Vísir - 17.10.1963, Side 6

Vísir - 17.10.1963, Side 6
6 V - C ’ II . Fliiiintudaginn 17.*október 1963. utlönd i morgun • > utlönd í ; mong un utlcnd í mop utl önd . u! itfdr^un ‘ /'■ - - *.*, iJMAROK'K 5PAH5Á ílÁHARft. R£PUBLM«)RITANIá!| Ca/om6'Htó£C. Fjöldamargar konur innrituð- ust í gær I her Aisír til þess að taka þátt I vörn landsins. Marg- ar þeirra börðust árum saman gegn Frökkum. Ben Bella og mikill meiri hluti alsírskra þingmanná mættu í ein kennisbúningum í gær á fundi í þjóðþinginu og voru og vopn- aðir, reiðubúnir til þess að fara til vígstöðvanna. Ben Bella hvatti þingmenn og alla til þess að taka þátt í vörn landsins. Hann hélt áfram árásum á Hass an konung V. í Marokko, þótt alsírskir sendimenn séu enn í Marakesh og sé reynt að ná sam komulagi. Ben Bella frestaði þingfundi óákveðinn tíma. Barizt var áfram f gær á sömu slóðum og áður, en ekki vitað til þess, að nein stórbreyting hafi orðið. Hitt er vitað, að bæði Marokkomenn og Alsíringar flytja skriðdreka og orrustuþot- ur til landamæranna. Herflutn- a bsadi Nú er líklegast að kunnugt verði um val á eftirmanni Macmillans f.orsætisráðherra Bretlands á morg- un (föstudag). Butler er nú efstur á blaði og Maudling fjármálaráð- herra annar, — Hailsham lávarður kominn í þriðja sæti. MacmiIIan var I morgun sagður mjög þreyttur, en hann hefir haft mikil afskipti af málum, þótt hann liggi enn rúmfastur, og vitað er að hann beitir sér fyrir að Butler verði valinn. Macmillan ræddi við ráðherrana Brooke og Heath í gær. — MacmiIIan mun verða 10 — 14 daga enn í sjúkrahúsi og lík legt er talið, að hann feli Home Iávarði utanríkisráðherra að fara á fund Elisabetar drottningar með lausnarbeiðnina. ingaflugvélar eru í notkun og í Alsír hafa læknar og hjúkrun- arsveitir verið sendar til stöðva nálægt landamærunum. KRÖFUR MAROKKO í stórum dráttum eru kröfur Marokko, að lagfæringar verði gerðar á landamærunum milli Oudje og Figuig (sjá kortið), en þessi kafli er 250 km. langur. Þessar lagfæringar eru ekki mik- ilvægar og munu ekki valda á- tökum, en öðru máli er að gegna um Iandamærin í suðri, sem allt af hafa verið ógreinileg og illa merkt, og þarna eru landamærin bogamynduð, til þess að bæði Columb-Bechar og Tindouf yrðu innan landamæra Alsír, og var þetta verk Frakka, er þeir réðu Alsír sem nýlendu, og höfðu allt í hödum sínum í Alsír, Mar- okko og Túnis. Þessu vilja Mar- okkomenn nú fá breytt og telja sennilega tímann heppilegan til að sýna hnefann, um leið og hættan á borgarastyrjöld vofir yfir Alsír. « Uppdráttur til skýringar á landamæradeilum Marokko og Túnis. □ Fánj Tunis blaktir yfir flota- höfninni í Bizerta, en þar hafa Frakkar haft yfirráð í 80 ár, og þar börðust Frakkar og Túnismenn fyrir tveim árum, en nú er .allt í bróðerni. □ Utnarikisnefnd öldungadeildar | □ Þingkosningar fara fram í Bandaríkjaþings hefir heimilið Ástralíu í næsta mánuði til fulltrúa Kennedy forseta að stöðva efna- deildarinnar, þar sem stjórn Menz- hagsaðstoð við S.