Vísir


Vísir - 17.10.1963, Qupperneq 5

Vísir - 17.10.1963, Qupperneq 5
V1SIR . Fimmtudaginn 17. október 1963. ASeins eitt boð í ritsafn Kiijans Á bókauppboði Sigurðar Bene- diktssonar í gærkveldi var ekki sýnilegur áhugi á heildar rit- safnl Kiljans. Aðeins eitt boð kom fram, 30.100 krónur, og var slegið á því verði. Ritsafninu fylgdi 30 þúsund króna boð af eigandans hálfu og það ríkti löng þögn £ salnum, unz 100 króna yfirboð fékkst í það eft- ir miklar vangaveltur og heila- br^‘ Aueins ein bók hefur verið seld á r' bekku verði áður, en það voru M. nedstidende Magnúsar Ketils- sonar — vanheil þó — sem slegin var á 30 þús. kr. á uppboði Sig- urðar Benediktssonar s. I. vor. Næst dýrasta ritsafn á uppboð- inu í gærkveldi var Árbók Ferða- félags íslands, sem seldist fyrir 9500 krónur. Alls voru 55 númer seld og í fæstum tilfellum fóru bækur á dýru verði, stundum jafnvel mjög ó dýrt miðað við gangverð hjá forn- bóksölum, svo sem Almanak Þjóð- vinafélagsins frá upphafi á 1600 kr. Almanak Ólafs Thorgeirssonar — allt nema 5 fyrstu árin — á 1000 kr. og Gátur, þulur, víkivakar og skemmtanir þeirra Jóns Árnasonar og Ólafs Davlðssonar á 1750 kr. Frísbók í Ijósprentun Munksgaard fór heldur ekki á háu verði miðað við ýmsar aðrar Ijósprentanir hans, eða á 2100 kr. Sumar aðrar bækur fóru á fullu verði, og má þar nefna Biskupa- sögur Bókmenntafélagsins á 3000 kr. Biskupasögur Sögufélagsins á Rænulaus — Framh. af bls. 16. Læknar sjúkrahússins telja sig ekkert geta sagt um sjúk- dómsorsökina á þessu stigi og heldur ekki hvaða stefnu líðan mannsins kunni að taka. Hann hefur nú legið rænlaus nokkuð á þriðja sólarhring og er enn ekki kominn til fullrar meðvitundar, enda þótt hann sé byrjaður að koma til sjálfs sín. 1050 kr. Rubiyat í þýðingu Magn- úsar Ásgeirssonar á 900 kr. Útgáf- ur Ungers af Heilagramannasögum á 1300 kr. Postulasögum á 900 kr. og Maríusögur á 800 kr. Að öðru leyti má segja að held- ur hafi verið dauft yfir þessu fyrsta bókauppboði haustsins og enda þótt þar hafi verið margt góðra og eigulegra bóka, var þar þó fátt fágætis, sem vandfýsnir safnarar sækjast eftir. I^csBbíkiin — Framh. af bls. 16. óblandið gleðiefni, að hann skuli nú verða mal- bikaður. Undanfarið hefur verið mikið um malbikunarframkvæmdir, enda hefur aðstaða til þeirra ' batnað mjög mikið eftir að hin nýja malbikunarstöð tók til starfa. Síðustu daga hefur verið unnið að malbikun Blönduhlíðar og því næst verður unnið að mal bikun Eskitorgs. Þegar malbik- un Blönduhlíðar er lokið, hafa allar Hlíðarnar neðan Lönguhlíð ar verið malbikaðar í ár. Verið er að undirbúa malbikun Stakka hlíðar, sem liggur eins og Löngu hlíð. Ætlunin er einnig að mal- bika Suðurgötu, frá Hringbraut að Fálkagötu á næstunni. Þarf lítinn undirbúning fyrir þá fram kvæmd. í rauninni nægir að renna malbikunarlagi yfir göt- una. Nóatún hefur verið mal- bikað á stórum kafla í sumar og fleiri götur, sem of Iangt yrði að rekja. ‘Samkvæmt heildaráætlun borg arstjórnar Reykjavíkur um gatnagerð næstu árin er reiknað með, að það muni kosta 909 millj. kr. að fullgera holræsa- og gatnakerfi borgarinnar og að því verki verði lokið 1972. Var sú áætlun þó miðuð við verðlag ársins 1962 og getur því hækk- að, fari verðlag hækkandi. Mótbára skipstjórans varð ógiid við radarmæiingu Skipstjórinn á togar- anum Geir var dæmdur í 260 þús. kr. sekt fyrir landhelgisveiðar og afli og veiðarfæri togarans gerð upptæk. Þetta var ákveðið í dómi, sem kveðinn var upp af Saka dómara í fyrrakvöld. Eins og frá var skýrt í rétt- ToIIering — Framh. af bls. 16. en svo mikið er víst, að skipu- lag