Vísir - 13.11.1963, Blaðsíða 5
VlSIR . Miðvikudagur 13. nóvember 1963.
5
Rieunvísindi —
Framhald af bls. 9.
Eðlisfræðistofnunin sem segja má
að sé vísirinn að Raunvísinda-
stofnun Háskólans, hefir einnig
fengið til umráða hús gömlu
Loftskeytastöðvarinnar á Melun-
um, fyrir tæki sín og rannsókna-
stofur, þar vinnur meðal annarra
Bragi Árnason efnafræðingur.
Það verður líkt og að flytja úr
koti í höll þegar fyrrnefndir vís-
indamenn okkar, og aðrir raun-
vísindamenn geta flutt af þeim
hrakhólum, sem þeir eru nú á
að ýmsu leyti, inn í nýju Raun-
vísindastofnunina á Melunum.
Þeirri spurningu mun prófessor
Þorbjörn einna færastur til að
svara, og hann segir:
í fyrsta lagi bætir hún aðstöðu
íslenzkra vísindamanna til sjálf-
stæðra rannsókna hér heima og
stuðlar að því að þjóðinni nýtist
hæfileikar þeirra og menntun.
Jafnvel gæti tilkoma hennar orð-
ið til þess að við fengjum heim
íslenzka vísindamenn sem hafa
starfað erlendis. Einnig myndi
hún gera kleift að fá hingað í
heimsókn, og til einhverrar dval-
ar, fræga og færa útlenda vís-
indamenn og þannig skapa nauð-
synleg menningartengsl á raun-
vísindasviðinu út á við og draga
úr hættunni á menningarlegri
einangrun.
í öðru lagi munu sigla í kjöl-
far þessarar stofnunar auknir
möguleikar til menntunar við Há-
skóla íslands. Að vfsu er ekki
gert ráð fyrir neinni kennslu í
húsi Raunvísindastofnunarinnar.
En hún mun trúlega draga til
sín raunvísindamenn, sem færir
eru til háskólakennslu og þannig
skapa möguleika á fullkominni
háskóiakennslu í eðlisfræði, efna-
fræði og stærðfræði. Vitað er að
Háskólinn bindur mjög miklar
vonir við Raunvísindastofnunina,
sem reist verður á hans vegum.
1 þriðia lagi mun Raunvísinda-
stofnunin hafa mikla hagnýta
þýðingu fyrir tæknilega þróun at-
vinnuveganna í framtíðinni.
Bretlandsför—
Framh. af bls. 16.
dagstund í Oxford í boði Há-
skólarektors þar.
Þann 20. nóv. hafa forseta-
hjónin móttöku í Dorchester-
hóteli fyrir íslendinga búsetta í
Bretlandi og brezka íslandsvini.
Kvennasíða —
Framhald af bls. '7
„uppskriftinni" haldið vel
leyndri. Sagði Arnbjörn að sér
hefði verið tjáð í fyrra, að búið
væri að framleiða um 128 millj.
pör af slíkum hælum.
Ef einhver er ekki með á
nótunum hvaða hælar þetta eru,
þá eru þetta hælarnir, sem segja
má að séu skæðustu óvinir gólf-
dúkanna.
Svo að við snúum okkur aftur
að kuldastígvélunum íslenzku,
þá er verð þeirra yfirleitt annað
hvort 595 krónur eða 695 krón-
ur, en hnéháu stígvélin verða
talsvert dýrari, en munu þó
ekki fara yfir eitt þúsund kr
Tollgæzlan —
Framh. af bls. 16,
un. Undanfarið hefur Tollgæzl-
an ekki getað komið við nægi-
legu lestareftirliti í skipum og
meðan það vantar, er tollgæzl-
an hvergi nærri fullkomin. Tel-
ur Tollgæzlan, að heppilegast
væri að unnt væri að flytja vör-
urnar beint í geymslur nálægt
hafnarbökkunum og þar gæti
nákvæm tollskoðun farið fram.
Þegar hið nýja geymsluhús hafn
arinnar verður tekið í notkun,
verður unnt að koma þessu fyr-
irkomulagi við gagnvart flutn-
ingaskipum Eimskipafélagsins,
en eftir sem áður verða hinir
sömu erfiðleikar á því að koma
við sliku eftirliti með öðrum
skipum.
Vísir átti tal við Óttar Möller
forstjóra Eimskipafélags íslands
í morgun og innti hann eftir því,
hvort félagið ráðgerði ekki að
koma sér upp frekara geymslu-
rými en fengist í hinu nýja húsi
hafnarinnar. Kvað Óttar félagið
hafa óskað eftir því við borgar-
yfirvöldin, að félaginu yrði út-
hlutað athafnasvæði, þar sem
framtíðarhöfnin væri fyrirhuguð
en það biði endanlegra ákvarð-
ana Reykjavíkurborgar varðandi
staðsetningu hinnar nýju hafnar.
