Vísir


Vísir - 08.04.1964, Qupperneq 2

Vísir - 08.04.1964, Qupperneq 2
2 V í S I R . Miðvikudagur 8. apríl 1964. Fréttabréf frá Jóni Þ. Qlafssyni úr „paradis Það varð að samkomulagi áður en ég hélt utan að ég skrifaði íþróttasíðunni frétta bréf héðan af Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna, sem segja má að sé Paradís frjálsíþrótta- manna. Að loknu löngu, til- breytingarmiklu og skemmtiiegu ferðalagi er ég kominn hingað til Los Angeles, þar sem ég mun verða mikinn hluta þess tíma sem ég verð hér í Banda- ríkjunum. Hér í Los Angeies eru flestir beztu frjálsíþrótta- menn Bandaríkjanna og héruð- in hér umhverfis eru aðal vett- vangur frjálsíþróttamanna bæði hvað viðvíkur æfingum og keppnum. Eftir að hafa ferðázt um 'það bil 5000 mílur hingað til Los Angeles, í flugvélum 17 klst. og 21 mín., og 32 klst. Johnson að nafni. Hann var meðal beztu spretthlaupaia heimsins 1959 en þá hljóp narm 100 mtr. á 10,3 og 200 mtr. á 20,8. Hann hefur ekki haft að- stöðu til mikilla æfinga núna ev. telur sig geta hlaupið „bara" á 10,4—10,5 sek. Margt var að sjá í Washington, merkar bygg ingar skoðaðar og farið á ýmis söfn. Eitt þeirra safna sem mér þótti mikið til koma var Smith- sonian Institution. Þetta safn er nokkurs konar þjóðminjasafn og kennir þar margra grasa Meðal þeirra hluta sem mér þótti gaman að sjá var flugvél sú er Charles A Lindberg flaug frá New York til Parísar árið 1927 og flaug hann þessa leið án viðkomu og var 331/2 klst. á leiðinni en vegalengdin er frjálsihróttamanna": sökum þess að bæði var stokkið hærra í stangarstökki og há- stökki kvenna en gert var ráð fyrir. í stangarstökki sigr-iði Uelses og setti hann nýtt USA innanhússmet og stökk harm 16 — 414 eða 4.99 m. Var gaman að sjá hann stökkva því 'nann er með afbrigðum skemmtilegur stökkvari, sterkur, sprettharður og notaði hann glass-fiber stöngina til hins ýtrasta. í há- stökki kvenna stökk kanadísk stúlka Diane Gerace 1.75 m. sem er annar bezti árangur kvenna innanhúss í heiminum. Að þessum greinum loknum hófst keppnin í hástökkinu. Sex keppendur voru mættir til keppni en einn af skráðum kepp endum, sjálfur John Thomas, staulaðist um salinn með siaf Jón Þ. Ólafsson. — eitthvað er að hjá okkur segja Bandaríkjamenn samfellt í lest er frá mörgu að segja, en þar sem meiningin er að segja frá því, sem við- kemur íþróttum verður ferða- sögunni sleppt að mestu. For- mála þennan hef ég þá ekki Iengri, og hér á eftir fer frétta- bréf nr. 1. UTANFERÐIN O FYRSTA KEPPN* Ferðasaga þessi hefst aðfara- nótt 10. marz, en þá fór ég ut- an með flugvél frá Loftleiðum. Lenti flugvélin í Keflavík, tók þar eldsneyti og flaug að bví loknu vestur um haf. Lent var í New York um kl. 9,30 *ð morgni næsta dags. Flugtíminn var þó með lengra móti, þvi mikill mótvindur var og flogið var heldur norðar en venjulega en það gerði ekkert til því að farþegar höfðu nóg að gera við að raða f sig ýmsu góðgæti, bæði mat og drykk, sem borið var fram rausnarlega og per- sónulega hefði ég ekki haft á móti því að flugferðin hefði tekið lengri tíma. Það mætti ætla að ódýr fargjöld Loftleiða gerðu það að verkum að þjón usta við farþega væri ekki jafn- góð og hjá hinum sem meira vilja hafa fyrir sinn snúð en það er misskilningur, því að þjón- usta Loftleiða við farþega sína er betri en hjá flestum þeim flugfélögum sem ég ferðast með og eru þau mörg. í New York var lent 1 rign- ingarsudda og þoku og að einni klst. liðinni flug ég til Was- hington D.C. þar sem ég hafði tæpra þriggja daga viðdvö). Tíminn þar var notaður til æf- inga, ýmsir merkir staðir skoð- anir og var þar margt að