tolleringa var nú meira en oft áður — enda ekki hjá því komizt, þar sem busar voru fleiri en nokkru sinni fyrr. Ekki eru fréttir af því að táragas- sprengjur hafi verið sprengdar eins og stundum kom fyrir hér áður fyrr .eða^tokkið hafi verið út um glugga á annarri hæð. Við hittum einn busa að máli og sagði hann okkur að tolleringar hefðu verið búnar að standa til I marga daga og sumar stúlkurnar hefðu mætt í síðbuxum allt frá þv£ er skólinn byrjaði. í gær kom svo rektor inn i stofurnar og tilkynnti, að nú ætti að tollera f þriðja tfma — varð það til þess að erfitt reynd ist nemendum að halda sér við efnið £ timunum á undan. Insp- ector scolae kom og f stofum- ar og sagði fram þær reglur, er settar hefðu verið um toller- ingamar ,en þær voru helztar að enginn mætti veita mót- spyrnu, gerð; einhver það mætti hann vera busi alla s£na ævi. Ekki mætti hlaupa burtu og alls ekki fara út af skólalóðinni. I þriðja ti'ma birtust efri bekk ingar heldur vigalegir með upp arhöldunum, hafði skipstjórinn haldið þvi fram, að þegar varð- skipið kom að togaranum, hefðu verið liðnar 40—45 mfnútur frá þvf að hann hffði botnvörpuna inn og taldi hann Iiklegt, að skip ið hefði rekið inn fyrir Iandhelg islínuna á þessum tíma, en hann hélt því fram, að hann hefði ekki verið að veiða innan Iand- helgi. En á móti þessum rökum skip stjóra kom það, að sjóliðsfor- ingjar um borð f Óðni höfðu einmitt gert staðarákvörðun tog arans í Radar-tæki um líkt leyti og skipstjórinn kvaðst hafa hætt að toga, og sýndi sú mæling, að hann hefði þá verið 1,5 sjómflu innan landhelgi. Vegna þessarar fyrri mælingar virtist dómstóln- um, að þessi mótbára skipstjór- ans missti gildi sitt og var skip- stjórinn því dæmdur sekur um landhelgisbrot. Staðurinn þar sem togarinn var tekinn, er um 23 mílur frá landi og skal það tekið fram, að staðarákvörðun fyrir veiðiskip er erfið þar. brettar ermar og hneppt frá f hálsinn. Óðu þeir inn f stofurn- ar og drógu út einn og einn busa, eins og verið væri að draga f rétt — og hernaðarað- gerðirnar, sem busar höfðu und irbúið urðu aðeins að smávægi legu bauli. Er komið var út á gras tóku nokkrir undir herðarnar, nokkr- ir undir fæturna og síðan — einn — tveir — og þrí-r upp í loft. „Þetta var ekkert agalegt“. — „Jesús, minn, ég hélt að ég ætlaði að stingast beint á höf- uðið“. — — Það hefur komið fyrir þegar stórir og stæðilegir busar hafa verið tolleraðir að efri bekkingar hafa ekki haft þrótt í sér til að grípa þá og busar þvf komið á sitjandann niður á grasflötina. Þá er öruggast að tollera stúlkurnar — og því var hvísl- að að okkur að mikillar öfund ar gætti hjá þeim er fengu strákabekk f sinn hlut í garð þeirra er fengu stelpubekk. Síldarflotinn — Framh. af bls. 1. enn byrjaðir á sfldveiðum frá Hafn arfirði, og mjög ósennilegt að nokkrir bátar byrji fyrr en um mánaðamótin. Reykjavfk: Enginn bátur hefur enn hreyft sig frá Reykjavík, en verið er að undirbúa flotann, dytta að vélum eftir sumarsfldveiðamar, mála og lagfæra. Nokkrir bátar eru tilbúnir en bfða eftir fréttum af fiski, en talsvert var um síld áður en veðrið skall á á mánudaginn. Akranes: Enginn bátur var úti í morgun, en þrír af Akranesbátun- um eru byrjaðir á sfld. Það eru Höfmngur, Höfrungur II og Sigurð ur frá Haraldi Böðvarssyni, en hinn nýi bátur Sólfari er tilbúinn til að hefja veiðar. Aðrir bátar em f óða önn við undirbúninginn og lýkur honum innan skamms. Ráðinn til London Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur fyrir nokkru ráðið Óttar Hansson fiskvinnslufræðing til þess að veita forstöðu skrifstofu SH í