-Vietnam þar til ies hefir nú eins atkvæðis nieiri- hætt verði ofsóknum í garð Buddh- j hluta. ista. fn rtctoo Miðvikudagarnir eru yfirleitt eingöngu helgaðir fundum í sam einuðu Alþingi. Dagskrá fundar- ins í gær var ofur sakleysisleg. Ákveða áttj hvernig ræða skyldi fjórar þingsályktunartillögur, sem lagðar höfðu verið fram. En ýmis legt getur gerst utan dagskrár, eins og kom á daginn. Við sjálft lá að allsherjarumræður hæfust um eina þingsályktunartillöguna, áður en búið væri að ákveða hvernig hún skyldi rædd. Fyrirspum Eysteinn Jónsson, formaður Framsóknarflokksins og 1. þing- maður Austfirðinga kvaddi sér hljóðs og kvaðst vilja bera fram fyrirspurn til utanríkisráðherra Guðmundar 1. Guðmundssonar um Hvalfjarðarmálið, svo- nefnda. Spurði Eysteinn hvort rík isstjórnin værj búin — eða hefði í hyggju — að gera, samninga við Atlanthafsbandalagið um mann- virkjagerð í HvaJfirði. Vísaði Ey- steinn til tilk. utanríkisráðuneyt isins í Ríkisútvarpinu 7. ágúst s.I., og viðræðna fulltrúa Fram- sóknarflokksins við utanrikisráð- herra daginn eftir, en þar gaf ráðherrann þeim ýmsar upplýsing ar til skýringar tilkynningunni. Svar Utanríkisráðherra var reiðubú- inn til að svara fyrirspurninni, enda hafði Eysteinn Jónsson, lát- ið svo lítið að skýra honum frá fyrirætlun sinni daginn áður, svo að hún kæmi ekk; á óvart, enda ekki þinglegt að bera fram fyrir- spurnir fyrirvaralaust. Rakti utan ríkisráðherrann sögu fram- kvæmda Atlantshafsbandalagsins eða Bandaríkjanna á íslandi, eftir að varnarsamningurinn var gerð ur, með það I huga að sýna venj ur er skapazt höfðu í meðferð þessara mála: Það hefði aldrei verið talið nauðsynlegt að bera undir Alþingi sérstaklega samn- inga íslenzku ríkisstjórnarinnar við Bandaríkjastjórn, um fram- kvæmdir á vegum varnarliðsins frá 1951. Sagði ráðherrann að varnarlið- ið hefði framkvæmt á íslandi fyr- ir þúsundir milljóna króna frá því að það settist hér að fyrir 12 ár- um. Sumar framkvæmdir hefðu verið greiddar af Bandaríkjastjórn aðrar af sérstökum sjóði Atlants- hafsbandalagsins, sem ætlaður væri til að standa straum af ýms- um varnarframkvæmdum. Nefndi utanríkisráðherra sérstaklega dæmi frá þeim tíma er embætti utanríkisráðherra var skipað Framsóknarmanninum dr. Kristni Guðmundssyni, núv. ambassador íslands í Moskvu. í hans ráðherra tíð t.d. árið 1953, fór NATO fram á samþykki ríkisstjórnarinnar til byggingar lóranstöðvar á Snæ- fellsnesi. Þetta var leyft án þess að ákvörðunin væri borin undir Alþingi. Tveimur árum síðar, 1955, var komið á fjarskiptasambandi milli herstöðva í Bretlandi og á ís- landi. Leyfði ríkisstjórnin marg- víslegar framkvæmdir á íslenzku landi, í sambandi við þetta, án þess að bera það undir Alþingi. Sama ár fór NATO fram á leyfi til að byggja eldsneytis- og sprengiefnisgeymslu í Hvalfirði. Á sama tíma var dr. Kristinn Guð mundsson I forsæti á ráðherra- fundum Atlantshafsbandalagsins. Málið var rætt hér heima, og var síðan tekið upp í áætlanir NATO og þess sérstaka sjóðs, sem fyrr er nefndur, að þetta yrði gert. Kvaðst Guðmundur 1. Guð- mundsson ekki þekkja dæmi þess að framkvæmdir væru teknar inn í fjárhagsáætlun hins sérstaka