sjá Aðstoðarmaður minn í Was- hington var blökkumaður, elskulegur piltur, Brooks T =3600 mílur og var hann einn í flugvélinni. Þarna var einnig fyrsta vélknúða flugvélin, flug- vél bræðranna Wright. Þarna var einnig flugvél sú er fyrst flaug hraðar en hljóðið og einn- ig mátti sjá þarna geimhylki það er John Glenn jr. hafðist við í á geimférð sinni 20. febr 1962. Að lokinni þriggja daga við- dvöl í Washington flaug ég til Cleveland, Ohio til þess að taka þátt í síðasta innanhússmótirui í Bandaríkjunum á þessum vetri. Kunni ég heldur betur við mig i Cleveland að þvi leyti hvað veðráttu snerti þv: þar var heldur svalara. Kom ég til Cleveland á föstudegi en mótið var daginn eftir. Mót þetta fór fram í stærsta íþróttahúsi borgarinnar. Hús þetta var hið stærsta þó gamait væri orðið. Var húsið notað til ýmissa íþróttakeppna og kvöld- ið fyrir frjálsíþróttakeppnina var keppt þarna í íshocky. Heldur varð ég undrandi er ég kom inn í íþróttahöllina því þar var ekki hægt að gera það sama og ég hef oft gert á frjáls- íþróttamótum heima, þ.e.a.s. að dunda við að telja áhorfendur á milli þess sem maður er að keppa. Áhorfendur sem keyptu sig inn á þetta mót voru ahs 10478 sem er svipað aðsókn á landsleiki í knattspyrnu á Laugardalsvellinum heima. Ekki bætti það úr skák að ég var eini eriendi keppandinn á þessu móti og þótti mönnum eitthvað skrýtið að sjá keppanda með ICELAND á brjóstinu. Svo mik- ið var víst að ég hélt mig mes' [ búningsklefanum þá þrvá klukkutíma sem ég beið eftir því að hástökkskeppnin hæfist Hófst hún seinna en ætiað var í hönd og var hann meiddur á fæti og gat því ekki tékið þátt í mótinu. Var hann mjög vin- sæll, því þegar tilkynnt var ao hann gæti ekki verið með, þá andvarpaði ® áhorfendaskarmn líkt og þegar landinn brennir af í dauðafæri í knattspyrnulands- leik heima á Fróni. Eftir nokk- ur uppmýkingarstökk hofst keppnin. Byrjunarhæð var 6,4. Ég var fyrstur í stökkröð og tók ég þann kostinn að sleppa því eftir að hafa athugað mót- stöðumennina stökkva taidi ég að mögulegt væri að sigra þá ef rétt væri að farið. Þeir byrjuðu allir á 6,4, þrír þeirra felldu byrjunarhæðina sem ég get ekki skilið hvernig hægt er þar sem að þeir áttu allir frá 2,04—2,10. Vorum við þá þrír eftir, en hinir tveir sem stukku á þessa hæð fóru vfrr í annarri ög þriðju tilraun. Næst var hækkað í 6 — 6 Byrjaði ég því á þeirri hæð og fór vel yfir í fyrstu tilraun. Hinir felldu báðir naumlega en í þriðju tilraun tókst öðruin þeirra að fara yfir en ninn felldi þrisvar og var þar með úr leik. Næsta hæð var 6,714 og fór ég yfir þá hæð í fyrstu tilraun og var vel yfir. Hinn keppand- inn, Jim Oiiphant að nafni, fór yfir í þriðju tilraun og var hann vel yfir. Síðan var hækkað í 6, — 9,14 en þá hæð tókst hvor- ugum okkar að komast yfir þó að litlu munaði. Það háði okkur nokkuð að byggð hafði verið stangarstökksbr. í miðjum saln- um og var þessi braut um það bil fet á hæð svo að ekki var um annað að gera en að klöngrast yfir hana til þess að ná fullu tilhlaupi en enginn notfærði sér þennan möguieik' enda óhægt um vik. Fengum við því ekki fulla atrennulengd og hafði það áhrif á képpnina Keppendur voru bæði hvítir og svartir og tveir þeirra, Oliphant og Littlejohn eru meðal beztu hástökkvara hér í Bandaríkjun- um. Var rætt um það að eitt- hvað væri orðið bogið við getu Bandaríkjamanna í íþróttum þegar íslendingar sigruðu þá bæði í handknattleik og há- stökki. Daginn eftir keppnina fór ég með þotu til Denver, Colorado og var ég þar yfir nóttina. Næsta dag fór ég með lest yfir Klettafjöllin og var það skemmtileg ferð og útsýni stór- kostlegt