Vísir - 13.11.1963, Síða 2
V í SIR . Miðvikudagur 13. nóvember 1963.
JÓN BIRGIR PÉTURSSON
æiípœi
.. t iS,te
.... 1 *R»
i *í| ««i» M
jíit; ííjíI iu Irp*4*ia,*
Landsliðsundirbúningur fyrir HM / Tékkósló-
vakiu er hafinn en æfingar eru ekki vel sóttar
í marzbyrjun n. k. hefst í Tékkó-1 handknattleik. í síðustu keppni stóð
ilóvakíu heimsmeistarakeppni f | lið íslands sig mjög vel og varð
Hörður Kristinsson og Gunnlaugur Hjálmarsson á útiæfingu hjá hand-
knattleikslandsliðinu. Æfingar byrja með hlaupum utan húss, en halda
áfram inni á eftir.
6. í röðinni. Frammistaða Islands
varð svo til þess að landslið okkar
fer beint í lokakeppnina í Tékkó-
slóvakíu, en þarf ekki að leika und
anlelki.
Af hálfu HSÍ var hafizt handa í
sumar að þjálfa upp lið til keppn-
innar. Frímann Gunnlaugss. form.
landsliðsnefndar HSl, skýrði okkur
frá því í fyrrakvöld, þegar við heim
sóttum iandsliðsæfingu, að 25 pilt-
ar hefðu verið útnefndir í sumar
til æfinga, þegar sænski þjálfarinn
Matson var hér á ferð. Síðan var
bætt við, en nú hafa 16 handknatt-
leiksmenn gefið nefndinni jáyrði
sitt og lofað að stunda æfingar
nefndarinnar, sem eru tvisvar í
viku, á mánudögum í KR-heimili
og miðvikudögúm á Keflavíkurflug
velli.
„Félagsæfingarnar eru sem stend
ur Þrándur í Götu okkar æfinga“,
sagði Frímann. „Félögin hafa ekki
getað séð af sínum mönnum til
okkúT, pnda skiljaplegt,, Þau þurfa
að halda vel á spöðunum til að
komast í æfingu fyrir íslandsmótið
og vilja ógjarnan missa af beztu
leikmönnum sínum. Þetta er þó
nauðsynlegt, LANDSLIÐIÐ - full-
trúar þjóðarinnar, sem eiga að
verja heiður sinn innan skamms
á erlendri grund, verða að sitja í
fyrirrúmi. Við vonum samt að tak
ast megi að samræma þetta, til
þess hefur æfingatíma á Keflavík-
urvelli m. a. verið breytt og verður
nú æft á miðvikudögum í stað
þriðjudaga áður“.
„Hvernig hafa æfingarnar verið
stundaðar til þessa?“
„Því miður verð ég að segja
eins og er, að þær hafa verið illa
.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V,
NORRÆNA SUNDKEPPNIN:
Þátttakendar syntu alls á
3. hring umhverfís jörhu
DANIR urðu sigurveg-
arar í Norrænu sund-
keppninni árið 1963. —
Þeir juku þátttökutöl-
una um 143.2% frá síð-
ustu keppni. — Fjöldi
danskra þátttakenda var
75.310, eða 1.6% af íbúa-
fjölda Danmerkur. Hins
vegar syntu 17.1% af í-
búum íslands í keppn-
i ■ ■ ■■ ■
inni, en aukningin frá
síðustu keppni var hins
vegar 11.6% og nægði
aðeins í 3. sæti.
I 2. sæti var Noregur með
50.1% aukningu, Svíþjóð varð
4. með 2.6% aukningu, en þar
syntu 225.552 manns eða 3,0%
þjóðarinnar. Finnar voru eina
þjóðin, sem ekki jók eitthvað
við sig. Þar syntu 92.457 manns,
eða 2.1% íbúanna. Fækkunin
nam 36.782 eða 28.5%. - Alls
syntu 497.626 manns 200 metr-
.■.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V
ana, samtals 99525 kílómetra,
sem jafngildir því að Norður-
landabúar hafi synt hátt á 3.
hring umhverfis jörðu um mið-
baug!
í keppni kaupstaða vann ísa-
fjörður sigur, en þar syntu 835
íbúar eða 31% Ibúanna. Reykja-
vík og Kópavogur urðu í sið-
ustu sætunum í þeirri keppni.
Reykvíkingar sem syntu voru
12.324 eða 16.5%, en í Kópa-
vogi syntu 964 eða 13.5%. I
keppni sýslanna vann S-Þing-
eyjarsýsla. Þar syntu 688 manns
eða 24.9% íbúanna.
sóttar. Þetta stafar af æfingum fé-
laganna mest, en einnig mikilli
vinnu, veikindum o. fl. Ég vona
þó að þetta fari að lagast innan
skamms.
Á æfingunni í KR-heimilinu í
fyrrakvöld mætti helmingur þeirra
Ieikmanna, sem lofað hafa að æfa
með landsliðinu, nokkrir boðuðu
forföll vegna veikinda, en frá sum
um hafði ekki spurzt. Það er greini
legt að landsliðsmenn mega halda
vel á spöðunum, ef árangur á að
nást“.
Þeir 16 leikmenn, sem æfa nú
fyrir HM í Tékkóslóvakíu, eru
þessir:
Frá FH: Einar Sigurðsson, Birgir
Björnsson, Ragnar Jónsson,
Hjalti Einarson, Örn Hallsteins-
son.
Frá Fram: Ingólfur Óskarsson,
Sigurður Einarsson.
Frá Víking: Rósmundur Jónsson,
Þórarinn Ólafsson.
Frá Ármanni: Árni Samúelsson,
Hörður Kristinsson.
Frá KR: Karl Jóhannsson, Sigurð-
ur Þórðarson.
Frá Val: Sigurður Dagsson.
Karl Jóhannsson í erfiðri æfingu
innanhúss.
Frá Þrótti: Guðmundur Gústafsson.
Frá ÍR: Gunnlaugur Hjálmarsson.
Landsliðsþjálfari er Karl Bene-
diktsson.
Sigurður Dagsson meiddist ný-
lega og mun vart verða með í
æfingunum í vetur. Vera má að
Sigurður Óskarsson úr KR geti
tekið þátt í æfingum liðsins, en
hann hefur enn ekki getað gefið
endanlegt svar.
☆
•: > '>í •>, - ^
.
Fánar Norðurlandanna við opnun keppninnar f maí í vor. Myndin var
. tekin við gömlu Sundlaugarnar í Reykjavík.