Lon- don. Hefur SH yfir- leitt haft söluskrif- stofu í London. — Veitti Jón Gunnars- son henni Iengi for- stöðu, en undanfarið ; hefur Hjalti Einars- son, fyrmm verk- smiðjustjóri verksmiðju SH Graves end, útborg London, stjórnað skrif- stofunni. Óvitahjal Loksins kom að því að Fram- sóknarmenn skýrðu frá því hvernig leysa á vanda efnahags- málanna. Á fundi framsóknar- félaganna f gærkvöldi skýrði Ey steinn Jónsson formaður flokks- ins frá þvf samkvæmt frásögn Tímans í morgun, að „nota yrði sparifjáraukningu Iandsins í stað þess að frysta hana í banka kerfinu, lækka vexti og fleira“. Og Eysteinn leggur einnig til að greiðsluafganginum frá í fyrra og f ár verði varið til útlána. Urræði Framsóknar eru því þau, að setja sem allra mest nýtt fjármagn í umferð. Allir, sem þekkja eitthvað til lögmála efnahagslífsins, vita, að eftir- spurn eftir fjármagni er þegar fram úr hófi og vandkvæði efna hagsmálanna stafa fyrst og fremst af slíkri fjármagns- spennu. Aukning fjármagnsins þýðir enn meiri hættu á því að krónan falli. Þetta eru stað- reyndir sem hvert einasta barna skólabarn getur gert sér ljósar. En Eysteinn Jónsson og flokks- bræður hans látast ekki enn hafa skilið þær. Aukning útlána er öruggasta ráðið til þess að framkalla stórfellda gengislækk- un og óðaverðbólgu. Það eru úr- ræði Framsóknarmanna. Þau verða aðeins einkennd með orð- inu óvitahjal. Framsókn og geýmarnir átta Þá hefur Framsóknarflukkur- inn tekið frumkvæðið af komm- únistum í Hvalfjarðarmálinu. Ey steinn lýsti því yfir í gær á þingi, að Framsóknarflokkurinn væri algjörlega mótfallinn öllum framkvæmdum Atlantshafs- bandalagsins í Hvalfirði. En Ey- steinn gleymdi þvi að fyrir 10 árum sótti hann merkan skóla- mann norður á Akureyri og gerði hann að utanríkisráðherra, þótt hann sæti ekki á þingi. Dr. Kristinn skildi mikilvægi vest- rænnar samvinnu betur en Ey- steinn og Hermann. Hann komst til æðstu metorða í samtökum vestrænna lýðræðisþjóða sem utanríkisráðherra íslands og vann samtökum Nato af ráði og dáð. 1955 var hann forseti At- lantshafsbandalagsins. Þá var samþykkt mikil fjárveiting til að gjörða f Hvalfirði, með vitund og vilja hans og vitra'ri fram- sóknarmanna. Nú ætlar hins veg ar Eysteinn að ærast vegna þess að byggja á 8 olíugeyma. í Hval firði. Með slíkri bræði gerir hann ekki aðeins sinn eigin ut- anríkisráðherra, þann mæta mann dr. Kristin, ómerkan heldur sýnir hvern fláttahug hann ber til vestrænna varna. Lengi hefir Eysteinn þótzt vera tryggur liðsmaður NATO og set ið fundi úti í París. En þegar til á að taka, neitar hann samtökun um um eina 8 olíugeyma. Er það furöa, þó íslenzka þjóðin kunni ekki að meta heilindi slíkra manna. Og efist um það að slík þjóðleg víðsýni vísi leið ina yfir Köldukvísl vandamál- anna? Vestri. Di Stefanó til ís- iands am Upp úr næstu áramótum eiga tónlistanmnendur von á góðum gesti á vegum skrifstofu skemmtikrafta, sem Pétur Pét- ursson veiti forstöðu. Það er tenórsöngvarinn Guiseppe Di Stefano, sem um er að ræöa. Einnig mun hægt að fá hinn heimsfræga fiðlusnilling Mischa Ehnan í heimsókn en ekki af- ráðið hvort af heimsókn hans verður. Von var á Di Stefanó hingað til lands fyrr en nú, er hann var á Ieið til Bandaríkjanna frá Bretlandi, en af þvi gat eltki orðið þá. Hins vegar má telja mjög gott útlit fyrir að af heim- sókn hans verði nú. Hins vegar er allt óráðið með heimsókn Elmans, enda er grundvöllurinn fyrir fiðluhljóm leikutn hér á iandi afar ótrygg ur, þar eð slíkir hljómleikar eru ekki vel sóttir að öllu jöfnu. Giuseppe D| Stefano

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.