Vísir - 21.12.1963, Page 3
VISIR . Laugardagur 21. desemrer i„—
3
Vinna hafin —
Framh. af bls. 1.
ánægður með hina nýju samn-
inga.
Klofningur
verkfallsmanna
Áður en samningar tókust
um lausn hinar víðtæku vinnu
deilu áttu sér stað heiftarleg
átök í forustuliði verkfalls-
manna, einkum í landsnefnd
verkamannafélaganna. Var
ágreiningur þessi fyrst og
fremst milli Eðvarðs Sigurðsson
ar formanns Dagsbrúnar í
Reykjavfk og Bjöms Jónssonar
formanns Einingar á Akureyri.
Eðvarð vildi Ijúka verkföllunum
og semja um 15% kauphækkun
til hálfs árs, en Björn Jónsson
og aðrir norðanmenn vildu fá
meiri kauphækkun og alls ekki
semja lengur en til 15. maí, svo
að samningar yrðu lausir, er
undirbúningur síldarvertfðar
hæfist. Svo mikill var ágrein-
ingurinn milli verkfallsforingja
kommúnista, að hann kom opin
skátt fram á fundum samstarfs-
nefndar verkalýðsfélaganna.
Ekki tókst að jafna þennan á-
greining að fullu. Björn Jónsson
féllst að vísu á 15% kauphækk
un, en reyndist ófáanlegur að
semja til lengri tíma en 5 mán-
aða Rofnaði samstaða verka-
mannafélaganna vegna þessa á-
greinings.
Víðtækustu
verkföllin
Verkföllin hófust 10. desem-
ber. Tóku þátt í þeim um 60
verkalýðsfélög með um 20 þús.
félaga innan sinna vébanda.
Hafa verkföll aldrei áður ver-
ið eins víðtæk hér á landi. Með-
al verkalýðsfélaganna, er tóku
þátt f verkfallinu, voru félög
verzlunar og skrifstofufólks, en
þau tóku nú þátt í verkfalli í
fyrsta sinn. Þegar verkfallið
hafði staðið í 4 daga, gerðust
þau tíðindi, að verzlunarmenn
sömdu og afléttu verkfalli sínu.
Náðu félög verzlunarmanna
samningum um 10% kauphækk
un þegar f stað og samkomulag
varð um að vísa deilunni að
öðru leyti til kjaradóms. Sam-
komulag varð um 11 launa-
flokka verzlunar- og skrifstofu-
fólks, en kjaradómur skyldi úr-
skurða skipan f flokka og hæð
launa á hverjum þeirra. ■Skal
kjaradómur ljúka störfum fyrir
1. febrúar n. k., en úrskurður
hans skal gilda frá 1. október
1963 til 31. desember 1965. 1
kjaradómi sitja 7 manns, 3 frá
Hæstarétti, 3 frá vinnuveitend-
um og 3 frá launþegum. 10%
kauphækkunin, sem samið var
um, skal gilda frá 1. október,
eins og kjaradómur og verða
liður f þeirri kauphækkun, er
kjaradómur ákveður.
Iðja í Reykjavík semur.
Iðja, félag verksmiðjufólks f
Reykjavfk, samdi 18. desember
og hófst vinna í verksmiðjun-
um f Reykjavík daginn eftir.
Samdi Iðja um 14% kauphækk-
un á alla taxta félagsins og þar
með talið á ákvæðisvinnutaxta
einnig. Félagið samdi til eins
árs. Iðja á Akureyri samdi að-
faranótt 20. desember um 15%
kauphækkun einnig til eins árs.
Eftir sáttafund f fyrrinótt var
ljós, að lausn allrar deilunnar
væri skammt undan. Hafði þá
náðst samkomulag um 15%
kauphækkun á sáttafundi, sem
staðið hafði alla nóttina. En
þegar fundum var frestað
snemma í gærmorgun, var enn
ekki komið fullt samkomulag
um lengd samningstfmans. —
Vinnuveitendur vildu semja til
eins árs, Dagsbrún til 6 mánaða,
en Eining á Akureyri til 5 mán-
aða. Eitt félag hafði þó á þess-
um tíma náð samkomulagi við
sína viðsemjendur um lengd
samningstfmans, þ. e. Hið ísl.
prentarafélag, sem hafði ákveð-
ið að semja til 1. október. Var
þá í rauninni komið samkomu-
lag milli samninganefnda prent
ara og prentsmiðjueigenda og
var haldinn fundur í HlP kl. 6
f gær og samkomulagið staðfest
og ákveðið að aflýsa verkfall-
inu. Prentsmiðjueigendur sam-
þykktu samkomulagið einnig f
gærkveldi og vinna hófst þegar
í öllum prentsmiðjunum.
