Vísir - 18.10.1963, Síða 3

Vísir - 18.10.1963, Síða 3
V 1 S IR . Föstudagur 18. október 1963 3 Ung stúíka í bláum kjól með hvítan kappa tekur á móti okk- ur og býður okkur inn. Við er- um komin í heimsókn í Hús- mæðraskóia Reykjavíkur og inn an skamms kemur skólastýran fröken Katrín Helgaclóttir. Hún hefur verið svo elskuleg að leyfa Myndsjánni að fylgjast með sér um skólann og sjá, hvað þar fer fram. í Húsmæðraskólanum eru nú 64 stúlkur, 40 í heimavist og 24 f dagskóla auk þeirra 16 stúlkna, sem eru á kvöldnám- skeiði í matreiðslu. Heimavistar skólinn stendur 9 mánuði, dag- skólinn 3 og er tvískiptur, og kvöldnámskeiðin standa 5 vikur. „Til þess að fá inngöngu í skólann“, segir fröken Katrín, „verða stúlkurnar að vera fullra 17 ára og eru þær flestar innan við tvítugt. Við höfum þó haft allt upp í 39 ára, það var 10 barna móðir. Stúlkurnar koma með mjög mismunandi menntun og undirbúning og er því oft dálítið erfitt að samræma það, en yfirleitt gengur allt vel. Stúlk urnar eru alveg prýðilegar, fyrst í stao er oft dálítill gauragang- ur í þeim, en hann hverfur fljótt. Skólinn er nokkuð strang- ur, en stúlkurnar gera sér fulla grein fyrir að þær verða að fygja skólareglunum. Ég get ekki sagt annað en að mér finnst æskan í dag yfirleitt mjög efnileg og gervileg“. Þær sem búa í heimavistinni Frh. á bls. 4. í eldhúsi dagskólans var unnið að ýmsu, en stúlkurnar tvær á myndinni voru að gera rúllupylsu og kennarinn Dag- björt Jónsdóttir fylgist með verkinu. 4 Hún var í saumatíma og var að sauma mynstur í tejpu- kjól — og ánægja hennar við vinnuna leynir sér ekki. I Það var margt fallegt að sjá í vefstólnum — reyndar við þá líka — og stúlkan við vef- stólinn á myndinni var að vefa sér efni í tösku. Þarna eru matreiðslustúlk urnar saman komnar f borðstof- unni, ánægðar eftir að hafa lokið við að Iaga hádegisverðinn.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.