Vísir - 24.03.1964, Síða 7
V1SIR . Þriðjudagur 24. marz 1964.
EO
?
Nýir möguieikar til að stu
uð jafavæm / hygað landsins?
Gíðastliðinn miðvikudag flutti
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son framsöguræðu á Alþingi fyrir
tillögu til þingsályktunar, sem hann
flytur í sameinuðu þingi, um að-
stoð frá Viðreisnarsjóði Evrópu-
ráðsins í þeim tilgangi að stuðla
að jafvægi í byggð landsins.
Hóf hann mál sitt með því að
víkja að umræðum um jafnvægi
I byggð landsins, sem verið hef-
ur mjög á dagskrá hin síðari ár og
mælti síðan:
Tilflutningar fólks innanlands
þurfa ekki að vera óeðlilegir. Breytt
tækni og ^atvinnuhættir geta gert
slíkt óhjákvæmilegt. Slíkt hefur
þjóðin undirgengzt og verður að
vera viðbúin að undirgangast. En
slík þróun á ekki og þarf ekki að
þýða það, að meginhluti þjóðarinn
ar setjist að á litlum eða takmörk-
uðum hluta íandsins. Nú um ára-
tugaskeið hefur þróunin stefnt um
of í þessa átt. Þessir fólksflutningar
stafa ekki nema af nokkru leyti
af breyttri tækni og breyttum at-
vinnuháttum. Gæði Iandsins og
náttúruauðlindir er að finna víðs
vegar um !°ndið og geta verið hag-
nýttar víðs vegar um landið með
þeirri tækni og atvinnuháttum, sem
við búum við. Fólksflutningar utan
af landsbyggðinni til Reykjavíkur
og nágrennis eru því tvímælalaust
þjóðhagslega óhagstæðir, ef þeir
fara fram úr ákveðnu marki.
En hér kemur fleira til en það,
sem metið verður beinlínis í tölum
og fjárhagsútreikningum. Menning
okkar, erfðir og saga er tengd við
ísland allt. Heilir 'landshlutar mega
ekki leggjast í eyði eða ganga svo
saman að fólksfjölda, að áhrifa
þeirra gæti lítið eða ekkert á
þjóðlífið. Það væri að glata fortíð-
inni á kostnað framtíðarinnar. Þjóð
menning okkar gefur okkur rétt og
mátt til frelsis og sjálfstæðis. Þjóð
menning okkar er bundin við Is-
land allt.
Sögur herma að landið hafi verið
alnumið á 60 árum. Það er okkar
hlutverk nú, að halda því öllu í
byggð. Þá á ég ekki við, að ekkert
bóndabýli megi fara í eyði og jafn-
vel að enginn hreppur megi fara í
eyði, heldur hitt, að við höldum
byggð uppi, þar sem nútímatækni
og atvinnuhættir leyfa. Hér þarf
sérstakra aðgerða við. I því skyni
hafa margar þings^lyktanir verið
samþykktar á Alþingi og löggjöf
- sett. 'Svo mjög hefur verið rætt
um þetta vandamál hér á hátt-
virtu Alþingi, að ég sé ekki ástæðu
til að vera fjölorður um það út
af fyrir sig. Mín hugsun beinist og
frekar að úrræðum til þess að leysa
vandann. Þannig er tilkomin. þings
ályktunartillaga sú, sem hér ligg-
ur fyrir til umræðu.
HLUTVERK VIÐREISNAR-
SJÓÐSINS
Á vegum Evrópurúðsins er svo-
kallaður Viðreisnarsjóður, (Resett-
lement Fund), sem hefur það hlut-
verk að aðstoða Evrópulön' við
',ausn vandamála, sem stafa af til-
flutningi fólks, þar með talið land-
ilóttamanna. Sjóður þessi var stofn
aður 16. apríl 1956, af 8 aðildar-
ríkjum Evrópuráðsins og var Is-
and eitt þeirrá. En hin ríkin voru:
Selgía, Frakkland, Vestur-Þýzka-
and, ítalfa, Luxembourg, Grikk-
iand og Tyrkland. Síðan gerðist
Kýpur aðili að sjóðnum árið 1962.
Þessi sjóður gegnir hlutverki sínu
neð því að veita lán eða tryggingu
veitt 200 þúsund dollara lán til efl-
ingar tækni og iðnskólum, sem
stofnaðir hafa verið af Tæknistofn
fyrir lánum til framkvæmda sem i Áþenu með heimavist fyrir um 600
ætlað er að skapa nýja möguleika ! nemendur. Ennfremur hefur verið
til lífsframfæris, þar sem þess ger-
ist þörf vegna tilflutninga fólks. Að
ildarríki sjóðsins hafa lagt honum
til stofnfé, að upphæð 6,7 millj. uninni f Aþenu
dollara. Þar af er framlag íslands !
