Vísir - 15.11.1963, Blaðsíða 16

Vísir - 15.11.1963, Blaðsíða 16
I I SIR Föstudagur 15. nóvember 1963 Gosmökkurími séður frá Reykjmík Vísir átti stutt viðta! við Tómas Tryggvason, jarðfræðing í morgun og spurði um álit hans á gos inu og myndun eyjarinn- ar. Tómas kvað greini- legt, að gífurlegur kraft ur væri á gosinu. Á að- eins 26 tímum hefði kom ið upp svo gífurlega mik ið hraunmagn, að eyja hefði myndazt. Vakti hann sérstaka athygli á þvf, að dýpið væri 120 metrar og eyjan þegar orðin 8 metrar á hæð. Hann taldi líklegt að keilan væri brattari neðansjáv- ar en ofan. — Hann sagði að mikil hætta væri á spreng- ingu og flóðbylgju, ef leið opnað ist fyrir sjóinn inn í gossprung- una. Taldi Tómas sennilegast, að f gær hefði verið um 3—4 gígi að ræða en nú hefðu þeir myndað eina sprungu. Tómas sagði, að þegar spreng ingin hefði orðið í Krakatá f Sundaeyjum í Kyrrahafi hefði krafturinn verið svo óskapleg- ur að myndazt hefði flóðbylgja er farið hefði tvisvar umhverfis hnöttinn, — Tómas sagði, að mesta hættan af flóðbylgju væri er hún skylli á landi. Slík alda væri undiralda er ekki hefði bárufald en hún færi með ógur- legum krafti og gæti valdið tjóni, er hún skylli á land. Síldveiði í uótt PaO er greinilegur asi á þessum farþegum, sem voru aö fara í flugferð yfir gosstaðinn kl. 10 morgun. Farþegarnir háðu kapphlaup um aö ná beztu sætunum. í vikunni sem lauk 2. þ.m. nam^ síldveiðin 50 þús. tunnum aðeins, og hefir ekki verið um neina síld- veiði að ræða, fyrr en en f nótt I morgun snemma höfðu 12 bátar tilkynnt sauitals 3290 t. Veidd- ist síldin í Kolluál um 35 sjómílur vestur af norðri frá Malarrifi og norðvestur eftir eða heldur nær landi en áður. Dálítil kvika var og síldin stygg. Síldarleitarskipið Þorsteinn þorska- bttur hefir nú verið við síldarleit á ný nokkra daga og einnig hefir Ófeigur II. leitað. Þorskabítur hefir leitað sunnan Reykjaness og djúpt út af Reykjanesi og síðar Ófeigur II. allt til Eyja og svo vestur með landi. Hefir verið leitað á venjuleg- um síldarslóðum fyrir sunnan land ið, en ekki orðið vart við síld. Fólkið fíykkist á gosstaðinn Flugfélögin hafa ekki undan að flytja far- t>ega. Flugstjórn aðvarar flugmenn um að gæta varúðar á staðnum , Áhugi almennings um allt land hefur verið geysimikill á neðansjávargosinu við Vest- mannaeyjar í gær og í morgun. Hjá Flugfélagi íslands eru allar símalínur rauðglóandi og af- greiðslusalirnir fullir af fóiki, sem er að leita upplýsinga eða á leið með flugvél á gosstöðvam- ar. Ferðir munu verða I dag flugleiðis frá Akureyri og Vest- mannaeyjum og svo auðvitað frá Reykjavík, líklega 5 ferðir, ef hægt verður. 1 gær og í morgun var geysi- leg flugumferð yfir gossvæðið og tjáði flugstjórnin á Reykja- víkurflugvelli okkur að 8—9 flugvélar væru yfir svæðinu kl. 10 í morgun. Flestar voru þetta litlar flugvélar frá flugskólun- um, Flugsýn og Birni Pálssyni, en allir þessir aðilar hafa leig flugvélar I ferðir yfir gosstööv- arnar. Flugstjórnin sagði að talsverð hætta væri samfara flugi sem þessu, og hefði að- vörun til flugmanna verið gefin út, m.a. að fljúga ekki hlémegin við strókinn, þar eð vélarnar gætu orðið fyrir hættulegum á- fjöllum. Eru allir flugmenn á- minntir þegar þeir leggja af stað, um að gæta fyllstu var- kárni. Flugfélag íslands flutti i gær 170 farþega yfir gossvæðið, en 500 voru alls bókaðir hjá félag- inu. Fimm ferðir verða að öll- um líkindum farnar í dag. Ferða skrifstofan Lönd og Leiðir hefur samvinnu við Flugfélagið um þessar ferðir. Talsmaður L & L sagði Vísi i morgun, að frétzt hefði að út- sýn úr Landeyjunum væri stór- kostlegt og stæði til að kanna Framh. á bls. 6. Sigurður Bprnn- son, forsefi N. d. Sigurður Bjarnason ritstjóri, 2. þingmaður Vestfjarðakjördæmis, var kjörinn forseti neðri deildar Alþingis í stað Jóhanns Ilafstein, er tekið hefur við embætti dóms- málaráðherra. Hlaut Sigurður 19 atkvæði en auðir seðlar voru 19. Sigurður var forseti neðri deildar árin 1949—1956, en hefur átt sæti á 24 þingum. Slgurður Bjamason.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.