Vísir - 21.10.1963, Blaðsíða 2
I
VÍSIR . Mánudagur 21. október 1963.
róttara grátt
Betur má ef duaa
Þrír fyrstu leikir Reykjavikur-
mótsins i handknattleik karla
fóru fram um þessa helgi og er
nánar sagt frá þeim hér á síð-
unni.
Það var áberandi með þessa
leiki cins og oftast í fyrstu um-
ferðum handknattleiksmóta að
Iiðin eru langt frá getu. Þetta
væri ekki mikið vandamál, ef
ekki stæði fyrir dyrum heim-
sókn eins bezta handknattleiks-
liðs í heiminum í dag, SPART-
AK PILSEN frá Tékkóslóvakíu,
sem kemur hingað eftir rúma
viku á vegum ÍR.
í liði Spartak eru að sögn 4
eða 5 landsliðsmenn og liðið í
heiid er i fullri æfingu og er
ofarlega í 1. deild um þessar
mundir. Það verður því erfiður
róður fyrir okkar menn, ef ekki
skal..
verður haldið vel á spöðunum
fram að heimsökn, og þær ör-
fáu æfingar, sem eftir eru full-
nýttar.
Handknattieiksfólkið okkar er
annars mjög líklegt til stórra
afreka í vetur. Nóg er af
efnisfólki bæði hjá körlum og
konuni, bara að æft verði af
kappi.
Furðulegustu úrslit á laug-
ardagskvöld í Reykjavíkur
mótinu var e. t. v. tap
hinna reyndu Þróttara
gegn hinum kornungu en
efnilegu Valspiltum. í lið-
inu er elzti leikmaður 24
ára en flestir eru undir 20
ára aldri. Þarna er um lið
að ræða, sem á bjarta fram
tíð fyrir sér, ekki sízt þegar
farið verður að leika á stór-
um velli.
Fyrri hálfleikur var ekki ójafn en
enginn vafi var á að Valsliðið lék
mun betur og máttu Þróttarar vel
við una að hafa aðeins eitt mark
undir 5 —6 í hálfleik, en tvö fyrstu
mörk Þróttar í leiknum voru mjög
klaufaleg mistök markvarðar.
í seinni hálfleik léku Valsmean
Þróttara grátt. Á 2 - 3 mínútum
var staðan orðin 9 — 5 fyrir Val, en
eftir 5 mínútna leik stóð 11-6.
Þannig héldu Valsmenn áfram að
mola Þróttara niður og unnu með
17 — 8 sem voru sanngjörn úrslit.
Valsliðið er mjög gott og líklegt
til afreka í vetur. Gylfi Jónsson,
Bergur Guðnason og Jón Ólafsson
markvörður voru beztu menn Vals,
en hjá Þrótti voru aðeins tveir
menn nokkuð góðir, þeir Guðmund
ur Gústafsson, markvörður og Þórð
ur Ásgeirsson, aðrir afar lélegir.
Sðgiflr
ingum sens siasSdnn IícIm áff isekaFð bik
Ekki fengu menn
eins spennandi uppgjör
milli Fram og Víkings í
Reykjarvíkunnótinu í hand
knattleik og menn höfðu
vænzt fyrir leikinn. Frain-
arar héldu uppi hraða og
hörlcu lengi fram eftir og
tókst að „rota“ Víkingana
og ná öllum völdum í sókn
og vörn. Hafa Víkingar
ekki átt svo slakan leik
mjög lengi.
Framarar náðu í upphafi 2-0 for-
ystu með mörkum Ágústs Odd-
geirssonar og eftir það má segja
að sigur þeirra hafi ekki verið I
tiltakanlegri hættu. í hálfleik var
staðan 5—1 og í seinni hálfleik
juku Framarar enn forskotið.