10 þúsund dollarar.
Síðan Viðreisnarsjóðurinn tók til j
starfa árið 1957 til ársloka 1962, !
hefur hann veitt lán samtals að '
upphæð 25,4 millj. dollara og árið j
1963 námu lánin 5.5 millj. dollara
eða alls nema nú lánin frá upphafi
30.9 milljónum dollara. Lán þessi
eru til 15 eða 20 ára með 5-6%
ársvöxtum. Lánin skiptast þannig
á aðildarríkin að
Ítalía hefur hlotið 12,7 millj. dollara
Vestur-Þýzkaland 11,3 millj. dollara
Grikkland 4,0 millj.. dollara
Tyrkland 2,4 millj. dollara
Kýpur 0,5 millj. dollara.
Fyrstu árin var aðalverkefni sjóðs
ins bundið við flóttamannavanda-
mál Vestur-Þýzkalands. Með því að
það vandamál er nú í þessu sam-
bandi að mestu úr sögunni, hefur
starfsemi sjóðsins síðustu árin
beinzt einkum að Grikklandi, Tyrk-
landi, Ítalíu og Kýpur. I þessum
löndum hafa vandamálin aðallega
risið af fólksflutningum innan
hvers lands. Aðstoð Viðreisnarsjóðs
ins hefur hér ekki miðað fyrst og
fremst að því að skapa fólkinu
lífsskilyrði þar sem það leitar, held-
ur eigi síður hitt, að bæta aðstöð-
una í þeim landshlutum, sem fólk-
ið flytzt frá til þess að stöðva
fólksflóttann, þ. e. viðhalda jafn-
vægi í byggð landsins.
Þorvaldur G. Kristjánsson.
Til Tyrklands hefur sjóðurinn lán
að 1,5 milljónir dollara til Tækni-
stofnunar nálægra austurlanda,
sem hefur aðsetur í Ankara og var
féð einkum notað til kaupa erlendis
áj;* tækjum tíl verkstæðiskennsju,
svo og á ý'msum öðrum iðnkennslu
tækjum. Þá hefur sjóðurinn lánað
til Tyrklands 870 þúsund dollara í
öðru skyni, svo sem til stofnunar
fyrirmyndarbýla og byggðahverfa
í sveitum landsins og til byggingar
smáíbúðarhúsa í Ankara.
Úr ræðu Þorvulds Garðars Kristjúns-
sonur i snmeinuðu þingi s.S. miðvikud.
Hér er um að ræða hliðstæð
vandamál og þau, sem við höfum
við að glíma. Spurning er þvi, hvort
við getum hagnýtt okkur aðstoð
Viðreisnarsjóðsins með svipuðum
hætti og þessar þjóðir hafa gert.
Til þess að skýra þetta nánar, þykir
mér rétt að gera grein fyrir lánum,
sem Viðreisnarsjóðurinn hefur veitt
í þessu skyni.
Eins og ég hefi áður sagt eru
lán þau, sem Viðreisnarsjóðurinn
hefur veitt til Vestur-Þýzkalands
tengd^ vandamálum landflóttafólks
og hafa þau verið notuð einkum til
húsbygginga í Vestur-Þýzkalandi.
Til Grikklands hefur Viðreisnar-
sjóðurinn lánað 3,25 millj. dollara
til framkvæmda í norð-vesturhluta
landsins, Epirus. Þessi hluti Grikk-
lands var álitinn eiga við mesta
örðugleika að stríða m. a. vegna
erfiðra og ónógra samgangna,
vegna of einhæfs atvinnulífs, þ. e.
ónógs iðnaðar, og vegna skorts á
rafmagni. Gríska stjórnin gerði á
sínum tíma 5 ára áætlun um jarða-
bætur, samgöngubætur, virkjanir,
og íbúða- og hótelbyggingar í þess
um landshluta og gengur lán Við-
reisnarsjóðsins til framkvæmda í
sambandi við þá áætlun. Þá hefur
sjóðurinn lánað 500 þúsund dollara
til stofnunar verkstæðisskóla í
Til ítalfu hefur Viðreisnarsjóð-
urinn lánað 6 milljónir dollara til
að setja upp verkstæðisskóla í 5
borgum Italíu á vegum Uppbygging
arstofnunar iðnaðarins þar í landi.
