Vísir - 21.10.1963, Síða 3

Vísir - 21.10.1963, Síða 3
Visiit 3 MYNDSJ í' ' ' ■ ■ : :: t# ' : . ' S \ • \ S • ' íPIPIéI ■ : I J s> ■ ■■• '. .... Á laugardag varði Ólafur Bjarnason yfirlæknir og dósent doktorsritgerð sína um leg- krabbamein á íslandi. Hófst at- höfnin kl. 2 f hátíðasal Há- skóla Islands. Mikill fjöldi manns var saman kominn til að hlýða á doktorsvörnina og fengu færri sæti f salnum en viidu. Meðal áheyrenda voru háskóia- rektor, prófessorar og miklil fjöldi lækna og læknastúdenta. Forseti læknadeildar próf. Davíð Davíðsson tók fyrstur til máls og stýrði siðan athöfnlnni. Þá tók doktorsefni til máls og gerði grein fyrir tildrögum að ritgerðinni og rakti í stuttu máli efni hennar. Að ræðu hans lokinni tók til máls fyrri andmælandi dr. med. próf. Júlíus Sigurjónsson. Fjallaði hann aðallega um skýrslur og tölur í ritgerðinni og gerði ýms- ar athugasemdir en að venju varði doktorsefni ritgerð sína eftir megni. Síðari andmælandi Pétur Jakobsson dósent og yfir- læknir fjallaði um sjúkdóminn og greiningu hans og gerði sín- ar athugasemdir en bæði hann og fyrri andmælandi luku f heiid miklu Iofsorði á ritgerðina og kváðu hana hið merkasta heimildarit og ' grundvöll að framhaldsrannsóknum. Hvatti Pétur Jakobsson lækna til að fara að dæmi Ólafs Bjarnason- ar. Þvf næst lýsti forseti lækna- deildar því yfir að þar sem rit- gerð doktorsefnis hefði verið metin hæf til doktorsvarnar væri Ólafur Bjarnason nú rétt- nefndur doktor Háskóla íslands. Óskaði hann sfðan hinum nýja doktor til hamingju og ámaði honum allra heilla í framtíðar- starfi og rannsóknum. Hinn nýi doktor þakkaði og flutti Háskóla íslands árnaðar- óskir sínar. Að því búnu sleit forseti læknadeildar, próf. Davfð Davíðsson athöfninni. Efsta mynd t. v.: Doktors- efnið Ólafur Bjarnason ver rit- gerð sfna. Efsta mynd t. h.: Fyrri and- mælandi dr. med. próf. Júlíus Sigurjónsson gerir teikningu af lfnuriti á töflu til útskýringa á athugasemdum sínum. Doktors- efni fylgist með. Mynd t. v.: Andmælendurnir tveir, dr. med. próf. Júlíus Sig- urjónsson t. v. og Pétur Jakobs- son dósent og yfirlæknir. Myndin til hliðar: Séð yfir nokkurn hluta áheyrenda. Með- al þeirra má greina: háskóla- rektor, Ásmund Brekkan, lækni, próf. Snorra Hallgrímsson, dr. Bjarna Jónsson, Guðjón Guðna- son lækni, dr. Sigurð Þór- arinsson, Þórarin Guðnason lækni, dr. Friðrik Einarsson, Steingrím Baldursson, próf. Guðmund Thoroddsen, Bjarna Bjarnason lækni, Jónas Bjarna- son Iækni, próf. Sigurð Samúelsson, Pál Kolka lækni, dr. Árna Árnason, Guðmund Benediktsson lækni, Ólaf Jens- son Iækni og dr. Bjarna Guðna- son.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.