Vísir


Vísir - 17.10.1963, Qupperneq 1

Vísir - 17.10.1963, Qupperneq 1
53. árg. — Fimmtudagur 17. oktöber 1963. — 230. tbl. Forsætisráðherra ræðir kjaramálin ÉÍ í gær gengu á fund Ól- afs Thors forsætisráð- herra ýmsir af forystu- mönnum verklýðssam- takanna, forseti Alþýðu- sambands íslands, for- maður Dagsbrúnar í Reykjavík og Einingar á Akureyri. Var fundurinn haldinn í Stjórnarráðinu. Vísir hefir góðar heimildir fyr- ir því, að forsætisráðherra hefir að undanförnu átt viðræður við þessa verklýðsleiðtoga og fleiri forystumenn verklýðsfélaga. — Fundarefnið hcfir verið það hvaða möguleikar væru tii þess að koma til móts við kröfur verklýðsfélaganna í kjaramálum án þess að til falis krónunnar ieiði og munu fulltrúar verklýðs- félaganna hafa verið spurðir um hvaða úrræði þeir teldu vænieg- ust í því efni. mryaji NOTIN TEKIN UM BORÐ Unnið er af kappi að undirbna síldarbátana á Akranesi. Myndina tók B. G. ljósmyndari Vfsis á Akranesi f gærdag. Skipverjar á aflaskipinu Haraldi eru að vinna við að setja nótina um borð. ----------------------------------------------------------------------® 2200 TONN AF FLUTT ÚT I SLÁTURTÍÐINNI Í3S3T«-. Nú í sláturtíðinnj verða flutt út um 2200 lestir af dilkakjöti til Eng- lands, sagði Agnar Tryggvason, for stjóri afurðasölu SÍS f viðtali við Vísi í morgun, en Sambandið sér algerlega um kjötútflutninginn. Er þetta talsvert meiri kjötútflutning ur en í sláturtíðinni í fyrra. Agnar sagði, að venjulega væri kjötið mest flutt út í sláturtíðinni, þar eð þá þyrftu sláturhúsin að losna við sem mest af kjötinu. Einn ig hefði verið lögð á það áherzla nú að hraða kjötútflutningi sem mest, þar eð markaðsverð á kjöti hefði verið hagstætt í Englandi undanfarið en vitað væri, að fljót lega mundi berast mikið magn af kjöti á Englandsmarkað frá Nýja Sjálandi og mundi verðið þá vafa- laust falla. 1600 LESTIR FARNAR. Agnar Tryggvason sagði, að tvö Vilja byggja 8 nýja olnigeyma Bls. 3 Blindi maðurinn og Þokki. — Myndsjá. — 4 Heimdallur. — 6 Alþingi í gær. — 8 Ný hætta i Alsír. — 9 Um hjónaskilnaði. skip væru nú að lesta kjöt til Eng lands og þegar þau væru farin hefðu þegar farið 1600 tonn, en afgangurinn færi alveg á næstunni í sláturtíðinni í fyrra nam kjöt- útflutningurinn um 2000 lestum. Enda þótt útflutningur kjöts sé mestur I sláturtíðinni er að sjálf sögðu einnig um kjötútflutning að ræða á öðrum árstfmum og ársút- flutningurinn er því að sjálfsögðu meiri. Samkvæmt upplýsingum, er fram koma í árbók Landbúnaðar- ins nam dilkakjötsútflutningurinn af framleiðslu sl. árs 2600 lestum. Verður hann fyrirsjáanlega nokkru meiri af framleiðslu yfirstandandi árs. Síidarflotinn undirbúinn Mikiil fjöldi báta' er um þessar mundir að búa sig undir vetr- arsíldveiðamar i Faxaflóa, eru nokkrir þegar byrjaðir. 1 morgun talaði Vísir við menn í verstöðun- um við Faxaflóa. Keflavík: Þar voru nokkrir bát- ar að leggja frá landi í morgun. Fjórir bátar eru þegar byrjaðir á veiðum, en í vetur verða milli 15 — 20 bátar á sfldarvertíðinni frá Keflavík. Hamast menn við að ljúka undirbúningi, það er málað af krafti og sennilegt að bátarnir verði allir komnir á veiðar um mán aðamótin. Hafnarfjörður: Engir bátar eru Framh. á bls. 5. Verið er að gera undirbúnings- athuganir fyrir uppsetningu á átta; nýjum olíugeymum i Hvalfirði. Þegar málið bar á góma í ágúst, var það á frumstigi, og var þá tal- að um að geymarnir, sem óskað hefði verið eftir að NATO fengi að reisa, yrðu milli 20 og 30. Þessar upplýsingar voru frá utanríkisráðu- neytinu. Guðmundur f. Guðmunds- son utanrikisráðherra sagði á fundi sameinaðs Alþingis í gær, að hann hefði þá ekki vitað betur og byggt á eldri umsókn. Þegar málið hefði hins vegar verið tekið til nánari umræðu, hefði komið í ljós að ekki var ætlunin að byggja svo marga olíugeyma, sem áður hafði verið talað um. (Sjá nánar á bls. 6). RisaskjaUbakan verður til sýnis á Akranesi í kvöld og í Reykjavík um helgina Einar Hansen, skipstjóri á Hólmavik, ætlaði að leggja af stað um hádegisbilið í dag með risaskjaldbökuna meðferðis til Akraness, og verður skjaldbakan sennilega til sýnis þar í kvöld. Skjaldbakan hefur verið geymd undanfarið í frystihúsi á Hólma- vík og er nú gaddfreðin, því hún hefur verið geymd í milli 20 og 30 stiga kulda. 1 símtali við Vfsi í morgun kvaðst Einar bú- ast við að koma með skjaldbök- una tii Reykjavíkur um helgina og verður hún þá til sýnis. Skjaldbakan verður flutt I lok uðum bíl til Akraness og að öllu leyti mjög vel gengið frá henni, svo að hún skemmist ekki. Ein- ar bjóst við að sýna skjaldbök- una í klukkustund í kvöld og verður hún til sýnis í frystihúsi Haraldar Böðvarssonar. „Það er alls ekki meiningin að gera þetta að neinu gróða- fyrirtæki, ég ætla aðeins að gefa fólki kost á þvi að sjá þetta furðudýr og um leið reyna að hafa eitthvað upp í kostnaðinn í sambandi við geymslu og flutn inga. Sennilega mun kosta 5 eða 10 krónur að sjá risaskjaldbök- una á Akranesi," sagði Einar. Eftir að skjaldbakan hefur ver ið til sýnis á Akranesi ætlar Ein ar að flytja hana til Reykjavíkur og býst hann við að fá inni fyr- ir hana í Fiskifélagshúsinu. Þeg- ar lokið er við að sýna risa- skjaldbökuna hyggst Einar selja hana Náttúrugripasafninu, en ekki tókst okkur að fá vitneskju um, hversu hátt gangverðið væri á risaskjaldbökum.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.