Vísir - 13.11.1963, Qupperneq 11
19.55 Afrts News Extra
20.00 Bonanza
21.00 Hootenanny
21.30 The Ann Southern Show
22.00 Fight Of The Week
22.55 Afrts Final Edition News
' 23.00 The Steve Allen Show
Fundarhöld
Reykvíkingafélagið heldur
skemmtifund á Hótel Borg mið-
vikudaginn 13. þ. m. kl. 20.30.
Sigurveig Hjaltested og Guð-
mundur Guðjónsson syngja. —
Bimbó tríóið spilar. Happdrætti,
dans. Fjölmennið stundvíslega.
Stjórnin.
Bræðrafélag Langholtssafnaðar
heldur félagsfund miðvikudaginn
13. þ. m. kl. 8,30 e. h. f safnað-
arheimilinu.
Stjórnin.
W ^ STJÖRNUSPÁ
Spáin gildir fyrir fimmtudag-
inn 14. nóvember.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Hugsaðu fyrst og fremst
um öryggið í dag. Sérstaklega
varðandi atvinnu þína og eignir.
Gefðu vinum þínum holl ráð,
en lánaðu engum.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Þú ættir að snúa sér til þess
sem sjaldan eða aldrei bregzt
þér þegar erfiðleikar steðja að.
Leggðu alla stórveldisdrauma til
hliðar núna.
Tvíburarnir, 22. maí til 21.
júní: Þeim mun meir, sem þú ert
upptekinn við degleg störf þín,
þeim mun minni tíma hefurðu
til að dvelja við niðurdragandi
hugrenningar.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí:
Þér ætti að reynast kleift að
framkvæma eitthvað það sem
gerir þig rólegan. Frjálsræði þitt
mótast að mestu af fjárhags-
legri getu þinni.
Ljóið, 24. júli til 23. ágúst:
Þú ættir að Ifta yfir farinn veg
og átta þig á því hvar störfum
þínum og framkvæmdum hefur
verið ábótavant. Reynslan er oft
bezti kennarinn.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Byrjaðu á að átta þig á öllum
þeim atriðum, sem gætu leitt til
þess að þú fyndir út hvar á
veginum þú værir staddur.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Árangur nokkuð harðari fjár-
málalegri stefnu ætti að koma í
ljós nú, en tilhneigingamar til
að taka aftur upp fyrri lifnaðar
hætti eru enn fyrir hendi.
Drekrmi, 24. okt. til 22. nóv.:
Finndu út hinar réttu aðferðir
og hvar aðrir standa gagnvart
þér, áður en þú hefst handa.
Ýmislegt bendir til þess að þú
þurfir að átta þig betur á hlut-
unum.
Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Það kann að vera rétti tím
inn núna til að taka sér hvíld og
líta yfir kosti og lesti fram-
kvæmdanna. Þér reynist auð-
veldara að koma öllu á réttan
kjöl þannig.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Sumt fólk álítur að það
sé annarra verk að leysa þá
gordonshnúta, sem það sjálft
hefur hnýtt sér. Gerstu ekki
sjálfboðaliði I slíkum tilfellum.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Stefndu að þvf marki, sem
þú hefur sjálfur sett þér, svo
fremi sem það er raunverulegt
og hægt er að ná því. Snúðu
þér f aðrar áttir ef þú skyldir
uppgötva að það er aðeins
blekking.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Eðlisávísun annarra kann
að reynast hafa við rök að styðj
ast, og ætti ekki að láta sér
slíkt í léttu rúmi liggja. Ef þú
ert ekki sannfærður, þá skaltu
hafa eigin tilfinningar að leiðar
ljósi.
Kvenstúdentafélag Islands.
Fundur I Þjóðleikhússkjallaran-
um f kvöld, miðvikudag 13.
nóv. kl. 8,30 e. h. Próf. Sigurður
Nordal talar.
Stjómin.
Áheit og gjafir
22. okt. 1963 voru mér afhent-
ar tfu þúsund krónur að gjöf til
Blindravinafélagsins. Gefendur
óska ekki nafna getið. Gjöf þess
ari verður varið til kaupa á segul
bandi handa blindum. Hinum ó-
þekktu gefendum flyt ég mínar
innilegustu þakkir fyrir þeirra
höfðinglegu gjöf til hjálpar blind-
um.
Frá gamalli konu kr. 100, NN
kr. 500, Þuríði kr. 200, ES kr.
100, áheit, Þorbirni Ingvarss. kr.
100, Guðr. Jónsd. kr. 200, Sigfr.
Halldórsd. kr. 500, NN kr. 100,
sysctrum EM kr. 1000, NN til
minningar um hjónin Ingólf Krist-
ánsson og Elísabetu Jónsdóttur
kr. i000, G.Br. 100, Ágúst Bj. kr.