á köflum og breyci- legt. Þegar við vorum hæst uppi var snjór á báða vegu upp á íjailatoppa, en er við ókum niður hlíðarnar Kyrrrahafsmeg- in, var hitinn kæfandi, allt grasi vaxið og ávextir héngu í trjánum. Fór ég úr lestinni i San Francisco, og var ég þar 1 þrjá daga. Þessa þrjá daga nuc- aði ég til æfinga, einn dag.nn æfði ég í San Jose en þangað fór ég til að hitta ísl. friáis- íþróttamann sem þar hefur dvalið síðan í sept. 1961. Þessi maður er Jóhannes Sæmunds- son sem er þarna við nám og leggur hann stund á íþróttir og er hann orðinn fróður vel i íþróttakennslu. Æfði ég þarna í steikjandi hita og stökk ég í fyrsta skipti á asphalt-braut þarna, en þessi braut er þó frekar lík gúmmí- mottu og er mottan ca. 3 cm. þykk og líkaði mér vel að stökkva á slíkri braut. Væri æskilegt að fá slíka mottu neim því hún verður ekki há! i rign- ingu. Um kvöldið gafst mér kostur á að fylgjast með 'yft- ingaæfingu hjá kösturum há- skólans. Salur sá sem þeir nota til þeirra hluta er mjög fuil kominn og voru þar margvísleg tæki og margt manna var við æfingar. Þarna var meðal ann- arra við æfingar náungi nokkur. Kelson að nafni, og hefur nann kastað rúmlega 18 metra Var mér tjáð að hann væri cnrar sterkasti kúluvarpari Banda- ríkjanna - lyftingum og svo mikið er vlst, að ekki hef ég séð sterkari mann. Fór hann í hnébeygjur með rúml. 500 Ibs. og var stöngin bogin á herðun- um á honum af þunganum á endunum. Ekki var það heidur mikið fyrir hann að jafnhatta , 300 lbs. Frá San Francisco flaug ég til 1 Los Angeles og bý ég í heima- | vist nemenda University of | Southern-California en þar mun g ég stunda enskunám. Þjálfari | við skólann er Vern Wolfe, einn | bezti þjálfari í Bandaríkjunum og meðal nemenda hans hafa verið m. a. Dallas Long, heims- | methafi í kúlpuvarpi, og hefur hann kastað 20,07 mtr. og p margir aðrir góðir frjálsíþrótta- menn. Einn af nemendum hans núna er Lew Hoyt en hann er rnjög góður hástökkvari og stökk innanhúss í vetur 2,16 og sigr- aði þá John Thomas og Sncas- vell frá Ástralíu sem hefur stokkið 2,20 utanhúss. Mun ég æfa með Lew Hoyt og Joe Faust sem hefur stokkið 2,15 mtr. Aðstæður hérna eru hinar fuilkomnustu., völlurinn góður og góður lyftingasalur. Hef ég nú æft þrisvar sinnum hérna og verða æfingarnar sóttar af kappi þann tíma sem ég verð hérna. Þetta er einstakt tækifæn sem mér hefur þarna gefizt og vonast ég til þess að ég geti náð góðum árangri hérna og er þá tilganginum náð. . Er ég Frjálsíþróttasamb. íslands þakk látur fyrir þeirra hluta í þessari ferð og er mér kunnugt um að þeir hafa lagt mikla vinnu I að úr þessu gat orðið. Einnig er ég þakklátur þeim bandarísku að- ilum sem að þessu hafa stuð’.að. | Lýk ég þessu fréttabréfi þá að sinni, og bið ég að heilsa ölium kunningjum og vinum heirna. Einhver bið verður á því að ég skrifi aftur því mér er ekki kunnugt um nein mót á næst- unni. Los Angeies, 22. marz 1964. Jón Þ. Ólafsson. Utanáskrift mín í USA: Jon Th. Ólafsson, I University of Southern California, | 36th Place, Stonier Hall. | Los Angeles, California, USA. ;■ íiSJ Stálu peningum IAðfaranótt laugardagsins var stolið nokkur þúsund krónum úr fórum gests á einu gistihúsi borg- arinnar. Hafði gestur þessi boðið til sín Ímönnum, en þegar þeir voru farn- ir, saknaði hann nokkur þúsund króna úr fórum sínum og gerði ’ögreglunni aðvart. ÍLögreglan hafði strax á laugar- daginn upp á tveim mönnum, sem i viðurkenndu að hafa stolið pen 0 ingunum af hótelgestinum. Hafa p menn þessir komið við sögu hjá ' 'ögreglunni fyrir svipað tilfelli B áður.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.