Markmiðið —
Framh. af bls. 16
hússins 2758 rúmmetrar.
í Reykjavík hefir verið tekin í
notkun 1000 númera stækkun sjálf
virku stöðvarinnar þar, og einnig'
lokið 70-80 þúsund stunda verki
við breytingar og viðbætur þar, til
þess að gera hana samvirka sjálf-
virkum stöðvum á öllu landinu.
Og að auki hefir verið sett upp
sjálfvirk langlínumiðstöð.
Undir lok ræðu sinnar kvað bæj-
arsfmastjóri svo að orði:
„Eftir rúman aldarfjórðung á
rauðu ljósi má greina grænt Ijós
framundan í símamálum, þvf að nú
höfum við loks númer fram yfir
brýnustu þarfir, sem við höfum
ekki haft í aldarfjórðung".
Þjófnaðor —
Framh. af bls. 16.
holtsvegi 43 þekkti manninn á
mynd, sem rannsóknarlögreglan
sýndi henni og taldi sig örugga
um að það væri einn og sami
maður. Hafði sá lítillega komið við
sögu hjá lögreglunni áður, en nóg
til þess að til var mynd af honum
f skjalasafni lögreglunnar.
Lögreglan fór heim til þessa
manns og fann þar bæði hann
sjálfan og eins hinn stolna pen-
ingakassa með öllum þeim skjöl-
um og ávísunum, sem í honum
áttu að vera, en peningunum var
hann að mestu búinn að eyða.
Játning liggur nú fyrir frá mann
inum, en þetta er unglingspiltur um
tvftugt.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við
andlát og jarðarför móður okkar og tengdamóður.
ÁSTBJARGAR jónsdóttur,
Norðurlandsleiðin nð loknst
Leiðin til Akureyrar er nú orðin
svo þungfær að vafasamt var talið
í morgun að bílar kæmust leiðar
sinnar, og útilokað með öllu fyrir
litla bíla.
í gær áttu bílar í nokkrum erf-
iðleikum með að komast yfir Öxna
dalsheiði og var þó um stóra og
kraftmikla flutningabíla að ræða.
Þeir komust þó alla leið og ein-
hverjir þeirra munu freista að
brjótast vestur yfir Öxnadalsheiði
aftur í dag. Þar mun þó sennilega
vera bylur sem stendur og verða
engar tilraunir gerðar til að moka
af veginum fyrr en veðri slotar. I
Öxnadal sjálfum er komin þæfings-
ófærð. Sömuleiðis var orðið þung-
fært í gær á Vatnsskarði, í Langa-
dal og á Svínvetningabraut. Hríð-
arveður með hvassviðri var í morg
un í Húnavatnssýslu vestarlega og
eins á Holtavörðuheiði, en þar skóf
af veginum og engin teljandi ófærð
komin.
Vaðlaheiði var orðin svo þungfær
að bílar voru hættir að fara hana
f gær og fóru norður um Dals-
mynni. Þar var einnig komin þæf-
ingsófærð, en þó enn fært stórum
bflum. Sama gegnir um flesta vegi
í Eyjafirði, en litla bíla þýðir yfir-
leitt ekki að hreyfa.
Lágheiði er lokuð og Siglufjarð-
arskarð er búið að vera lokað lengi.
Á Siglufirði hefur verið nokkur
snjókoma, en mun minni en t. d.
í Eyjafirði og þar austur af.
Möðrudalsöræfin eru talin lokuð
og verður engin frekari tilraun gerð
til að opna leiðina í vetur. Fyrir
síðustu helgi brutust þó tveir stórir
flutningabílar, sem komu austan af
fjörðum, yfir heiðina. Áttu þeir í
miklum erfiðleikum á leiðinni frá
Jökuldalsheiðinni og vestur í
Möðrudal og voru heila nótt að
brjótast yfir. Or þvf gekk ferðin
vel og komust bílarnir aðfaranótt
sunnudagsins til Akureyrar. í fyrra
kvöld héldu þeir áfram áleiðis suð-
ur.
Vegurinn til Vopnafjarðar er lok
aður og sömuleiðis vegurinn milli
Raufarhafnar og Þórshafnar.
Á Fljótsdalshéraði snjóaði tals-
vert um miðja síðustu viku og þá
urðu vegir þar þungfærir á láglendi
fyrst á eftir, en hafa nú lagazt.
Vegir af Héraði og niður á firðina
eru flestir enn slarkfærir en með
öllu óvíst hve lengi þeir haldast
opnir.
