Vísir - 30.11.1963, Blaðsíða 3
V1SIR . Laugardagur 30. nóvember 1963,
3
MYNDIR:
Efst á slðunni: Gunnar Thor-
oddsen ávarpar J6n, en hann
situr yzt á bekk tii vinstri, á-
samt vinum sinum nokkrum,
þeim Sigurði Ágústssyni, Barða
Friðrikssyni, Óttari Möller,
Gunnlaugi Briem, sr. Bjarna
Jönssyni og Bjarna Paulson.
Á næstu mynd rabbar J6n
við Mariu Maack og Baldur
prentsmiðjustjóra i Odda, t. h.
Matthias Bjarnason.
Á þriðju myndinni skálar
Jón við tvo gamla kunningja úr
blaðamannastétt, þá Sverri
Þórðarson og Vigni Guðmunds-
son.
Neðst t. v. ræðir J6n við þá
Hermann Jónasson og Gunnar
Thoroddsen. T. h. dómsmála-
ráðherra Jóhann Hafstein og
frú rabba við danska sendiherr-
Jónssyni og Bjama Paulson.
s i
I AFMÆLI
JÓNS Á AKRI
1 fyrradag áttl Jón Pálma-
son fyrrv. ráðherra og alþingis-
fiorseti 75 ára afmæli. 1 þvi til-
efni tók hann á móti vinum sin-
um í Sjálfstæðishúsinu (Sig-
túni). Þar var komlnn saman
mikiil fjöldi manna og sýndi
það hve vinmargur og vinsæll
Jón Pálmason er, ekki siður hér
sunnan fjalis en norður í
Húnaþingi. Jón lék á als oddi,
bauð gesti velkomna með stuttri
ræðu og tók oftar til máls og
hrutu vísur honum þá jafnan
af munni en hann er ágæta vel
hagmæltur sem alþjóð veit.
Gunnar Thoroddsen fjármáia-
ráðherra flutti afmælisræðu fyr-
ir Jóni og minntist mikils starfs
hans á þingi og í héraði. En
ekki síöur var honum tíðrætt
um mannkosti Jóns, og gat
þess að hann hefði jafnan unað
lffsins Iystisemdum. Fleiri héldu
ræður, bæði vinir Jóns að norð-
an og sunnan, og Þingeyingarn-
ir á þingi, þeir Bjartmar á
Sandi og Karl Kristjánsson
fiuttu Jóni vísur og kvæði. Var
góður rómur ger að máli
allra þeirra. Hörmuðu ræðu-
menn að kona Jóns gat ekki set-
ið hófið vegna lasleika.
<i- ' i
-
■ < '