Vísir - 21.10.1963, Blaðsíða 9

Vísir - 21.10.1963, Blaðsíða 9
V1SIR . Mánudagur 21. okioDer 1963. 9 Rætt viö Harald Böövarsson, útgerðarmann, sem gaf Ak- urnesingum BÍÓHÖLLINA fyrir tuttugu Hinn 28. september 1943, barst bæjarstjórn Akraness svohljóðandi bréf: „Við undirrituð hjón höfum ákveðið að gefa Akraneskaupstað, kvikmynda- og hljóm- leikahúsið Bíóhöllina, við Vesturgötu með á- fastri gangstétt og lóð undir húsið. Stærð lóðar innar ákveðum við síðar í sambandi við skipulag. Bíóhöllin er gefin með sætum, sýningavélum og öðrum innanstokks- munum, eins og það verð ur um næstu mánaða- árum af þvf, að um þessar mundir eru liðin tuttugu ár frá þvf að Bfó- höllin hóf starfsemi sfna. Við hittum Harald og frú Ing- unni heima í hinu vistlega íbúð- arhúsi þeirra við Vesturgötu. — Þegar Bíóhöllin barst í tal, varð Haraldur fámáll og vildi sem minnst gera úr gjöf þeirra hjóna. — Það. var eins hér og á mörgum öðrum stöðum, að mik il þörf var fyrir peninga til menningar og líknarstarfsemi. Og það var þess vegna sem okk ur hjónunum datt í hug að byggja Bíóhöllina og gefa hana. Því um leið og Akurnesingar eignuðust kvikmyndahús, sem gæti einnig orðið hljómlistar og leiklistarlífi bæjarins lyftistöng, gæti Bíóhöllin Iagt til nokkurt fé til byggingar sjúkrahússins, sem þá var og er enn f dag mik- ið nauðsynjamál, segir Haraldur. ina sem þau gáfu Akumesingum fyrir 20 árum. Bíóhöllin hefur lagt yfir milljón króna til byggingar sjúkrahúss mót“. — Undir bréfið rituðu hinn landskunni útgerðarmaður, Harald- ur Böðvarsson, og kona hans frú Ingunn Sveins- dóttir. Og 8. október 1943 hóf Bfó- höllin starfsemi sína. Á einu ári hafði stórt og reisulegt hús, sem rúmaði 377 manns f sæti risið við Vesturgötu. Þá var íbúatala Akraneskaupstaðar 2026 fbúar. I dag búa yfir 4. þúsund manns á Akranesi, og þó að tuttugu ár séu liðin frá þvf að húsið var byggt, er Bíóhöllin meðal stærstu og glæsilegustu kvik- myndahúsa á landinu. Lýsir þetta vel framsýni sæmdarhjón- anna, sem gáfu það. Allur ágóði af rekstri Bíóhall arinnar hefur runnið til bygging ar sjúkrahússins á Akranesi, og um síðustu áramót var framlag Bfóhallarinnar til sjúkrahússins orðið 1. milljón 134 þús. krónur. Peninga vantaði til menningar og mannúðar starfsemi. Einn góðveðursdaginn fyrir skömmu skruppum við upp á Akranes þeirra erinda að rabba við Harald Böðvarsson í tilefni Engin teikning gerð af húsinu. — Og hvernig gekk að byggja? — Það gekk í alla staði ágæt- lega. Mörgum finnst það eflaust nokkuð spaugilegt, þegar ég segi ,að engin teikning hafi ver- ið gerð af húsinu. Sannleikurinn var sá, að ég sá mynd af kvik- myndahúsi f Stokkhólmi, og fór töluvert eftir þeirri mynd. Ég kom á hverjum degi til smið- anna og sagði þeim fyrir. En um leið gætti ég þess að hafa bygginguna nógu sterka, vegg- ina þykka og hæfilega mikið af járni. — Svo hefur verið haldin sér- stök hátíðarsamkoma, þegar Bíó höllin var opnuð? . — Já, rétt er það. Þar voru ræður haldnar, m. a. töluðu þeir séra Þorsteinn Bjarnason, Pétur Ottesen og Olafur Björnsson. Eft ir ræðuhöldin var kvikmynda- sýning. Fyrsta myndin hét Refsi nornin og var ekki álitin nein úrvals kvikmynd. Mihjónasti