Unnið var áfram að lausn
deilu annarra verkalýðsfélaga í
gærkveldi og fram eftir nóttu.
Kl. 4 í gær gerðist það, að
Verkalýðsfélagið Eining á Ak-
ureyri og Bílstjórafélag Akur-
eyrar samþykktu að aflýsa verk
föllunum og auglýsa 15% hærri
taxta, er gilda skyldi til 15.
maf. Höfðu þessi félög þá f
rauninni klofið sig frá öðrum
félögum til þess að fá fram sér-
sjónarmið sfn varðandi lengd
samningstímans og var þá ljóst,
að samningstíminn yrði ekki
mikið deiluefni lengur.
TiIIögur lagðar
fyrir félögin.
Um kl. 9 í gærkveldi var
Frá fundi Dagsbrúnar í gær þar sem samþykkt var að semja.
ákveðið að gera hlé á sátta-
fundum og var samkomulag
um að leggja skyldi þær til-
lögur, er þá lágu fyrir um 15%
kauphækkun til 6 mánaða fyrir
fundi f öllum félögum deiluað-
ila. Voru þessar tillögur sam-
þykktar í öllum félögunum og
stjórnum félaganna heimilað að
ganga frá samningum og aflýsa
verkföllum. Síðan hófust sátta-
/ fundir að nýju og stóðu til kl.
5 í morgun. Verkalýðsfélögin,
sem enn stóðu í verkfalli, höfðu
ákveðið að aflýsa verkföllum
öll samtímis. Var beðið eftir
staðfestingu nokkurra félaga til
kl. 5, en þá var verkföllunum
aflýst. Eftir var þó að ganga
frá samningum nokkurra iðnað-
armannafélaga er vinna eftir
uppmælingu.
Mikið starf hvíl diá sátta-
semjara ríkisins og sáttanefnd
í þeirri kjaradeilu, sem nú er
lokið. 1 sáttanefnd áttu sæti:
Torfi Hjartarson sáttasemjari,
Logi Einarsson varasáttasemj-
ari, Þórhallur Ásgeirsson ráðu-
neytisstjóri og Jónatan Hall-
varðsson hæstaréttardómari..
HótuSu Eyjubúum
Flugfélag islands hugðist í
verkfallinu fljúga m. a. til Vest-
mannaeyja, en samgöngur til
Eyja hafa skiljanlega verið mjög
litlar meðan á verkfallinu stóð.
Herjólfur hefur þó haldið sinni
áætlun og hafa farþegar komið
annanhvern dag, en einnig nokk
uð með Flugsýn Birni Pálssyni
og minni flugvélum.
Ástæðan fyrir því að ekki var
flogið á Vestmannaneyjar, eins
og til stóð, mun vera sú, að
verkfallsstjórnin hótaði að setja
bann á alla mjólkurflutninga til
Eyja, ef Flugfélagið hæfi flug
þangað. Mun bæjarstjómin þvi
hafa farið þess á leit við Flug-
félagið að það hætti vlð ferðir
þangað, til að koma í veg fyrir
það ófremdarástand, sem hlyti
að skapast ef mjólkurlaust yrði.
Svipað mun hafa verið uppi
á teningnum á Akureyri, þ. e.
að hótanir voru hafðar frammi,
en ekkert varð þó úr þeim og
flug þangað var að mestu með
eðlilegum hætti.
Iimanlandsflug þrátt fyrír verkfaKð
íslenzku flugfélögin hafa að
miklu leyti haldið ásetlunum sín
um þrátt fyrir verkfallið. Loft-
leiðir fengu í upphafi undan-
þágu til að halda áfram að
fljúga um Reykjavík með er-
lenda farþega, en tóku ekki inn-
Ienda farþega. Eftir að verk-
fall verzlunarmanna leystist
flutti Flugfélag íslands þær
flugvélar, sem tiltækar voru til
Keflavíkur og héldu uppi flugi
þaðan, bæði innanlands og utan
og einnig ísleitarflug til Græn-
Iands.