framkvæmdasjóðs, án þess að Hval- fjörður ,f skotmáli' búið væri áður að afla til þess samþykkis viðkomandi aðila, í þessu tilfelli íslenzku ríkisstjórn- arinnar. Ályktun Alþingis frá 1956 um setu varnarliðsins á ís- landi, varð hins vegar til að stemma stigu fyrir framkvæmd- um. Síðan lýsti utanríkisráðherra á- sigkomulagi stöðvarinnar í Hval- firði. Sagði hann að olíugeym- arnir þar hefðu verið settir upp árin 1942 og 1943, væru stríðs- framleiðsla, með ýmsum hennar göllum, og væri nú endurnýjun- ar þörf. Hefði nú verið farið fram á ,að leyfa byggingu 8 — átta — nýrra olíugeyma í Hval- firði og ríkisstjórnin hefði þegar samþykkt að leyfa undirbúnings- athuganir, en annað ekki. Kvað hann olíustöðina hafa þýðingu sem vara-birgðastöð, ef til ófriðar kæmi, og þá ekki síður þegar svo vildi til, að olíulaust yrði í landinu, meðan á vetrarvertíð stæði, eins og átt hefði sér stað f tveimur nýlegum tilfellum, öðr- um á dögum v.-stjórnarinnar, hinu í fyrrahaust. Þá hefði verið hægt að grípa til olíunnar í Hval- firði. Þótt fjölgun olíugeyma í Hval- firði myndi eiga sér stað, hefði það á engan hátt í för með sér breytingu á stöðu Hvalfjarðar, né hlutverki olíustöðvarinnar þar. Skipaferðir þangað yrðu þær sömu og áður. Ávítur Hannibal Valdimarsson, formað ur Alþýðubandalagsins, ávítaði Eystein Jónsson fyrir að ætla sér að hefja umræður um efni, sem þinglega fram borin tillagá nokk- urra Alþýðubandalagsmanna fjall aði um og væri ekki enn tekin til meðferðar. Síðan áréttaði hann þá skoðun Alþýðubandalagsins, að ekki bæri að taka ákvörðun um framkvæmdir í Hvalfirði án þátttökn Alþingis. Eysteinn Jónsson talaði aftur, kvaðst hafa viljað vita hvernig málin stæðu í dag og lýsti því yfir, að Framsóknarflokkurinn hefði ætíð verið andvfgur fram- kvæmdum I Hvalfirði á vegum varnarliðsins. Kvaðst hann óttast að í Hvalfirði myndi smátt og smátt rísa herstöð á borð við þá, sem er á Keflavíkurflugvelli, með þeim vandamálum, sem hún hefði skapað. Guðmundur í. Guðmundsson kvað olíustöðina í Hvalfirði ekki taka stakkaskiptum, þótt þar væru byggðir nokkrir olíugeymar til viðbótar. Þar hefðu verið milli 20 — 30 olíugeymar s. 1. 20 ár og olíustöðin yrði ekki kafbátastöð eða herskipalægi þótt nokkrir kæmu til viðbótar, eða afgreiðslu skilyrði, sem hingað til hafa ver- ið, yrðu endurnýjuð. Einar Olgeirsson kvaðst vilja mega treysta þvf að ríkisstjórnin tæki enga ákvörðun í málinu, fyrr en búið væri að afgreiða þings- ályktunartillögu Alþýðubandalags manna á Alþingi. Hann bar sömu grunsemdir í brjósti og Eysteinn Jónsson. Sagði Einar Bandaríkin fara sér hægt í viðskiptum við okkur, en færa sig upp á skaftið og óttað- ist hann að hægt^ væri að gera ísland að einu víghreiðri, ef þau vinnubrögð væru látin gilda, að bera ekki samninga um fram- kvæmdir varnarliðsins undir Al- þingi hverju sinni. Gils Guðmundsson endurtók margt af því sem Einar hafði sagt og Ólafur Jóhannesson tók einnig til máls og sagði nokkur orð. Utanríkisráðherrann batt síð an endi á umræðurnar.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.