gesturinn á þessu ári. — Hvernig hefur reksturinn gengið frá þvf húsið tók til starfa? — Reksturinn hefur gengið ágætlega, en það er ekki hægt að segja, að Bíóhöllin sé neitt stórgróðafyrirtæki. Frá því hún byrjaði að starfa hafa verið haldnar 7452 kvikmyndasýning- ar, og sýningagestir eru örðnir alls 946.216 þús. Þessar tölur miðast við síðustu áramót, og er því útlit fyrir að milljónasti gesturinn komi á þessu ári. Árið 1944 komu í Bíóhöllina alls 56,455 gestir á kvikmyndasýning ar. Það árið sýndum við alls 185 myndir og á hverja sýningu komu að meðaltali 305 manns, sem er mjög góð sætanýting. Ehvið tökum svo aftur síðasta ár, þá voru sýndar í Bíóhöll- inni alls um 140 kvikmyndir, sýningarnar voru 390 talsins, en tala sýningargesta 53 þús. Það eru að meðaltali 136 gestir á sýningu. í sambandi við árið 1944 er vert að geta þess, að þá var mikið um hermenn hér sem sóttu kvikmyndirnar. En tölurnar frá síðasta ári sýna það, að Bíóhöllin er ekki ennþá orðin of lítil. — En Bíóhöllin er notuð fyrir fleira en kvikmyndasýningar? — Já, þar eru m. a. haldnar söngskemmtanir, leiksýningar og fundir. Yfir milljón krónur til sjúkrahúsins. — Frá því Bíóhöllin hóf starf semi sína, hefur hún greitt tii byggingar sjúkrahússins 1 millj- ón 124 þús. Þar með talið lán, sem tekið var vegna byggingar sjúkrahússins 1950 að upphæð 500 þús., sem Bfóhöllin tók á sig. Einnig verður að geta þess, að kvenfélagið lagði að mig minnir 160 þús. kr. til sjúkra- hússins, og einnig var til sjúkra skýlissjóður sem átti ein 100 þús. Þetta fé nægði til þess, að hægt var að byggja upp sjúkra húsið og afhenda það bænum skuldlaust. — Ekki greiðir Bíóhöllin neina skatta? — Þá komum við að þvf, sem mér hefur fundist sárast í sam- bandi við starfsemi Bfóhallarinn ar. Hún hefur ætfð þurft að greiða bæði sætagjald og skemmtanaskatt, sem var t. d. á síðasta ári yfir 80 þús. Látum það vera, ef þetta væri ein- staklingsfyrirtæki, en Bíóhöllin er eign bæjarins og allur ágóð- inn rennur til sjúkrahússins. — En þið eruð bæði ánægð með reksturinn? — Jú, það erum við bæði, svo sannarlega. Við vonum, að allt eigi eftir að ganga eins vel f framtíðinni og það hefur gengið hingað til og Akurnesingar eigi eftir að njóta Bíóhallarinnar vel og lengi. — p. sv. Flugfélogið og Iberio und- irritu umboðssumning Flugfélag Islands og spánska flugfélagið Iberia hafa undirrit- að gagnkvæman umboðssamn- ing, þannig að Flugfélag fslands fer með aðalumboð Iberia á ís- landi og Iberia með aðalumboð Flugfélags fslands á Spáni. Alfredð Fuchs-Medem, aðal- fulltrúi Iberia í Bretlandi og norðanverðri Evrópu, kom til Reykjavíkur til samningagerð- arinnar ásamt Jóhanni Sigurðs- syni fulltrúa Flugfélags fslands í London. Þessi samningur er hinn fimmtándi um gagnkvæmt aðal- umboð, sem Flugfélag íslands gerir við erlend flugfélög, en auk þess fer félagið með aðal- umboð T.W.A. hér á landi. Spánska flugfélagið Iberia hefir um þessar mundir I undir- búningi stórfellda aukningu á sölustarfsemi í norðanverðri Evrópu og á Bretlandseyjum og hyggst á næstunni taka upp flug til nokkurra staða þar, m. a. Glasgow.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.