Vísir - 23.12.1963, Page 3
ÍBARNASKÓLA
Það var mikið að gera í bama
skólunum síðustu dagana áður
en jólafríið hófst. Starfsháttum
í bekkjunum var að miklu Ieyti
breytt, skólabækuraar voru Iagð
ar til hliðar en í stað þess voru
tekin upp blöð og Iitir, skæri,
Iím, efnisbútar og margt fleira.
Og hvað var nú gert úr þessu
öllu?
Við brugðum okkur f heim-
sókn í Hlíðaskóiann er „jóla-
annríkið“ stóð sem hæst, og
fengum við að Iíta þar inn í
nokkrar kennslustofur. Við kom
um fyrst þar sem sjö ára békk-
ur var að störfum. Hjá nemend-
um þar voru jólakort og ýmiss
konar klippimyndir aðalverk-
efnin. Jólakort eru mikið atriði
í „jólaundirbúningnum“ í barna
skólanum, því að hver bekkur
hefur sinn póstkassa og í hann
stinga nemendur jólakortum,
sem þeir senda bekkjarféiöguin
sínum. Síðasta kennsludag eða
daginn, sem jólatréskemmtunin
er haldin er póstkassinn svo opn
aður og kortunum deilt út.
Það var kominn mikill jóla-
svipur á kennsiustofurnar og þá
ekki sfður á nemendurna. Þvf
eldri sem nemendurnir, sem við
heimsóttum voru, þeim mun f jöl
breyttara og vandasamara varð
jólaskrautið. Fór að bera á kirkj
um, pósthúsum og í einum 12
ára bekknum höfðu nemendur
gert heilt veggteppi úr efnisbút-
um. Var þar líkara umhorfs
sem á saumastofu væri.
Það er Iögð mikil vinna í að
skreyta stofurnar og þótt fljótt
verði að taka skrautið niður
aftur er vinnan fyllilega þess
virði að hún sé unnin, bvf að
ánægjan sem út úr henni fæst
er aiveg ómetanleg.
MYNDATEXTAR:
V1SIR . Mánudsgur 23. desem’oar 19G3.
--m i ' i iiM'i'M HmiuyiUlnJi "rtffrr Wrfii
Efsta mynd: í 9 ára bekk. Sigríð
ur Jónsdóttir kennslukona leið-
beinir 2 drengjum sem eru að
kiippa út og líma litla engla.
Miðmynd: Nemendur í 9 ára
bekk A gerðu hvorki meira né
minna en heila kirkju, með
garði, draugum, beinagrindum
og öllu tilheyrandi. Á myndinni
sitja nokkur þeirra sem unnu
við kirkjusmiðina og horfa á
verkið.
Neðsta mynd: Það var mikil ös
við póstkassann, engu sfður en
á pósthúsum fullorðna fólksins
rétt fyrir jólin.