Vísir - 21.12.1963, Page 1
53. árg. — Laugardagur 21. desember 1963. — 170. tbl.
VERKFÖLLUNUM VAR
AFL YST KL 5 /
Vinm héfst alls staðar í morgun
stjórn Dagsbrúnar
Á fundi Dagsbrúnar í gær-
kveldi um hina nýju kjara-
samninga kom fram greinileg ó-
ánægja verkamanna með það
að Dagsbrún skyldi í kjara-
deilunni tengjast féiögum iðn-
aðarmanna, sem væru með
mun betri laun en verkamenn.
Tveir verkamenn gerðu þetta
atriði sérstaklega að umræðu-
efni. Gagnrýndu þeir forustu
Dagsbrúnar harðlega fyrir að
tengja félag verkamanna félög-
um, er hefðu allt annarra hags-
muna að gæta en verkamenn.
Sögðu ræðumenn þessir, að
Dagsbrún hefði í verkfallinu
ekki aðeins barizt fyrir 15
prósent kauphækkun fyrir
BBuðido á dag
verkamenn heldur einnig fyrir
iðnaðarmenn, sem ekki hefðu
þurft á svo mikilli hækkun að
halda. Eðvarð svaraði þvf til, að
jafn eðlilegt væri að verka-
menn og iðnaðarmenn stæðu
saman eins og verkamenn á
lægsta og hæsta taxta Dags-
brúnar. Formaður Dagsbrúnar
upplýsti á fundinum, að hálf
önnur milljón króna væri nú i
verkfallssjóði félagsins.
Mynd þessi var tekin í nótt, er samningar Dagsbrúnar voru undirritaðir. Eðvarð Sigurðsson formaður
Dagsbrúnar (t.v.) sést undirrita fyrir hönd verkamanna en Björgvin Sigurðsson (t.h.) undirritar fyrir
hönd vinnuveitenda. Að baki þeim standa (talið frá vinstri): Hjörtur Hjartar forstjóri Skipadeildar SfS,
Ingvar Vilhjálmsson útgerðarmaður, Jón Bergs forstjóri Sláturfélags Suðurlands og Torfi Hjartarson, sátta
semjari ríkisins. (Ljósm. Ingimundur Magnússon).
— 7 Pingtíðindi.
— 13 Gengið á land í
Surtsey.
— 19 Húsmæður og vöru
skortur.
Tillaga ríkisstjó rnarhsnar hefði
fært verkam. meiri kjarakætur
Nú þegar verkfalli verka-
manna og annarra launþega er
lokið er fróðlegt að athuga hver
hinn raunverulegi ávinningur af
verkfallinu hefur orðið, þegar
frá hefur verið dreginn tekju-
missirinn vegna verkfallsins. Sú
athugun er Iærdómsrik fyrir
verkamenn.
Verkamenn hafa fengið 15%
kauphækkun. Árskaup verka-
manna var fyrir verkfallið til
jafnaðar um 72.000 kr. miðað
við dagvinnu eina. Við 15%
hækkun verður það 10.800 kr.
hærra. 11 daga verkfall hefur
svipt verkamenn 3% af árs-
kaup’nu eða 2200 kr. Eftir
standa því aðeins 12% eða
8640 kr.
Tilboð ríkisstjórnarinnar um
8% kauphækkun verkamanna
og skattalækkun, er samsvarað
hefði 5% kauphækkun, hefði
því fært verkamönnum meiri
kauphækkun en verkfallið hefur
gert.
Eins og Vísir skýrði frá, er
tillögur rikisstjómarinnar voru
lagðar fram, hefði árskaup
verkamanna hækkað um 9360
kr. ef tillögur ríkisstjórnarinnar
hefðu náð fram að ganga. Þá
kjarabót gátu verkamenn fengið
án verkfalls. Nú fá verkamenn
8640 kr. í 11 daga verkfalli. Til
laga rikisstjórnarinnar gerði
einnig ráð fyrir verðtryggingu
á kaup verkamanna og hún
gerði ráð fyrir minni kauphækk
un til handa öðrum launþegum
svo unnt yrði að koma í veg
fyrir, að kauphækkunin breiddi
sig út um allt launakerfið og
gerði kjarabót hinna lægst laun
uðu að engu. Og hún átti ekki
að ná til opinberra starfs-
Framh. á bls. 2
Som/ð var um 15°/o kauphækkun til 21. júní
Víðtækustu verkföllum, sem háð hafa verið hér á
landi lauk í nótt eftir að hafa staðið í 11 daga. Hófst
vinna í morgun við nær öll fyrirtæki, er stöðvazt
höfðu við verkfallið. Flest verklýðsfélaganna af-
Iýstu verkföllum kl. 5 í morgun. Höfðu þá
verið undirritaður samningur um 15% kauphækkun
og ákveðið að gildistími samninga yrði hálft ár.
og félögin fyrir norðan að aug-
lýsa taxta og aflýsa verkföllum
án samkomulags við atvinnu-
rekendur". Einnig lýsti formað-
ur Dagsbrúnar því yfir, að
stjórn félagsins sæi sér ekki
fært að láta verkamenn í Reykja
vík vera áfram f verkfalli eftir
að ljóst væri, að önnur félög
væru að semja og aflýsa verk-
föllum. En ekki kvaðst Eðvarð
Frh. á bls. 3.
Verklýðsfélögin á Norður-
landi og Austurlandi eru ekki
aðilar að samkomulagi þvi, er
náðist fyrir milligöngu sátta-
nefndar. Hafa nokkur verklýðs-
félög fyrir norðan aflýst verk-
föllunum og auglýst nýja kaup-
taxta, sem eru 15% hærri en
hinir eldri taxtar og jafnframt
hafa þessi félög tilkynnt, að hin-
ir nýju taxtar muni gilda til 15.
maí n, k. Áður höfðu fulltrúar
þessara félaga barizt fyrir því á
sáttafundum, að allir samningar
yrðu gerðir til 15. maí en þegar
það náði ekki fram að ganga í
samningum, fóru þeir út á þá
braut að gefa út einhliða til-
kynningar um nýja taxta og
gildistíma þeirra.
Samningur Dagsbrúnar og
flestra annarra verkalýðsfélaga
gildir til 21. júnl. Lýsti Eðvarð
Sigurðsson forma(Sur Dagsbrún
ar því yfir á fundi Dagsbrúnar
um samningana I gærkveldi „að
félagið hefði ekki treyst sér til
þess að fara út á þá sömu braut
Verkamenn gagnrýna