I Lánaðir hafa verið 600 þúsund doll
arar til byggingar alþjóðlegs verk-
stæðisskóla í Salerno. Ennfremur
hafa verið lánaðir 360 þúsund doll-
arar til byggingarsamvinnufélaga
ítalskra verkamanna í Frakklandt. 1
þvf skyni að örva félagslega og efna
hagslega þróun Sikileyjar hefur
sjóðurinn lánað 5 milljónir dollara
til framkvæmda f borginni Gela í
sambandi við nýjan iðnað, sem sett
ur var þar á laggirnar. Lánsféð fór
til byggingar á íbúðum fyrir verka-
menn og til bygginga félagsheimila,
sjúkrahúsa, íþróttamannvirkja og
skóla. Þá hefur sjóðurinn lánað
2,1 milljón dollara til húsbygginga
fyrir ítalska verkamenn, sem flutzt
hafa til Ástralíu.
Til Kýpur lánaði Viðreisnarsjóð-
urinn á s. I. ári 500 þúsund dollara
til vatnsveitna og skólabygginga í
sveitum Kýpur. Lánið var veitt
með því, að talið var að vatnsskort
ur stæði f vegi fyrir efnahagsleg
um og félagslegum framförum.
Einnig var talið, að bæta yrði á-
stand barnafræðslunnar í sveitum,
til þess að unglingar gætu sfðar
verið tækir í verkstæðis- og iðn-
skóla.
Það, sem ég hef nú greint frá
lánveitingum Viðreisnarsjóðsins
sýnir, að hann hefur látið til sín
taka margháttuð verkefni. Margt
af því, sem þar er um að ræða
er alls óskylt okkar vandamálum.
Hins vegar eru aðrar framkvæmdir,
sem sjóðurinn hefur lánað til svip
aðs eðlis, eða jafnvel hliðstæðar
þeim, sem til greina gætu komið
hér á landi, til þess að stuðla að
jafnvægi í byggð landsins. Tökum
t. d. Vestfirði.
VANDAMÁL VESTFJARÐA.
Samkvæmt skýrslum um mann-
fjölda á Vestfjörðum hefur fbúum
þar fækkað um 19,7% á hálfri öld
eða á tímabilinu frá 1912 — 1062..
Hér er um nokkra sérstöðu að ræða,
því að þetta er eina kjördæmið á
landinu, þar sem um beina fólks-
fækkun hefur verið að ræða. Að
nokkru leyti hefur þetta verið ó-
hjákvæmileg afleiðing af þróun-
inni í tækni og atvinnuháttum lands
manna og af því leyti er ekki um
að sakast. En þó að þróunin hafi
verið óhagstæð þessum landshluta
síðustu hálfa öld, er ekki þar með
sagt, að svo þurfi að vera fram-
(vegis eða í næstu framtíð. Þvert
i á móti erum við nú þar á vegi
j staddir í tæknilégu og atvinnulegu
! tilliti, að við höfum ekki einungis
möguleika til að stöðva þennan
ifólksflótta frá Vestfjörðum, heldur
i og að snúa þróuninni við, En það
Jeigum við að gera vegna þess, að
' það er þjóðhagslega hagkvæmara
i að öðru jöfnu, að búa fólkinu lífs-
skilyrði, þar sem það er, heldur
en þar sem það leitar.
En hverjar eru þær orsakir fólks
flóttans frá Vestfjörðum, sem við
ættum að hafa tök á að ráða við.
Ástæðurnar eru aðallega tvenns
konar. Annars vegar einhæfur at-
vinnurekstur, hins vegar ófullnægj-
andi aðstæður til félagslegra og
menningarlegra iðkana að nútíma
háttum og venjum.
Einn höfuðvandinn við að eiga
er einangrun og samgönguleysi
hinna einstöku og afmörkuðu byggð
arlaga meirihluta ársins, Skipu-
Ieggja þarf byggðina svo hér verði
ráðin bót á, í samræmi við nútíma
þarfir og lifnaðarhætti. Stefna þarf
að þvf að koma upp seníh öflugust
um byggðasvæðum, sem myndi
eina heild atvinnulega, menningar
lega og félagslega. Slíkt þróunar
svæði á að mynda um höfuðstaðinn
ísafjörð og nágrenni og á ég þá
ekki aðeins við Bolungarvík, Hnífs
dal og Súðavik, heldur einnig Suð-
ureyri, Flateyri og Þingeyri. En eitt
þýðingarmesta skilyrði til þess, að
svo geti orðið eru öruggar sam-
göngur milli þessara staða, jafnt
að vetri sem sumri. Til þess að
svo megi verða, þarf að gera jarð
göng gegnum Breiðdalsheiði.
Hliðstætt þróunarsvæði eða
kjarna byggðarinnar á Vestfjörðum
])arf að mynda um Patreksfjörð,
Bíldudal og Tálknafjörð og þriðja
aðalbyggðasvæðið ætti að vera með
Hólmavík og Drangsnes.
