Vísir - 18.10.1963, Síða 16
VÍSIR
Föstudagur 18. október 1963.
Home í áheyrn
hjá drottningu
Home lávarður, utanríkisráð-
herra, gekk á fund Elfsabetar
drottningar f Buckingham-höll
árdegis ,óg er talið að drottn-
ing muni feia honum stjórnar-
myndun.
Drottning hafði áður farið í
sjúkrahúsið til Macmilians til
þess að ráðgast við hann. Ræddi
drottning við hann i hálfa klst.
SEINUSTU FRÉTTIR:
Drottningin hefir falið Home
lávarði stjórnarmyndun.
Sjá nánara á 6. sfðu.
Tvö risafyrirtæki
viB íslenzku
Islenzku flugfélögin eru
um þessar mundir að fá
mikla samkeppni, þar
sem eru flugfélögin SAS
og Pan American. SAS
hóf í gær flug á DC-7C
skrúfuþotum yfir At-
lantshafið og var fyrsta
vélin þéttsetin og upp-
selt er í fyrstu 3 vélam-
ar og búast SAS-menn
við miklum önnum í
þessu flugi. Pan Ameri-
can hóf fyrir tveim vik-
um flug á DC-8 þotum
gegnum Keflavík og hef-
ur það flug gengið afar
vel.
Ferðir SAS verða fjórum sinn
um f viku og verður flogið frá
Kaupmannahöfn til Gautaborgar
þá til Oslo eða Bergen en þaðan
án viðkomu yfir hafið til New
York. Verðmunur á miðum með
skrúfuþotunum og flugvélum
með þrýstiloftshreyflum er rúm
ar 1000 danskar krónur á leið-
inni frá Kaupmannahöfn til New
York fram og til baka og kost-
ar tæpar 3000 krónur danskar.
Kristján Guðlaugsson hjá Loft
leiðum sagði okkur í morgun:
„Við kjósum sem fyrr að starfa
eftir ,,móttóinu“ að flýta okkur
hægt. Pað hefur orðið mjög vin-
sælt eins og raun ber vitni.
Flutningarnir hjá okkur eru sem
fyrr eðlilegir og ég held að við
Framh. á bls. 5.
FCNSU 800 RJÚP-
UR A CINUM DC6I
Rjúpumar eru teknar að streyma
í verzlanir f Reykjavík, en veiði-
tfmabilið byrjaði sem kunnugt er
15. okt. Okkur tókst ekki að fá
vitneskju um verð á rjúpunni, en
almennt áiitu kaupmenn að það
yrði til að byrja með um 55 krón-
ur. Samkv. upplýsingum hefur
rjúpnaveiði yfirleitt verið góð og á
sumum stöðum gengið mjög vel.
Fyrsta dag veiðitimabilsins fóru
20 menn upp að Tröllakirkju frá
Fornahvammj og fengu þeir alls
800 rjúpur eftir daginn. Flestir
þeirra voru flugmenn og hæstur
var Björn Guðmundsson, flugmað-
ur með alls 62 rjúpur. Veður var
hálf siæmt á heiðinni í morgun, en
þrátt fyrir það héldu nokkrir til
veiða frá Fomahvammi.
Meðfylgjandi mynd tók ljós-
myndari Vísis, B.G. f kjötbúðinni
Borg í morgun. Á henni sést Val-
geir Vaidimarsson halda á nokkr-
um rjúpum ,sem komu f verzl-
unina í morgun.
Leikféhsg Reykþvíkur sýnir
nýjasta leikrít eftir Sartre
Fangarnir í Aitona heitir nýj-
asta leikrit hins fræga Jean Paul
Sartre. Leikrit þetta hefur nú
verið þýtt á íslenzku og verður
næsta viðfangsefni Leikfélags
Reykjavfkur. Æfingar eru hafn-
ar og sýningar munu hefjast
um miðjan næsta mánuð. Leik-
stjóri verður Gísli Halldórsson,
en í aðalhlutverkum Helgi Skúla
son, Helga Bachmann, Sigríður
Hagaiín og Brynjólfur Jóhannes
son.
Eins og kunnugt er hefir Leik
félag Reykjavíkur lengi haft
hug á að byggja fyrirhugað leik
hús sitt á Klambratúninu ,og
var það til umræðu. En nú þyk-
ir aftur ólfklegra að leikhúsið
verði reist á þvf svæði. Leikfél-
aginu hefir alllengi staðið til
boða lóð á Háaleitinu, sunnan
Miklubrautar og vestan Háaleit
isbrautar. En það hefir verið
tregt til að flytja starfsemi sína
langt út úr gamla Miðbænum.
