Vísir - 18.10.1963, Síða 8
VÍSIR . Föstudagur 18. október 1983.
8
oœa
Utgetandi: Blaðaútgáfan VISIR.
Ritstjóri: Gunnar G. Schraœ.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Þorsteinn ó. Thorarensen.
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði.
1 lausasólu 5 kr. eint. — Slmi 11660 (5 Unur).
Prentsmiðja Visis. — Edda h.f.
Nýjar kjarabótaleiðir
Verklýðshreyfingin stendur nú á vegamótura. Öll-
um er ljóst að hin innantóma kröfugerð færir ekki
launþeganum þær kjarabætur sem hann biður um og
á rétt á að fá. Sjálfir viðurkenna verklýðsleiðtögamir
að hlutur verkamannsins sé nú verri en fyrir áratugi.
Hvar er þá kominn árangur kjarabaráttunnar í núver-
andi mynd allan þennan tíma? Harðari áfellisdóm yfir
núverandi kjaraleiðum er varla hægt að kveða upp.
Hér verður því að fara inn á nýjar brautir. Þar
eru efst á blaði vísindaleg vinnubrögð og vinnuhagræð-
ing. Reynsla annarra þjóða og álit sérfræðinga stað-
festir að með vísindalegum vinnubrögðum má auka
afköstin um 20—30% á tiltölulega skömmum tíma. Það
þýðir jafn mikla kjarabót verkamanninum til handa.
í öðru lagi höfum við þegar séð í nokkrum íslenzk-
,um fyrirtækjum hve mjög er unnt að hækka arð laun-
þegans með ákvæðisvinnufyrirkomulagi og ágóðahlut.
Þótt kauptaxtinn breytist sjálfur ekki hækka samt
tekjur verkamannsins allt að 50% með auknum afköst
um, Samfara þessu má koma vinnuhagræðingu mjög
víða við, þar sem hún er nú óþekkt.
Samvinnunefndir atvinnurekenda og launþega eru
hér einnig mikilvægt og merkilegt atriði. Þær eru einn
ig óþekktar enn hér á landi. Erlendis er því öðru vísi
farið. f vel flestum Evrópulöndum hafa þær starfað allt
frá stríðslokum og það er samdóma álit launþega og
vinnuveitenda að þær hafi unnið mjög gott starf bæði
til þess að bæta hag fyrirtækja og afla launþegunum
bættra kjara og vinnuskilyrða. En hér þarf hugur að
fylgja máli. Slíkar nefndir verða að vera meira en
nafnið tómt og vinnuveitendur verða að fá þeim í hend-
ur fullt ráðgjafavald og taka óskorað tillit til álits
þeirra og vísbendinga.
Starfsmat er enn nýlunda hér á landi. Þótt það
sé í eðli sínu ekki bein kjarabótaleið kemur það hins
vegar í veg fyrir kapphlaup einstakra stétta og starfs
hópa um launakjör, þar sem þá er afmarkað hlutfallið
milli starfshópanna innbyrðis. Væri því mikill kostur
að fá það framkvæmt sem víðast í íslenzkum atvinnu-
greinum.
Allt eru þetta mikilvæg atriði og geta fært laun-
þegum raunhæfar kjarabætur, er langt taka fram papp-
írshækkununum, sem unnar eru í löngum verkföllum.
Þau þarf að framkvæma hið bráðasta í íslenzku efna-
hagslífi.
☆
gl
||p
Hver kafli af nýja
Keflavíkurveginum, sem
tekin er í notkun verður
mikil samgöngubót fyrir
Suðumes. En jafnframt
því kemur upp nýtt
vandamál, það er sú
freisting sem fylgir
steyptum vegi fyrir öku
mennina að spretta úr
spori. Auknum öku-
hraða fylgir mikil hætta.
Nú þegar hafa orðið slys
á nýja veginum, sem
sýna hve alvarlegt þetta
vandamál er.
Enn sem komið er gilda sömu
reglur um hámarkshraða á þess
um nýja steypta vegi og tíðkast
á öllum hinum mjóu malar-
bornu vegum. En allir vita, að
eftir þeim reglum er ekki farið.