1. jnark seinni hálfleiks kom að
vísu frá hinum unga Gunnari Gunn
arssyni, sem minnkaði bilið í 5-2
fyrir Víking, en eftir fylgdi ráða-
leysiskafli hjá Víkingunum gegn
hinum fljótu og harðskeyttu Fröm
urum. Ingólfur Óskarsson skorar
úr næstu sóknum fyrst úr vítakasti,
eftir að brotið var á Framara á
línu, þá með góðu skoti og loks
með vítakasti eftir línubrot. Staðan
var því orðin 8-2 fyrir Fram á
fremur skömmum tíma.
Eftir þetta var slakað á hraðan-
um og Víkingar fóru aðeins að
átta sig og tókst að minnka bilið
í 9-6, en hinn stutti leiktími í þessu
móti 2x15 mín. gerði það að verk-
um að sigur Fram var aldrei í
verulegri hættu. Fram tókst líka að
svara fyrir sig með hressilegum
lokaspretti, sem tryggði þeim 5
marka sigur 12-7.
Leikurinn var heldur slakur, leik
menn eru greinilega ekki búnir að
samlagast Hálogalandi og margir
eru langt frá að vera í góðri æf-
ingu. Beztir voru þeir Ingólfur
Óskarsson og Sigurður Einarsson
hjá Fram en Rósmundur, Pétur og
Brynjar Bragason hjá Víking.
Dómari var.Magnús Pétursson og
dæmdi ágætlega.
Þarha braut Ingólfur illa á Sigurð Hauksson, sem var kominn inn
á línu. Ingólfur ýtti aftan á Sigurð sem hrökk illa út f þil og meiddist
lítilsháttar. Dómarinn sá elckert athugavert við þetta brot.
Skoruðu uðeius eitt murk
Víkingar þjarma að Sigurði Einarssyni, sem hefur farið í gólfið með boltann. Það eru Pétur Bjarnason og
Steinar Halldórsson sem standa hjá honum en Ólafur Friðriksson horfir á.
6:1
Einstætt afrek var
unnið í leik ÍR og Ár-
manns sem var fyrsti
leikurinn í Reykjavíkur-
mótinu í handknattleik.
Ármann skoraði aðeins
eitt einasta mark í leikn-
um, — eitt mark í öllum
þeim f jölda tilrauna sem
þeir gerðu á 30 mínútum
leiksins. Lokatalan var
heldur ekki há, 6 mörk
gegn einu, mjög óvenju-
legt, jafnvel í stuttum
leik sem þessum.
ÍR byrjaði leikinn vel og
Hermann skoraði fyrsta markið
Tilraunir Ármenninga strönd-
uðu annað hvort á markstöng-
unum eða í fangi markvarðar-
ins Jöns Jónssonar, sem átti
sinn bezta leik. Gylfi Hjálm-
arsson bætti tveim mörkum
við, þrumuskotum sem sungu í
netinu og Hermann bætti 4 — 0
við skömmu fyrir hálfleiksiok.
Heppnin var hliðholl Ármenn
ingum seinast í þessum hálfleik,
loksins. Örfáum sekúndum áður
en biístra dómarans gall við,
skoraði Árni Samúelsson eina
mark Ármanns f gegnum all-
stóra varnarglufu sem hann
Framh. á bls. 5.
Sfaðon ■
Rvk. mófinu
Eftir 1. umferð í Reykjavíkur-
mótinu í handknattleik er stað-
an þessi:
Valur 110 0 17—8 2
Fram 110 0 12—7 2
ÍR 1 1 0 0 6—1 2
Ármann 1001 1 — 6 0
Víkingur 10 0 1 7—12 0
Þróttur 10 0 1 8—17 0
Markhæstu menn cru:
Ingólfur Óskarsson, Fram 6
(3 úr vítaköstum),
Bergur Guðnason, Val, 5,
Þórður Ásgeirsson, Þrótíi, 4
(2 úr víti),
Gunnsteinn Skúlason, Val, 3,
Sigurður Dagsson, Val, 3,
Gylfi Hjálmarsson, ÍR, 3.