Vestfjarðaleiðir eru allar meira
og minna lokaðar eftir að kemur
vestur í Barðastrandarsýslu, og er
ekki hugsað til að opna þær í
vetur úr þessu. Þungfært er strax
þegar kemur vestur í Dalasýslu, en
vegir þó enn færir stórum bílum.
Gengið hnrt eftir greiðslu
Jón Guðbjartsson,
Dóra Guðbjartsdóttir,
Ólafur H. Guðbjartsson,
Jóhanna Guðbjartsdóttir,
Benedikt Á. Guðbjartsson,
Unnur Þórðardóttir,
Ólafur Jóhannesson,
Sólrún Jónsdóttir,
Jean Claessen,
María Pétursdóttir.
Innheimtubréf hafa nú verið send
til allra aðila sem staðnir hafa
verið að því að hafa gefið út inn-
stæðulausar ávísanir, og upp komst
við skyndirannsókn bankanna í Iok
síðustu viku.
Þarna er um fjölda aðila og í
heild um mjög háa upphæð að
ræða, en ekki viidi Seðlabankinn
gefa upp neinar ákveðnar tölur í
morgun, né heldur fjölda þeirra
ma'hria, sem ’gefið höfðu út inni-
stæðulausar ávísanir.
Hins vegar fékk blaðið þær upp-
lýsingar að búið væri að senda út
innheimtubréf til allra aðila og
verður gengið mjög hart eftir
greiðslu. Þeir sem ekki gera skil
innan þriggja daga verða kærðir
samkvæmt landslögum, enda er hér
um hegningarbrot að ræða, annars
Dregið í
Skyndihapp-
drættinu
Dregið hefur verið í Skyndi-]
happdrætti Sjálfstæðisflokksins <
og reyndist vinningsnúmerið \
vera
5870.
Hinn heppni eigandi miðans er <
beðinn um að hafa samband við ]
skrifstofur Sjálfstæðisfloklrsins í <
Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll <
en vinningurinn er Mercedes ]
Benz 190, 320 þús. kr. virði.
Sjálfstæðisflokkurinn þakkar <
hinum mörgu, sem studdu að[
glæsilegum árangri i happdrætti <
þessu og lögðu þar með drjúgan'
skerf til eflingar starfsemi,
flokksins.
+Verrhm p
prentsmiftja 4. gúmmlstimplagerö
Elnholti Z - Simi 20960
vegar sem auðgunarbrot og hins
vegar sem skjalafals.
Telja má víst að sumir þessara
manna hafi gefið út innistæðulaus
ar ávísanir af hreinni yfirsjón, af
því einu að þá hafi rangminnt um
bankainnistæðu sína. Hjá öðrum
er þetta aftur á móti að yfirlögðu
ráði gert, beinlínis til þess að fá
ókeypis lán með svokölluðum keðju
tékkum og það þykir miklu alvar-
legra og grófara brot, enda verða
þeir aðilar látnir sæta ábyrgð sam
kvæmt iögum hváð sem endur-
greiðslu hinna innistæðulausu tékka
líður.
Aðalmarkmið bankanna með þess
HáskéEaf'/rírlestur
Dr. Valter Jansson, prófessor í
sænsku við Uppsalaháskóla, flyt-
ur fyrirlestur í boði Háskóla íc-
lands á fimmtudag, 14. nóv., sem
hann nefnir „Hermann Paul —
Ferdinand de Saussure — Adolf
Noreen“.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
I. kennslustofu Háskólans og hefst
kl. 5.30 e. h.
Öllum heimill aðgangur.
ari skyndirannsókn er að styrkja
gildi ávisana sem nauðsynlegs og
æskilegs gjaldmiðils í viðskiptalíf-
inu. Og enda þótt slíkar rannsókn-
ir kosti óhemju vinnu og fyrir-
höfn er fyrirhugað að halda þeim
áfram öðru hvoru og þá fyrirvara-
laust. Fyrir tveim árum voru sett-
ar strangari reglur og hert á viður
lögum um misnotkun ávísana. Þær
báru þá nokkurn árangur, en ekki
nægan og þess vegna var gripið til
framangreindra ráðstafana nú. Unn
ið var í bönkunum langt fram eft-
ir kvöldi á laugardaginn og sums
staðar einnig fram eftir degi á
sunnudaginn.
Þ.JONSSON &CO
BRAUTARHOLTI 6 - SIMI 19215
Hili.Klf gmUNIN HEKIA h/f
LAUGAVEG 170-172 HEFUR
FENGW NÝTT SÍMANÚMER
2 12 40
Einnig beint samband við:
BíLAVARAHLUTAVERZLUNINA, sími 13450
BÍLAVERKSTÆÐIÐ, sími 15450
og SMURSTÖÐINA, sími 13351.
□
:ia