„Ég vil sérstaklega undir-
strika“, sagði Sveinn Sæmunds-
son, blaðafulltrúi Flugfélags Is-
lands í gærkvöldi, „að við fór-
um áð einu og öllu eftir lögum
og frömdum engin verkfallsbrot
með flugi okkar. Það, sem
gerði okkur fært að fljúga, voru
benzínbirgðir, sem við eigum
jafnan til á flugvöllum úti á
landi og farþegar báru töskur
sínar í vélamar sjálfir. Við sótt-
um 1 upphafi um undanþágu til
verkfallsnefndanna en bréfi okk
ar var aldrei svo mikið sem
svarað. Þegar verzlunarmenn
sömdu ákváðum við svo að
flytja allar tiltækar vélar til
Keflavíkur og fljúga þaðan, eink
um þó á staði úti á landi, sem
svo til algjörlega hafa verið ein
angraðir. Þetta flug hefur komið
sér mjög vel og allflestar ferðir
fullsetnar, einkum af námsfólki,
sem komið var í mestu vand-
ræði og hafði á orði að halda
jólin f heimavist skóla sinna
eða í leiguherbergjum sínum“.
Sveinn sagði enn fremur:
„Annars skiljum við ekki af-
HundruBum milljóna veitt
Eðlilegt er að spurt sé hve
miklu fé í krónutölu þær kaup-
hækkanir nemi sem nú hefir
verið samið um við margar stétt
ir launþega. Við því verður ekki
gefið fullnægjandi heildarsvar
þar sem er. hefir ekki fengizt
ráðrúm til þess að reikna það
út. Hins vegar er unnt að gera
sér nokkra grein fyrir því, ef
Iitið er til þess hverri upphæð
allar launagreiðslur í landinu
námu fyrir þessa hækkun. öll
laun munu nema um 7 milljörð
um á ári. 15% hækkun á þau
myndi þýða 1-2 milljarði í aukn
um Iaunum. Þess ber að gæta
að 15% hækkunin nær ekki til
allra starfshópa, þótt meirihluti
launþega fái nú þessa kaup-
hækkun, og liggur því talan
vafalaust nær milljarði, eða þús
und milljón krónum. Þannig er
svo kveðið á í lögum um kjör
opinberra starfsmanna að þeir
skuli fá samsvarandi launa-
hækkun ef almennar verulegar
kauphækkanir verða í Iandinu.
Ljóst er því að mjög aukið
fé kemur á næstunni í umferð
með þeim afleiðingum á verð-
myndunina sem alkunnar eru.
stöðu verkfallsmanna til flugs-
ins, þar sem þeir leyfa öðru
flugfélaginu að fljúga en virða
hitt ekki viðlits varðandi undan-
þágu. Við vorum einnig furðu
lostnir þegar Loftleiðir, sem
reka Reflavíkurflugvöll sem al-
þjóðlegan flugvöll fyrir ríkið,
neita Flugfélaginu um alla þjón-
ustu, t. d. mann til að leið-
beina flugvélum að flugstöðinni,
setja klossa fyrir hjól, neita um
afnot af teleprinter og sitthvað
fleira. Við sannreyndum einnig
þessa daga okkar í Keflavik að
flug þaðan verður alla tíð afar
erfitt og þungt í vöfum, ekki
hvað sízt innanlandsflugið“.
Starfsemi Loftleiða truflaðist
ekki að neinu leyti, nema hvað
íslenzkir farþegar komust
hvorki heim né að heiman. Var
ringulreið meðal farþega, sem
ekki komust á nokkurn hátt til
íslands og komu flugvélar Flug-
félagsins því sem frelsandi engl-
ar fyrir marga farþega, sem
orðnir voru félitlir og lejðir f
prísundinni.
Kristján Guðlaugsson, stjóm-
arformaður Loftleiða, sagði í við
tali við okkur í gærkvöldl, að
ásökun Flugfélagsins í garð
Loftleiða veeri út í hött. „Við
neituðum Flugfélaginu aldrei
um afgreiðslu, en báðum aðeins
um undanþáguheimild frá Verka
IýðS' og Sjómannafélagi Kefla-
víkur, en hana gátu þeir ekki
lagt fram. Þess vegna gat ekki
orðið af afgreiðslu, af skiljan-
legum ástæðum“. .