dagurinn, sem ekki varð umflúinn. Dagurinn, þegar Barbara varð að snúa aft- ur heim til London. Það var svo margt, sem gera þurfti. Heimili hennar, Danny, allir vinirnir og þúsundir formsatriða biðu henn- ar. Hún varð að fara heim. Þau skildu á flugvellinum. — Peter, sem vissi, hve hrædd hún var við að fljúga, eftir að for- eldra- hennar höfðu farizt í flug- ! slysi, spurði órólegur: — Verð- ur þetta ekki allt of erfitt fyr- jir þig? j En Barbara brosti aðeins: — | Ég er ekki hrædd lengur. Ég i hugsa aðeins um það, að ég spara tíma með þessu móti. Ég hef getað verið lengur hér og ég get komið fljótar aftur. Ekkert er ein^j^vægt.£>g það. — Vertu'sæl, Barbara, sagði Peter lágt. I — Vertu sæll. j Þau hikuðu, en tóku síðan bæði viðbragð — samtímis — Peter steig eitt skref áfram og Barbara hallaði sér að honum, ekki mikið, en nægilega mikið. Peter tók hana í fang sér og j kyssti hana ástríðufullt: — Bar- bara, ég elska þig. — Vertu sæll, ástin mín. Ég kem fljótt aftur. Barbara brosti til hans. Og við leigubílinn stóð bílstjór inn og brosti út undir eyru. SÖGULOK. SRIl’A FltKTTIU Ms. Hekla fer austur um land til Vopnafjarð- ar 22. þ.m. — Vörumóttaka á morgun og árdegis á föstudag til Djúpavogs, Breiðdalsvlkur, Stöðvar fjarðar, Fáskrúðsfjarðar, ' Reyðar- fjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarðar, Borgarfjarðar og Vopnafjarðar. — Farseðlar seldir á mánudag. laugavegi 26 simi 20 9 70 ÞJONUSTAN HJÓLBARÐA SALA VIÐGERÐIR Símj 3 29 60 Skólavörðustfg 3A, 3. hæð Símar 22911 og 14624 Jón Arason Gestur Eysteinsson Lögrfæðiskrifstofa og fasteignasala. YOU'KE R1GHT,TAKZAU! HE'S HO AFRICAH- I ICMOW THIS FACE,FR0)A LOWG-LOUS tev TUAE AGOl -r-ass-rasrzzsasiHBKm Hér er einn sem þykist vera töframaður, segir Tarzan við vtni sína. Þetta er gríma töframanns- ins sem kallar sig Retcho hinn brögðótta. Hann hefur valdið mikl um vandræðum meðal friðsamra íbúa skógarins. Þú hefur á réttu að standa Tarzan, hann er ekki neinn Afríkubúa, ég kannast við þetta andlit frá gamalli tíð. Strauborð Kr. 298,00 HAGKAUP Miklatorgi DANSKAR SKÓLAPEYSUR Danskar skó^apeysur. LA STRADA hettu- peysan er nýjasta skólapeysan — 4 litir. BARNAFATABÚÐIN, Skólavörðustíg 2 Vörulager—Vörulager Góður nýr vörulager til sölu, hentugur fyrir heildsölur eða vefnaðarvöruverzlanir. Tilboð % sendist auglýsingadeild Vísis fyrir 20. þ. m. merkt „Vörulager 102“.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.