Vísir - 15.11.1963, Síða 1
Fyrsta mynd af Gosey
Óhemju mikið hraun og gjallfióð hefur streymt upp úr gígnum á hafsbotni
við Vestmannaeyjar. Fyllir hraukurinn þegar 120 metra dýpi og teygist upp
úr sjónum sem eyja, er glyttir í gegnum gufumökkinn. Rýkur af eyjunni,
þegar öldumar skolast um hana, en grjótflugið stendur í allar áttir og sjór-
inn verður volgur allt í kring.
ÞAÐ HEFUR MYNDAZT NÝ EYJA VIÐ ISLAND. - Kl. 9 í morgun varð
Þorleifur Einarsson jarðfræðingur þess var, að svo mikið hraun hafði hlaðizt
upp á gígbarma eldgossins við Vestmannaeyjar, að eyja hafði myndazt. Var
Þorleifur þá staddur um
lægð frá gosinu.
Kl. 10,30 f morgun átti Vísir
sfmtal við Þorleif Einarsson.
Honum sagðist svo frá:
Kl. 8 í morgun var strókurinn
frá gosinu orðinn 8 km á hæð
og virði't oífellt fara hækkandi.
Lagði hann til hafs enda norðan
átt. Sjálfur gosfóturinn er um
400 metrar á hæð. Þeytast vikur
og aska um 300 metra í ioft
upp. Kl. 9 f morgun urðum við
þess varir, að eyja hafði mynd
azt við eldgosið. Höfum við
borð í varðskipinu Albert
greinilega séð gfgbarmana
beggja megin frá og hraunið
sem hlaðizi hefur upp á þá.
Eyjan virðist vera um 8 metrar
á hæð en ekki er unnt að segja
hversu stór hún er að fiatarmáli.
Dýpið á gosstaðnum er um 120
metrar. Albert er nú í um 500
metra fjarlægð frá gosinu. Við
höfum sigit hvað eftir annað inn
í gosmök’cinn og hefur þá rignt
vikri, ösku og hagli á skipið.
Sjórinn hér í kring er allur hvft
í aðeins 500 metra fjar-
ur af ösku.
GLÓANDI HRAUN
Það má nú greinilega sjá gló-
andi hraun á gigtörmunum. Gos
fiugið er geysimikið og er það
að sjá eins og rakettur fijúgi
í loft upp þegar gosið kemur
upp úr gignum. Ekki höfum við
orðiö varir við neina ólgu í
sjónum og hitann frá gosinu
virðist ekki leggja langt út frá
Framh. á bls. 6.
Mynd þessi var tekin á þingi f gær, þegar forsætisráðherra skýrði
frá stjórnarbreytingunni.
Ræða hins nýja forsætisrábherra
Á fundi Sameinaðs Aiþingis
f gær las hinn nýi forsætisráð-
herra, Bjarni Benediktsson, upp
tilkynningu ríkisstjómarinnar
um það, sem gerzt hafði á rikis-
ráðsfundi fyrr um daginn. En
þar var fyrst borin fram lausnar
beiðni Óiafs Thors og tiliaga
hans um að Bjarni Benediktsson
yrði skipaður eftirmaður hans.
Á þessa tillögu ritaði forseti ís-
lands: Fellst á tillöguna.
Síðan sagði forsætisráðherra:
í samræmi við það hefur hann
undirritað skipunarbréf til
handa mér til að vera forsrh.
í ráðuneyti íslands og bréf, þar
sem hann veitir Ólafi Thors
lausn frá embætti forsrh.
Þá var borin upp önnur til-
laga til forseta Islands um skip-
un ráðherra og breyting á for-
setaúrskurði frá 20. nóvember
1959 um skipun og skiptingu
starfa ráðherra o. fl.: '
„Þar sem þér, herra forseti
hafið fallizt á að veita Ólafi
Thors lausn frá embætti fórsrh.
og skipað mig forsrh. leyfi ég
mér allra virðingarfyllst að
leggja til, að yður þóknist að
skipa Jóhann Hafstein alþm.
ráðh. í ráðuneyti Islands og
jafnframt að gera þá breytingu
Framh. á bls. ■>