Það er í rauninni ómögulegt að
krefjast þess, að bflstjórarnir
takmarki ferð sfna við 70 kíló-
metra á nýja veginum, sam-
göngubótin fyrir Suðurnesin er
Ljósmyndin er öruggt sönnunargagn, hún sýnir bílinn og á skífu í
efra horni hraða hans og tímann þegar myndin er tekin.
jpyrir nokkru -skýrði Vísir frá
því í fréttum samkvæmt
samtali við lögreglustjóra, að
lögreglan hafi hug á að eignast
radartæki til mælinga á öku-
hraða, en þau gætu auðveldað,
mjög hraðamælingar og sparað
ar á örskotsstund. Þar þarf ekki
að mæla út tvo punkta með
tiltekinni fjarlægð á milli, held-
ur framkvæma geislinn og hin
sjálfvirku tæki mælinguna. Kem
ur hraði bifreiðarinnar þá fram á
venjulegri hraðamælisskífu, svo
Hraðaeftirlit með radar er
nauðsyn á Keflavíkurvegi
lís
■
einmitt í því fólgin að aukinn
hraði verður mögulegur og á að
vera leyfilegur.
Jjað er því lýðum ljóst, að
nauðsynlegt er að setja nýj-
ar reglur um akstur á steyptum
vegum, fyrr er vart hægt að
koma á eftirliti með umferðinni.
Það geta verið skiptar skoðanir
um, hvaða hraða á að Ieyfa,
lögreglunni starfslið við fram-
kvæmd eftirlits, sérstaklega á
Keflavíkurveginum.
Vísir hefur nú leitað upplýs-
inga um gerð og notkun slíkra
tækja og er það m. a. upplýst,
að slík radartæki eru nú víða
í notkun bæði í Evrópu og
Bandaríkjunum. Sérstaklega
þykja þau hentug til hraðamæl-
inga á hinum fullkomnu bíla-
Hér sést í radartæki í lögreglubil í notkun við hraðamælingar við
bflabraut f Þýzkalandi.
sennilega væri hæfilegt 85 eða
90 km. En þegar hraðamarkið
hefur verið ákveðið er hins veg-
ar nauðsynlegt að ströngu eftir-
liti verði komið á við veginn, að
það mark sé ekki rofið. Þó veg
urinn sé sléttur og beinn, er það
beinlínis glæframennska, þegar
bifreiðastjórar fara upp fyrir
100 km á honum, en grunur
leikur á að brögð séu að því,
núna áður en nýjar reglur og
eftirlit eru sett á.
brautum í Þýzkalandi og einnig
á þeim frekar stuttu spottum
bílabrauta, sem gerðar hafa ver-
ið i Danmörku.
Jjar eru nú einkum í notkun
tæki af Telefunkengerð,
sem hafa reynzt mjög hand
hæg. Tækin eru þannig gerð,
að eftir að radargeislinn hefur
gripið bifreið ,sem ekur eftir
veginum, er hægt með sjálfvirk-
um tækjum að mæla hraða henn
ekki er um neitt að efast. Hafa
þessi tæki reynzt mjög fljótvirk
og traust. Mælingar þeirra hafa
fengið fulla staðfestingu fyrir
dómi og ekki er um það, að
ræða, að aðrar bifreiðir, sem aka
samsíða þeirri sem verið er að
mæla geti truflað neitt.
Til dæmis um það.^hve fljót-
virk tækin eru má nefna það, að
radartækin geta mælt hraða
nýrrar bifreiðar eftir tvær sek-
úndur. Er þannig hægt að fylgj
ast með hraða allra bifreiða sem
um veginn fara og sjá hann
svart á hvítu á mælaskífunni.
Þannig myndi strax sparast
starfslið, því að við hraða
mælingar lögreglunnar fram að
þessu hefur þurft tvo bíla með
tveimur lögreglumönnum í hvor
um, en með þessu aðeins einn
bíl með tveimur mönnum.
Með örðum hjálpartækjum,
mætti jafnvel spara enn
meiri vinnukraft, en það er með
sjálfvirkum myndavélum. Auð-
velt er að koma þeim í samband
við radarinn og tekur mynda-
vélin þá samtímis mynd af bíln-
um sem verið er að mæla ásamt
skýru skrásetningarnúmeri hans
og einnig mynd af klukku er
sýnir hvenær atvikið gerðist og
mynd af radar-hraðaskífunni.
Þannig verður ljósmyndin
öruggt sönnunargagn, sem ekki
er hægt að véfengja fyrir dómi
og þýðir þáð, að ekki þyrfti að
vera nema einn maður í eftir-
litsbifreiðinni. Er auðséð að slíkt
tæki myndi mjög styrkja eftir-
litið með Keflavíkurveginum,
sem nauðsynlegt er að koma á
sem fyrst.