100, BJ 2000, Þá hefur Lions-
klúbbur Reykjavíkur gefið skól-
anum 2 blindravélar að verðmæti
um kr. 5000. Fyrir allar þessar
gjafir færum við gefendum okk-
ar innilegustu þakkir.
F.h. Blindravinafélags Islands
Þorsteinn Bjarnason.
Hjálparheiðni
Svo sem alþjóð er kunnugt af
fréttum, urðu hjónin í Hömluholt-
um í Hnappadalssýslu fyrir þvi
tjóni, að ibúðarhúsið brann ofan af
þeim aðfaranótt mánud. 28. okt.
Þar með urðu átta börn heimllis-
laus, á aldrinum 9 mán. til 15 ára.
öllum má ljóst vera bjargarleys-
ið eftir slíkt áfall og hve ömurlegt
það er að horfa upp á fríðan barna-
hóp tvístraðan eftir áfallið.
Landsmenn hafa oft áður brugð-
ið skjótt við til hjálpar 1 líkum
tilfellum. Þess vegna er það von
sveitunganna að irieð sameiginleg-
um fjárstyrk verði unnt að bæta
tjónið.
Því leita ég nú á náðir almenn-
ings um fjárhagsaðstoð, svo hægt
verði, hið fyrsta, að veita hjónun-
um og gáfuðum og efnilegum böm-
um þeirra heimili að nýju.
Blaðið hefur góðfúslega orðið við
beiðni um að veita fjárframlögum
viðtöku.
Árni Pálsson
sóknarprestur.
BELLA
Ég veit vel að ég sagöist myndi
elska þig til eilífðar, en það eru
nú 3 vikur sfðan.
Nokkrum mínútum seinna voru
kóngurinn og þegnar hans um-
kringdir af argandi villimönnum,
sem bundu þá og fleygðu þeim í
hrúgu í burðarstólinn. Mawba-
kala-galagú —, öskruðu þeir inn
fæddu, og héldu af stað til þorps
síns með vini okkar alla ríg-
bundna. Þetta hefði aldrei komið
fyrir, ef yðar hátign hefði leyft
lögbókina, sagði Frikki ásakandi.
Kalli
%
kóng-
urinn
il
i
P
EC
i
: it
B
Y
Sjórán, hrópar lögreglumaður-
inn undrandi. Nei, hættu nú, Rip.
Kafteinn Kidd er löngu dauður.
Skilurðu nú hvað ég meina, segir
Rip hlæjandi, það myndi enginn
trúa mér. En það er staðreynd
að á síðasta ári, voru margar
snekkjur sem eru í eigu milljóna
mæringa, rændar. Og það hefur
alltaf verið þessi senor Scorpion,
sem hefur verið foringi sjóræn-
ingjanna. Hann kemur um borð 1
snekkjurnar ásamt vel vopnuð-
um þorpurum, og skipar fólki að
afhenda alla skartgripi og pen-
inga sem það hefur með sér.
Ymislegt
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkj-
unnar hefur kaffisölu í Sigtúni
við Austurvöll sunnudaginn 17.
nóvember kl. 3. e.h. Kaffigestum
er gefinn kostur á að kaupa
fallegar, handunnar jólagjafir.
Eftir heimkomuna úr Evrópu
|I ferðalaginu hófst Saud Arabíu-
■I konungur handa um að fram-
■* kvæma mikla sparnaðaráætl-
á' un. Honum hefur nefnilega
!■ lengl verið meinilia við allan
*I þann fjárstuðning sem hann
•I hefur orðið að veita arabísk-
■* um ættarhöfðingjum vegna
J* allra kvenanna sem þeir eiga,
*■ svo að nú hefur hann sett tak-
■J mörk fyrir hve margar konur
hver má eiga: —
I* Höfðingi verður að láta
í sér nægja að eiga 12 eigin-
■* konur og 18 hjákonur — og
\ þykir víst sumum heldur litið.
á« Francoise Sagan er nú orðin
|I fullorðin og því ekki álitin
■á undrabam lengur. Hún heldur
■| þó áfram að skrifa og Frakkar
I; velta því mjög fyrir sér hvem-
[■ ig henni muni vegna sem full-
V þroska skáldkonu.
% Hún hefur nú nýlega lokið
■J við að semja leikrit, sem geri ;t
!■ á keisaratímabilinu i Rússlandi
|< um síðustu aldamót. Aðal-
j! persónan er rússnesk kona,
■[ sem heitir Angora.
Francoise Sagan
Angora tekur virkan þátt í
samkvæmislifi heldra fólks í
Pétursborg og við Svartahaf
en samkvæmt heimspeki Sagan
finnst Angoru líf sitt að sjálf-
sögðu drepandi leiðinlegt.
Leikritið verður frumsýnt í
París í ársbyrjun 1964. Því
hefur enn ekki verið gefið nafn
— en Sagan hefur bent á þá
lelkkonu sem hún vill að leiki
Angom — það er Juliette
Greco.