Með því að leggja áherzlu á
myndun slíkra þróunarsvæða feng
ist sá grundvöllur, sem þéttbýlið
skapar fyrir nútíma atvinnuháttu,
og menningar- og félagslíf.
Byggðahverfi þarf að efla á
nokkrum stöðum í sveitum Vest-
fjarða, menningarlegar miðstöðvar,
félagslegar miðstöðvar og þjóAustu
miðstöðvar í þágu landbúnaðarins.
Slík byggðahverfi þarf að efla á
Reykhólum og t. d. í Reykjanesi við
ísafjarðardjúp.
Ein orsök vandamálanna á Vest-
fjörðum er fábreytni atvinnulífs-
ins. Höfuðverkefni er að bæta úr
þessu með því að efla þar iðnað.
Margs konar smáiðnaður getur þar
verið rekinn með jafngóðum
árangri og annars staðar á landinu.
Auk þess hafa Vestfirðir skilyrði
á ýmsum sviðum til jafns við aðra
Iandshluta, til að vera hlutgengur
aðili á öld þeirrar stóriðju, sem
vonandi er nú að renna upp hér á
lándi. Ég nefni nú aðeins eitt í því
sambandi. Þegar ákveðin var stað-
setning Sementsverksmiðjunnar,
Þótti ýmsum eins koma til greina,
að staðsetja hana á Patreksfirði eða
í Önundarfirði, og sumir kunnáttu-
menn töldu, að þar væru aðstæður
hér á landi heppilegastar til fram-
leiðslunnar. Meðal annars með til-
liti til innanlandsmarkaðarins var
ekki horfið að þvf ráði að reisa
sementsverksmiðju á Vestfjörð-
um. En ef við förum að framleiða
sement fyrir erlendan markað, sem
við reyndar höfum lítillega gert nú
þegar og virðast geta orðið mögu-
leikar á, þá á vissulega að taka
til athugunar, að framleiðsluafköst
verði aukin með nýrri sementsverk
smiðju f Önundarfirði eða Patreks-
firði.
Ég ætla mér ekki þá dul, að fara
að telja hér upp allt það, sem hugs
anlega kæmi til greina til eflingar
byggðinrii á Vestfjörðum, enda
þykir sumum kannske nóg komið.
En mín skoðun er sú, að allt það
sem ég hér hefi nefnt, séu verk-
efni, sem vel gæti komið til álita,
að Viðreisnarsjóður Evrópuráðsins
fáist til að ljá lið.
JAFNVÆGI
í BYGGÐINNI.
Ég hef hér talað um Vestfirði.
Það er annars vegar vegna þess,
að Vestfirðir hafa nokkra sérstöðu
við alla aðra landshluta, eins og
ég áður hef greint, og það er hins
vegar vegna þess, að þar er ég
staðháttum kunnugastur. En þetta
þýðir það alls ekki, að aðstoð frá
Viðreisnarsjóði Evrópuráðsins geti
ekki komið til greina við úrlausn
verkefna annars staðar á landinu.
Mér virðist, að það geti líka komið
til greina við úrlausn svipaðra verk
efna í einstökum kauptúnum, kaup
stöðum og sveitum norðanlands og
austan.
Ég sagði áðan, að jafnvægi í
byggð landsins hefði oft verið á
dagskrá hins háa Alþingis og ég
hygg, að Alþingi hafi að jafnaði
tekið með skilningi á þessum mál-
um. Það hefur ekki skort á það,
að samþykktar hafa verið margar
þingsályktunartillögur varðandi
þetta mál. Þannig samþykkti Al-
þingi árið 1963 t. d. tillögu til
þingsályktunar frá þeim alþingis-
mönnunum Gísla Jónssyni og
Kjartani J. Jóhannssyni um 5 ára
framkvæmdaáætlun til stoðvunar
á fólksflótta úr Vestfjarðakjör-
dæmi. Skyldi ríkisstjórnin fela
Framkvæmdabanka íslands að
semja 5 ára framkvæmdaáætlun í
samráði við stjórn Atvinnubóta-
sjóðs til stöðvunar fólksflóttan úr
Vestfjarðakjördæmi. Á vegum
Framkvæmdabanka íslands og
Efnahagsstofnunarinnar er nú þeg-
ar hafinn undirbúningur að verki
þessu. Að því verki starfar nú
Valdimar Kristinsson, viðskipta-
frseðingur, en hann hefir sett fram
merkar hugmyndir um þróunar-
svæði á íslandi og hvernig þau
gætu haft áhrif á dreifingu byggð-
arinnar.
Framhald á bls. 5.