Nýlega var Leikfélaginu gefinn
kostur á annarri lóð, sem einn-
ig er á Háaleitissvæðinu, það
er að segja sunnan Miklubraut
ar og austan Kringlumýrar-
brautar, en ekki hefir verið tek-
Frarnh. á bls. 5.
Ömurleg aíkoma
Um miðjan dag í gær var iög-
regla ásamt barnaverndarnefnd
Glæsileg aukning skipastóls
Vestmannaeyinga
4 ný 200 lesta stálskip að koma
VESTMANNAEYING-
AR eiga nú von á 4 nýj-
um glæsilegum fiskiskip
um, 200 lesta stálskip-
um, sem smíðuð eru í
Hollandi og Noregi. —
Sýna kaup þessara glæsi
legu skipa, að útgerðar-
menn í Eyjum eru bjart-
sýnir á framtíð útgerðar
enda eru Vestmannaeyj-
ar mesti útgerðarbær
landsins.
Það eru fjórir aðilar, sem eiga
von á hinum nýju fiskiskipum,
þ. e. Kristinn Pálsson og fleiri,
Ársæll Sveinsson, Óskar Sigurðs
son og Rafn Kristjánsson. Einn
hinna nýju báta er smíðaður í
Hollandi, en hinir þrfr í Noregi.
Yfir 90 bátar eru nú gerðir út
—* ------------------
frá Vestmannaeyjum. Eru flestir
bátarnir nú á dragnótaveiðum
og hefur afli verið góður, þegar
gefið hefur á sjó, en tíð hefur
verið mjög stirð. Sem stendur
má heita að nægilegur mannafli
sé í Eyjum, en þó rétt tæplega
og útgerðarmenn og eigendur
fiskvinnslustöðva þar gera sér
það ljóst, að mikil hætta er á
vinnuaflsskorti í vetur, er vetr-
arvertíð hefst. Eigendur smærri
báta eru einnig mjög uggandi
um það, að erfitt verði að
manna smærri báta, þar eð sjó-
menn vilja að sjálfsögðu eink-
um vera á hinum stærri og full
komnari fiskiskipum. Mun þessi
ótti eigenda hinna smærri báta
hafa verið aðalundirrót tillögu,
er samþykkt var á sfðasta fundi
Útvegsmannafélags Vestmanna-
eyja, en í þeirri tillögu var skor
að á ríkisstjórnina að kaupa all-
an bátaflota Vestmannaeyja og
gera hann út! Björn Guðmunds-
son, fyrrverandi formaður félags
ins, talaði gegn þessari tillögu
á fundinum, en ei að síður var
hún samþykkt. Munu útvegs-
menn í Eyjum þó tæplega ætl-
azt til þess, að tillagan sé tekin
alvarlega, a. m. k. varla þeir úr
hópi þeirra, sem nú eru að
kaupa ný fiskiskip til landsins.
kvödd að íbúðarhúsi einu við Hverf
isgötu vegna drykkjuláta óðs
lýðs. En í þessum hópi var um-
komulaust kornabarn, nokkurra
mánaða gamalt.
í íbúðinni voru 5 manns, auk
barnsins. Voru það húsráðendur,
hjón, ennfremur kona, móðir barns
ins og loks tveir karlmenn, sem
voru öll gestkomandi hjá hjónun-
um.
Upphófst mikil drykkja, þótt dag
ur væri aðeins miður og þar kom
að nágrannafólk taldi ástæðu til
að kveðja lögregluna á vettvang.
Sögðu lögreglumennirnir aðkomuna
hafa verið átakanlega, allt full-
orðna fólkið dauðadrukkið og svo
viti sínu fjær, að það vissi ekkert
hvað það aðhafðist. Hafi það verið
hrein mildi og tilviljun ein, að það
skuli ekki hafa slangrað ofan á
barnið, sem var þarna algerlega um
komulaust og án þess nokkuð væri
um það hugsað.
Barnaverndarnefnd var gert að-
vart. Hún kom á vettvang og tók
barnið í sína umsjá. Lögreglan
hafði hins vegar afskipti af full-
orðna fólkinu og taldi ástæðu til
að flytja móður barnsins og annan
hinna gestkomandi karlmanna í
fangageymslu. Hjónunum og hinum
karlgestinum var sleppt.